Skák - 01.02.1998, Page 9
Reykjavík þar sem lokamótið
fór fram. Fjórtánda sætið á mót-
inu var boðssæti og kom í hlut
Finna, þar sem enginn Finni
hafði unnið sér þátttökurétt í
formótunum.
Tólf af keppendunum voru
stórmeistarar, og mótið í X.
styrkleikaflokki og ljóst að hart
yrði barist á Grand Hotel
Reykjavík þar sem teflt var við
hinar bestu ytri aðstæður.
Það var enda eftir miklu að
slægjast, þar sem verðlaun voru
óvenjuhá á norrænan mæli-
kvarða, 1. verðlaun t.d. 5.500 +
1.000 dalir auk fyrsta Bikar-
meistaratitils Norðurlanda í
skák.
Hér var einnig teflt um Norður-
landameistaratitilinn í skák þar
sem stjórn Skáksambands
Norðurlanda hafði samþykkt
að mótið skyldi einnig teljast
Skákþing Norðurlanda 1997 og
voru þá 100 ár liðin frá fyrsta
Norðurlandaþinginu 1897 í
Stokkhólmi.
Það var því strax nokkur
spenna í loftinu er keppendur
söfnuðust saman til að draga
um töfluröð að kvöldi þriðju-
dagsins 8. október.
íslendingar áttu flesta fulltrúa í
hópnum, sem annars leit þann-
ig út:
Þótt stig hafi litla merkingu
þegar út í baráttuna er komið
var þess vænst að baráttan um
sigurinn stæði ekki síst á milli
Norðurlandameistarans Curts
Hansen og stigahæsta kepp-
andans Jóhanns Hjartarsonar,
en það kom strax fram í fyrstu
umferðunum, að fleiri ætluðu
sér stóran hlut en "2600-stiga-
mennirnir". Þótt landarnir
Hansen og Schandorff gerðu
stutt áreynslulaust jafntefli í 1.
umferðinni heyrði það til
undantekninga og baráttan var
í fyrirrúmi allt mótið. Það hefir
orðið gleðileg breyting frá því
er stórmeistarajafntefli tröllriðu
húsum á stórmótum hér á
árunum og áhorfendur hurfu
sárleiðir heim eftir hverja
umferð. Hér gerðust ævintýri í
hverri umferð og það kunnu
fjölmargir áhorfendur að meta.
Ekki var langt liðið á mótið, er
tveir keppenda höfðu skorið sig
úr hópnum og fylgdust að
umferð eftir umferð. Ef annar
gerði jafntefli urðu lokin hin
sömu hjá hinum, ynni annar
gerði hinn eins og stóð svo allt
til 12. umferðar og spennan var
í algleymingi. Þetta voru
Jóhann Hjartarson og Jonny
Hector hinn sænski sem tefldi
ákaflega hvasst og skemmti-
lega. Eftir sex umferðir voru
þeir félagar efstir með 5 vinn-
inga og aðrir keppendur dregist
Danirnir Lars Schandorff og Curt Hansen mættust í 1. umferð. Þeir urðu
jafnir í 3. - 4. sæti
1. SM Curt Hansen Danmörku 'Bikarstig" 65.79 Elostig 2600
2. SM Jóhann Hjartarson Islandi 50.17 2605
3. SM Hannes H. Stefánsson Islandi 49.50 2545
4. AM Tiger Hillarp-Persson Svíþjóð 47.00 2445
5. SM Rune Djurhuus Noregi 39.72 2525
6. SM Einar Gausel Noregi 35.46 2540
7. SM Jonathan Tisdall Noregi 35.00 2480
8. SM Þröstur Þórhallsson Islandi 33.42 2510
9. SM Ralf Akesson Svíþjóð 30.93 2520
10. SM Helgi Ass Grétarsson Islandi 25.00 2475
11. SM Jonny Hector Svíþjóð 24.63 2470
12. SM Lars Schandorff Danmörku 20.89 2505
13. John Arni Nilssen Færeyjum 2315
14. SM Heikki Westerinen Finnlandi gestur 2410
SKÁK 7