Skák - 15.12.1957, Blaðsíða 5
SKÁK mámaðarins
Eítir Itr. 31. Euwe
Eftir heimsstyrjöldina síðari kom mikll gróska í
skáklífið í öllum heiminum Sérlega athyglisvert
er, hve sterkar skákþjóðir Mið- og Austur-Evrópu-
löndin eru orðin.
A stuttum tíma hefur Júgóslavíu tekizt að kom-
ast í annað sætið í skákheiminum, og þar virðist
heldur enginn skortur á nýliðum, sem meira að
segja stundum byrja feril sinn með glæsilegum
árangri. í þessu sambandi má minna á hinn at-
hyglisverða árangur Ivkovs í tveim sterkum skák-
mótum í Suður-Ameríku, og árangur Matanovics
í Hamborg og Beverwijk.
Einnig Ungverjum hefur tekizt aö halda sæti
sínu meöal sterkustu skákþjóðanna, meðal annars
af þvi, að beztu Ungverjarnir voru þekktir þegar
fyrir stríð (Szabó, Barcza og aðrir).
Aðeins í Póllandi hefur orðið greinileg afturför.
Þeir tímar, þegar pólska hðið, með Rubinstein og
Tartakover í broddi fylkingar, var eitt af þeim
hættulegustu á Olympíumótunum, virðast liðnir
fyrir fullt og allt. Sem stendur er Sliwa sterkasti
Pólverjinn, en ekkert útlit er fyrir, að hann muni
nokkru sinni ná sama styrkleika og hinir frægu
fyrirrennarar hans.
Nú síðustu árin — sérstaklega eftir tvö síðustu
Olympíumót —■ hafa Búlgarar og Rúmenar sótt
mjög á í Búlgaríu er það sérstaklega hinn ungi
skákmeistari Padevsky, sem náði ágætum árangri
í Moskvu, bæði í Olympíumótinu og í Minningar-
móti Aljekíns. Einnig Búlgaríumeistarinn í ár,
Neikirch, hefur staðizt þolraunina í svæðakeppn-
inni í Sofíu. Ekki er loku fyrir það skotið, að hann
geti enn unniö sér þátttökuréttindi í millisvæða-
keppninni.
Eftir skákmótið í Búkarest 1953 var búizt við
miklu af Ciocaltea. Nú virðist hins vegar ekkert
útlit fyrir að hann nái nokkru sinni stórmeistara-
styrkleika. Hins vegar hefur Balanel náð góðúm
árangri undanfarið í skákmótum í Rúmeníu.
Balanel er ekki lengur ungur, en hann skortir
ekki frískleika æskunnar í taflinu Hann hefur
næmt auga fyrir leikfléttum, er óhræddur við að
tefla á tvísýnu og hefur mikinn sigurvilja. Þessir
eiginleikar valda því, að hann er hættulegur and-
stæðingur fyrir hvaða skákmann sem er.
í eftirfarandi skák koma áðurtaldir eiginleikar
hans vel í ljós.
Skák nr. 607.
Ploesti (Rúmeníu) 1957.
Hvítt: J. BALANEL.
Svart: Dr.............i).
Sikileyjarvöm, Najdorf-afbrigðið.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5
Gautaborgar-árásin er aftur kom-
in úr tizku, en um tíma var hún
álitin leiða til vinnings fyrir hvit-
an. Larsen hefur náð góðum ár-
angri á móti henni með svart, og
einnig í síðasta rússneska meist-
aramótinu náðist góður árangur
á svart.
6. — Rbd7 Venjulega er leikið
6. - e6, en þessi leikur er ef til
vill nothæfur.
7. Bc4 h6 8. Bh4 Einnig kemur
8. Be3 til greina. Svartur verður
þá að ráða fram úr hvernig hann
ætlar að koma kóngsbiskupi sín-
1) Því miður hefur falliö niður
í handriti nafn þess, er stýrir
svörtu mönnunum, og vannst ekki
tími til að afla upplýsinga um það.
um í spiliö, t. d. 1) 8. - g6 9. f3
Bg7 10. Dd2 og svartur getur fyrst
um sinn ekki hrókað stutt. 2)
8. - e6 9. O—O og nú dugir 9. -
Be7 ekki, vegna 10. Bxe6! fxe6 11.
Rxe6 Da5 12. Rxg7f og 13. Rf5
með sterkri sókn.
8. — b5 Leikurinn veikir reit-
inn c6, sem hvítur getur brátt
fært sér í nyt. Bezt var 8. - g6.
9. Bd5! Ef 9. Rd5, þá 9. - Bb7
(ekki 9. - bxc4, vegna 10. Rc6).
9. — Rxd5 10. exd5 Nú hótar
hvítur 11. Re6 (ll.-fxe6? 12.
Dh5t).
10. — Rb6 11. 0—0 Bb7
Athyglisvert er 11. - b4 12. Rc6
Dc7, og nú 1) 13. Rxb4? Dc4! og
vinnur mann. 2) 13. Re4 Rxd5
14. Dxd5 Bb7 (14. - e6? 15. Da5!
og vinnur mann); 15. Rxd6f Dx
d6 16. Dxd6 exd6 17. Rxb4 með
afgerandi yfirburðum.
12. Hel Valdar d5 óbeint.
12. — Dd7 Til þess að koma í
veg fyrir 13. Rf5. Eftir 12. - Rxd5
kemur 13. Rf5 Rxc3 14. RxdO'f
Kd7 15. bxc3 með miklum yfir-
burðum. Eða 12. - b4 13. Rf5 bx
c3 14. Rxe7 Bxe7 15. Hxe7f Dxe7
16. Bxe7 Kxe7 17. Dg4 og hvitur
fær afgerandi sókn, þar sem
svörtu mennirnir geta ekki unnið
saman.
13. Df3 Eykur þrýstinginn á
veiku punktana c6 og f5. En sv.
hefur ekki sofnað á verðinum og
byrjar nú heiftarlega gagnsókn.
Aðalatriðið fyrir báða er að finna
leikfléttur.
13. — b4
S KÁK 99