Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Side 17
endurkoma Krists, bænir, ástar-
mál ungs fólks, friðþægingin og
margt fleira. Kvöldvökur og tón-
leikar eru einnig á dagskrá.
í vetur hafa af og til verið haldnir
síðfundir, sem eru eins konar
framhald af venjulegum fundum,
þá er dagskráin í höndum fund-
argesta sjálfra. Mikið er sungið
og orðið gefið laust þeim sem
vilja vitna um Jesúm Krist. Að
sumrinu eru bíblíulestrar hvern
föstudag, auk þess sem farið er í
ferðalög, stutt eða löng eftir
atvikum.
í flestum framhaldsskólum eru
biblíuleshópar, þar sem meðlimir
KSS koma saman til biblíulestr-
ar, hver í sínum skóla, einu sinni
í viku. Sumir biblíuleshóparnir
hafa staðið fyrir kynningu á KSS
í sínum skólum.
Stór liður í starfi KSS eru
kristilegu skólamótin, sem haldin
eru að jafnaði tvisvar á ári, um
bænadagana í sumarbúðum
KFUM í Vatnaskógi og að haust-
inu í sumarbúðum KFUK í
Vindáshlíð. Sækja þau að jafnaði
130 — 160 manns og komast
stundum færri en vilja. Undan-
tekning frá þessu var páskamótið
’75, sem haldið var á báðum
stöðunum, vegna fjölmennis.
Skólaprestur starfar á vegum
KSS og KSF. Starf hans er m.a.
fólgið í því að heimsækja
framhaldsskólana. Skólaprestur-
inn velur efni fyrir biblíuleshóp-
ana og undirbýr stjórnendur
þeirra, en þeir eru einhverjir úr
hópnum.
Eins og lesendur hafa komist
að raun um gefur KSS út Kristi-
legt skólablað sem kemur út einu
sinni á ári, og flytur efni samið af
meðlimum sjálfum auk annarra
(góðra manna).
Undanfarin ár hefur hópur
meðlima KSS farið til Norður-
landanna á SUM (Skoleung-
domsmöte). Þau mót eru á veg-
um kristilegu skóla- og stútenta-
hreyfinga Norðurlanda.
Flér hefur aðeins verið stiklað á
stóru, en komdu og kynnstu
samtökunum af eigin raun.
17