Baldur - 26.01.1946, Blaðsíða 3
N í H BARNASKÍL I
. í Dagfara 14. þ.m. ér ritsmíð, sem nefnd er Skílinn,
í grein þessari gætir mkkurs 6kunnugleika um tildrðg að
■byggingu nýs sk6lahúss,-eins og það mál var rekið á sínum
tíma. Gegnir slíkt mikilli furöu, þar sem greinarh'éfundur
er sjálfur skálastjorinn.
í grein sinni segir skálastjórinn að fulltrúar frá
fræðslumálstjárninni, sem skoðuðu skólahúsið hafi litið
svo á, að byggja yrði nýjan skóla hór.Þetta er ekki rótt.
Sannar það afrit af bréfi fræðslumálastjóra til kennslu-
málaráðuneytisins dags.20.október 1941 þar sem ssgii ekki
er vikið að öðru en endurbótum á gamla húsinu og"talið að
það verði aö lokinni þeirri breytingu og endurbót,sem nýtt
og þarfnist. hvorki viðhalds né endurbóta um lengri tíma'.'
Kostnaðurinn við endurbæturnar var áætlaður 30 þús.kr.
í marsmánuði 1942 var ég staddur í Reykjavik. For ég
þá á fund Helga Elíassonar fulltrúa fræðslumálastjóra «g
tjáði honum, að ég teldi mesta óráð,að ekki yrði þegar
horfið að því ráði að byggja nýtt skólahús á Eskifiröi.
Taldi ég kostnaðaráætlunina ekki geta staðist, og nær sanni
mundi að reikna með 50 - 60 þúsund krónum í fyrirhugaöa
breytingu hússins, Fulltrúinn féllst þegar í stað á mitt
sjónarmið, og eftir fáa daga hafði ég fengiö uppdrátt að
nýju skólahúsi, sem áætlað var að mundi kosta uppkomið kr„
150 þúsund, miðað við byggingarkostna&«í Rvík. Ennfremur
fekk ég loforð fræðslumálstjórnarinnar fyrir framlagi rík-
issjóðs kr.50 þúsund, og síðast en ekki síst loforð fyrir
50 þúsund króna láni hjá Veðdeild Landsbankarrs1, út á l.veð-
ré.tt í hinui væntanlegu byggingu. Við útvegun þess láns
naut ég aðstoðar jafnaðarmannsins Jónasar Guðmundssonar,
sem jafnan hefir verið ólatur að aðstoða okkur Eskfirðinga
í einu og 'dðru.
Þegar ég svo kom að sunnan fór ég á fund hreppsnefndar
og lagði fyrir hana uppdráttinn ásamt kostnaðaráætlun,en
þar fekk málið skjóta afgreiöslu og var steindrepið á stund-
* inni.
Það voru £.ví mín verk, án nokkurs umboðs frá hreppsn«fnd
Eskifjarðarhrepps eða meðnefndarrnönnum mínum í skólanefnd,
að mál þetta var tekið til ajrhugunar,- *g ekki er,með neinni
sanngirni,hægt að ásaka mig þótt ráðist væri í endurbætur
á gamla húsinu.
Mér þætti æskilegt,að skólastjórinn gæfi frekari^skýr-
ingu á því hverja hafi skort "einhug cg viljafestu" í máli
þessu. Ennfremur af hvaða ástæöu hann telur þáverandi skóla-
nefnd einungis hafa verið "hlynta" því aö byggöur yrði nýr
skóli,- þar sem skólanefndin stóð einhuga að þessu máli #ft-
ir að ég kom að sunnan með uppdráttinn *g kostnaðaráætluh-
ina.
Mig furðar svo sem ekki á þv£,þótt skólastjórinn halli
hér réttu máli og fari með dylgjur, því þaö munu vera eins-
konar inngangsorð £ Sósíalistaflokkinn er sanni hæfni hans
sem góös "félaga".
Arnþór Jensen
* \
A-LISTINN E R L ^I S T I ALÞfÐUNNARÍ
HVER VILL EKKI STUÐLA A Ð KOSNINGU
þeirra Friðrikku Sæmundsdóttur og
Gunnhildar Steinsdóttur £•<
skólanefnd Eskifjarðar
KJÖSIÐ A-LISTANN 1
?