Kristilegt skólablað - 01.09.1975, Side 21
sé kennt við, svo að það verði engum framar til
tjóns.
Hallgrímur Pétursson, sem allir róma, hefur
líka gerzt trúskiptingur fyrir handan. í áður-
nefndri bók á hann að kveða svo fast að orði, að
endurlausnarkenningin sé eitruð ósannindi. „Eg
elskaði frelsarann og orðið frelsari og trúði því af
dýpstu sannfæringu, að þetta væri heilagur sann-
leikur“. Nú hefur Jesús sýnt Hallgrími fram á, að
skáldið rangfærði kenningar hans. Já, Guð sjálfur
hefur birt Hallgrími, að hann hafi engum gefið
vald til að frelsa menn frá illgjörðum þeirra eða
friðþægja fyrir syndir þeirra. Þess vegna séu
Passíusálmarnir lýsing á lausnara, sem aldrei hafi
verið til nema í ímyndun hans og annarra. (Jónas
Þorbergsson: Ljós yfir landamærin, bls. 189, 197,
264. — Bréf frá Ingu, útg. Soffanías Thorkelsson,
II. bindi, bls. 168—171; III. bindi, bls. 184—185.)
Trúin á Jesúm fretsar
Nægir þetta ekki til þess að sýna, af hvaða
rótum spíritisminn er runninn? Skiljum við nú
ekki svolítið betur, hvers vegna Guð hefur bannað
allar tilraunir til sambands við andaheiminn?
Spíritisminn eflir ekki trúna á orð Drottins, hvet-
ur menn ekki til að spyrja Biblíuna um veginn til
sáluhjálpar. Spíritisminn segir fólki ekki að reiða
sig á tign og vald Jesú Krists og endurlausnina,
sem hann hefur búið okkur með dauða sínum og
upprisu. Hann hjálpar mönnum ekki til að átta
sig á því, að fyrir Guði eru allir menn sekir
syndarar og geta ekki frelsað sig sjálfir, ekki heldur
með óendanlegum þroska fyrir handan gröf og
dauða.
Kenningar spíritismanns og kristindómsins
fara ekki saman fremur en eldur og vatn.
Spíritisminn er andstæður Biblíunni og þar með
fagnaðarerindinu um Jesúm Krist, son Guðs.
Vangaveltur um „framhaldslíf ‘ nægja ekki.
Spurningin mikla er þessi: Hvað á ég að gera, til
þess að ég verði hólpinn? Hvað um sekt mína og
synd? Hvernig get ég öðlast frið við Guð? Biblían
á rétta svarið: „Trú þú á Drottin Jesúm, og þú
munt verða hólpinn“ (Post. 16,31). „Hann bar
sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð“
(I.Pét. 2,24). „Hann er vor friður“ (Efes. 2,14).
Jesús sagði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn, og
lífið; enginn kemur til föðurins nema fyrir mig“
Qóh. 14,6). „Ég er upprisan og lífið; sá, sem trúir
á mig, mun lifa, þótt hann deyi“ (Jóh. 11,25).
„Allt vald er mér gefið á himni og jörðu“ (Matt.
28,20).
Leiðin til eilífs hjálpræðis er því að snúa sér frá
syndum sínum og frá allri fánýtri trú á mátt sinn
og megin, en leita nú þegar hælis hjá Jesú Kristi,
hinum krossfesta og upprisna frelsara, og setja allt
traust sitt á hann. Hvatning Biblíunnar er sífellt
tímabær: „Halt þú stöðulega við það, sem þú
hefur numið og hefur fest trú á, þar eð þú veizt, af
hverjum þú hefur numið það og þar eð þú frá
blautu barnsbeini þekkir heilagar ritningar, sem
geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á
Kristi Jesú“ (II.Tím. 3,14).
BENEDIKT ARNKELSSON
Jufaiá.. *
fylgd við hann. Þessi maður mat
eigur sínar meira. Én þú? Hvað
metur þú meira?
Ég held að þessi saga eigi er-
indi til okkar beggja, mín og þín.
I fyrsta lagi held ég að við höfum
gott af því að vera minnt á
spurninguna um eilífa lífið. Við
vitum vel að meðalaldur hins
mannlega líkama er 70—80 ár.
Það er ósköp stutt miðað við
eilífðina. I öðru lagi er gott að við
skulum minnt á að leita til Jesú
með þessa spurningu. Hann gef-
ur svör. Hann hvetur okkur einn-
ig til sjálfsprófunar. I þriðja lagi
er gott að við skulum minnt á að
hið endanlega svar við þessari
spurningu er fólgið í eftirfylgd
við Jesúm; trú á Jesúm, þ.e. að
við treystum honum fyrir sjálfum
okkur og metum hann meira en
allt annað. Hann gaf meira en
aðrir, líf sitt — eða hold sitt
heiminum til lífs — eins og hann
orðaði það sjálfur. Það væri efni í
aðra grein. En hér læt ég staðar
‘ numið. Efni okkar var: Hvað á ég
að gjöra til þess að ég eignist eilíft
líf? Pétur postuli gaf gott svar er
hann var spurður hins sama, svar
sem var í fullu samræmi við svar
Jesú. Pétur svaraði: Trú þú á
Droitin Jesúm og þú munt verða
hólpinn!
Sigurður Pálsson.
21