Skák - 01.02.1998, Page 5
£=\
SKÁK
J^L
Ö
SKÁKSAM BAIMD
■*—- ÍSLAMDS
Útgefandi:
Skáksamband íslands
Ritstjóri:
Þráinn Guðmundsson
Ritnefnd:
Ágúst Sindri Karlsson
Áskell Örn Kárason
Þráinn Guðmundsson
Jóhann Þórir Jónsson
Umbrot:
Hallur Guðmundsson
obelix@islandiaJs
Framkvæmdastjóri:
Ásdís Bragadóttir
Auglýsingar:
Einar H. Guðmundsson
Utanáskrift:
Skáksamband íslands
Pósthólf 8354
128 Reykjavík
Sími: 568 9141
Fax: 568 9116
tölvupóstur: siks@itn.is
Efni m.a.:
Heimsmeistaramótið
í Groningen
Nordic Grand Prix mótið
Guðmundar Arasonar mótið
Lærið að flétta
Rabb
Frægt varð það á seinasta ári er tveir kirkjunnar þjónar hittust í
heita pottinum í Sundlaugunum með allsérstæðum afleiðingum
eins og menn muna.
Sá sem þetta skrifar er tíður gestur í nefndum Sundlaugum og
þar ber vissulega margt á góma í rabbi við kunningja, nema
hvað! Þótt eitt slíkt á Laugarbakka milli jóla og nýárs valdi vart
umróti í þjóðarsálinni líkt og hjá klerkunum, hefur það orðið
mér umhugsunarefni í upphafi hins nýja árs 1998.
Annar rabbenda er kunnur skákmeistari af eldri kynslóð og um-
ræðuefnið framtíð Skákar við breyttar aðstæður. Honum létti
mjög er ég gat frætt hann á því, að Skáksamband íslands hefði
tekið við boltanum og myndi gefa blaðið út árið 1998 a.m.k., en
eftir það yrði orðið nokkuð ljóst hvort yfirleitt væri grundvöllur
fyrir útgáfu skáktímarits á Islandi.
Báðir töldum við að þörfin væri brýn, en tómlæti skákmanna,
þ.e. fáir kaupendur, myndi gera fjárvana samtökum útgáfuna
óbærilega ef ekki yrði breyting þar á.
Þar sem við erum báðir bjartsýnismenn og veðrið var yndislegt
þennan dag vildum við ekki dvelja lengi við þann þanka, þótt
sporin hræði vissulega, en talið beindist að efni "málgagnsins":
Hvernig á efni skáktímarits að vera á tölvuöld, tíma gagna-
grunna og "skákbeisa" (hvílíkt orð) - alnets sem varpar skákum
beint úr höndum meistaranna heimshorna á milli, og annarra
undra tæknialdar?
Þeir sem keppnisskák stunda hafa margvelt sér upp úr nýjustu
snilld meistaranna á stórmótum vítt og breitt um heimsbyggði-
na löngu áður en prentvélar setja sömu snilld á pappír mánaðar-
rits hér norður í höfum. Er það þá ekki úrelt þing að birta marg-
ar skákir í hverju blaði með löngum skýringum? - og ef svo er,
hvað má þá koma í staðinn til að fá skákunnendur til að flykkja
sér um málgagnið? Ekki fundum við félagar á Laugarbakka
óbrigðula uppskrift sem til vinsælda dygði. Við töldum þó ekki
vitlaust að leita til lesenda um uppástungur og hugmyndir að
efnisvali og er þeirri ábendingu hér með komið áleiðis.
Við töldum þó frumskilyrði að blaðið kæmi út reglulega, því
yrðu kaupendur að geta treyst! Hugmyndin er reyndar að
Frh á bls. 29
SKÁK 3