Skák


Skák - 01.02.1998, Síða 6

Skák - 01.02.1998, Síða 6
Leifur H. Jósteinsson fæddur 26. desember 1940 látinn 17. janúar 1998 Þótt dauðinn sé órjúfanlega tengdur lífinu, hrökkvum við ætíð við er hann heimtir sinn toll. Dauði Leifs Jósteinssonar kom því illa við þá mörgu skákvini sem hafa ferðast með honum um skáklendurnar síðustu nær fjóra áratugina, en hann var aðeins 19 ára er hann árið 1960 vakti fyrst athygli fyrir sigur á afmælismóti Skákfélags Hafnarfjarðar. Meðal keppenda á því móti voru sterkir, þekktir skákmenn frá Reykjavík, t.d. Lárus John- sen, Björn Þorsteinsson og Bragi Kristjánsson, en Leifur sigraði sem sagt með yfir- burðum, vann átta skákir og gerði eitt jafntefli í níu umferða móti. Um framgöngu hans í mótinu segir í Skák frá þeim tíma: "Úrslit mótsins komu nokkuð á óvænt — Leifur tók forystuna strax í byrjun og hélt henni til loka mótsins. Athyglisvert er það, að Leifur er aðeins 19 ára að aldri og má því mikils af honum vænta í framtíðinni." Skákin var því förunautur Leifs frá unga aldri og gleðigjafi. Hann efldi skáklíf á Fáskrúðs- firði, þegar hann var kennari þar, á æskustöðvunum á Pat- reksfirði blés hann í glæðurnar og hagsmunamálum skák- manna lagði hann lið er hann var kosinn í stjórn Skák- sambands íslands árið 1984. Sá sem þetta ritar minnist upp- gangsáranna í skák á níunda áratugnum er Leifur var gjald- keri S.I. um sinn og ætíð áræðinn og úrræðagóður, en umfram allt skemmtilegur félagi. Ogleymanlegt er það þegar 4 SKÁK

x

Skák

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.