Baldur - 26.01.1946, Page 2
Á v a r p__framhald.
En til jþess að lyfta slíku "Grettistaki" verða allir að
taka hðndum saman,- það er skilyrði fyrir viðgangi og þr6un
þessara mála.
Ef djarfhuga samstarf,af ásérplægni Qg einhuga,verður
sterkasti þátturinn í framtaki voru á komandi árum, þá tekst
okkur að "byggja upp Eskifjörð,'- þá tekst okkur að leysa þau
verkefni, sem "bíða dunnin, á giftusamlegan hátt.
Fyrir slíku samstarfi vilja fulltráar Alþýðuflokksins
heita sár. Þeir munu ávalt vinna að hagsmunamálum þorpsins,-
ekki með pappírsskrumi, heldur með virkri þáttt'ðku,í og hverj-
um þeim, sem starfa vilja að málefnum Eskifjarðar á framt-aks-
saman og raunhæfan hátt, munu þeir átrauðir lána fylgi sitt.
A - listinn er: framtakið - fr.elsið - lýðræðið.
"Kránkið" í hlíðinni.’
í fjárða tölublaði Dagfara birtist greinarstúfur,sem
nefnlst "Ofan ár hlíðinni". Eru það sundurlausir þankar,s.em
bera það með ser, að greinarhöfundur lifir ekki í hreinna
eða heilnæmara loftslagi, en við hár niðri á mdlinni.
í upphafi ritsmíðim sinnar, minnist hann á husnæðisvand-
ræði þorpsbáa, og lætur þá von í Ijósi, að ur þeim verði
bætt bráðlega. me.ð því, að notfær-a sén^ldgin um verkamanna-
bástaði, Er ekki nema gott eitt um sljákt að ’segja, og ég
honum Mldungis samdáma. En vel mætti hann minnast þess,fyrir
hvers atbeina þessi ldg eru til orðin. Það var jafnaðarmað-
urinn og alþýðuleiðtoginn Jón Baldvinsson og aðrir slíkir
alþýðuvinir,ár hans flokki, sem ldgðu hornsteininn að þessu
menningarmá.li alþýðunnar,og sem alþýðuf lokksmaðurinn Einn-
ur Jónsson, fólagsmálaráoherra hefir endurbætt og fullkomnað
með nýju frumvarpi,sem nú liggur fyrir Alþingi. Þetta er eitt
af mdrgu, sem sannað getur þér og þínum samherjum, að Alþýðu-
flokkurinn er alls ekki dauður og ahrifalaus, eins og þér
þóknast að orða það,- heldur sístarfandi fyrir hag og velferð
alþýðunnar.
Næst er það framboðslisti "Kratanna" sem þú dæmir af visk-
u þinni. Þar er hrúgað saaansvo miklum fjarstæðum- og.mótsdgn-
um að furðu gegnir. Og þar.eð ritnefnd Dagfará hefir treyst.
sér að flytja slxkt í blaði sínu, verður aö 'álíta, að flokk-
ur þeirra hafi enga stefnu. Aðallega eru tveir ef.stu menn
listans ómdgulegir, að þínum dómi, vegna þess að þeir eru
virkir þátttakendur í atvinnulífinu. Forstjórá neytendasam-
taka fólksins segir bú auðvaldssinna,- verzlun alþýðunnar
auðvaldshring og heildsalaklíku. Hvað segja eskfirskir kjós-.
endur um slíkar staðhæfingar? Ætli þeim gangi ekki illa að
melta þær? Og hverju? mun þessi skriffinnur sósialistanna
svara, ef hann yrði krafinn skýringa á þessum ályktunum?
Nei, þessi skúmaskotsmaður mun vissulega engu svara. En vfs
er hann til að haldá áfram þ-essum meinfýsna áróðri, sem
engum heiðarlegum manni er samboðinn.
Þá er Hraðfrystihúsframkvæmdunurj helgaður einn kafli í
grein þessari. Þarvsegir meðal annars:"kratarnj|r gera mikið
að því að eigna sér ýmsar framkvæmdir,sem mælast vel fyrir
hjá almenningi'.’ Vill ekki þetta skriffinnsku-fyrirbrygði
kommúnista upplýsa hvar "Kratarnir" hafa stært^sig af verk-
um annara. Mun ekki sönnu nær, að það séu kommúnistar eða
sósialistar,- hvort nafnið sem hentar þeim betur nú,- sem
gera mikið að því, að eigna sér ýmsar framkvæmdir,eins og
frarahald á 4.síðu