Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 6

Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Qupperneq 6
er snmfl fl HUflÐ UID TRúum? Trúarþörf virðist vera manninum meðfædd. Ýmsir hafa að vísu andmælt þessari staðhæfingu, en enn þá hefur enginn þjóðflokkur fundizt á svo frumstæðu stigi, að hann hafi ekki haft einhver trúarbrögð. A öllum öldum hafa verið uppi menn, sem reynt hafa að uppræta trúarþörfina og talið hana afleiðingu þekkingarskorts, sem ætti að hverfa með aukinni upplýsingu mannsins. Á okkar tím- um höfum við séð ýmsar tiiraunir tii upprætingar trúarbragða, ekki hvað sízt í ýmsum iöndum, þar sem marxistar fara með völd. Þar hefur guðleysi verið boðað í stað trúar. Nú ætti öllum að vera ljóst, að þessar tilraunir hafa mistekizt. Við eigum nægjanlega margar sannanir fyrir lifandi trú fjölda manna, þrátt fyrir allar ofsóknir yfirvalda. 6 Nægir þar að benda á neðanjarðarkirkjuna í Sovétríkjunum og baráttu rithöfundarins Alex- anders Solzhenitsyns. Flestum virðist vera orðið ljóst, að þjóðfélag án trúarbragða er óhugsandi. Þjóðfélagið verður að mæta trúarþörf mannsins jafnt og öðrum þörfum hans. Hér hafa því ýmsir reynt'að leysa vandann með því að setja trúna á manninn í stað trúar á Guð. Nægir að minna á Stalíndýrkunina í Sovét fyrir fáeinum áratugum, og allir þekkja Maódýrk- unina í Kína. Öllum mönnum virðist einnig meðfædd sektar- kennd gagnvart Guði. Við finnum, að við erum ekki þess verð að nálgast Guð, — fáum ekki staðizt frammi fyrir honum. Þess vegna grípur maðurinn til þess að reyna að blíðka Guð. Sameiginlegt einkenni allra trúarbragða er tilfinning fyrir þörf friðþægingar í einhverri mynd. Maðurinn er sífellt að reyna að komast upp til Guðs, — klifra upp í himininn. Saga Biblíunnar um Babelsturninn greinir frá einni af fyrstu tilraunum mannsins til þess, og enn erum við á okkar dögum að reyna að reisa einhverja Babelsturna til þess að komast upp til Guðs. Þess vegna gjöra öll trúarbrögð kröfur til mannsins um það, sem hann verði að leggja á sig, til þess að hann verði verðugur samfélags við Guð. Mörg trúarbrögð leggja þungar þrautir fyrir iðk- endur sína. Við heyrum um ótrúlegustu sjálfs- pyndingar, sem menn leggja á sig til þess eins að reyna að þóknast Guði. Og þó rekumst við á þá staðreynd, að þessi sjálfslausnarleið gefur mannin- um engan frið. Maðurinn lifir í sífelldum ótta: Hef ég gjört nóg? Þessar kröfur eru að meira eða minna leyti sameiginlegar öllum þeim trúarbrögðum, sem eiga uppruna sinn í hugsun mannsins, þótt margs konar munur geti að öðru leyti verið á slíkum trúarbrögðum. Mesti munurinn er á fjölgyðistrú- arbrögðum og eingyðistrú. Fjölgyðistrúin er miklu frumstæðari. Mikilli furðu gegnir, að til skuli vera menn á íslandi, sem í gamni eða alvöru vilja reyna að blása einhverju lífi á Ásatrúna. Hún hafði engan fastan kenning- argrundvöll, fremur en önnur fjölgyðistrú. Þar reyndi maðurinn að fullnægja trúarþörf sinni með

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.