Skák - 01.02.1998, Side 10
Frá mótsstað á Grand Hótel Reykjavík, en aðstæður voru mjög góðar
verulega aftur úr. Danirnir
Hansen og Schandorff og
Hannes Hlífar koniu næstir
með 3Vi vinning. Hannes dróst
svo aftur úr á lokasprettinum
en Danirnir héldu sínu þótt
ekki nálguðust þeir þá Jóhann
og Hector.
I 7. umferð mættust þeir félagar
og sviku ekki málstaðinn! Skák
þeirra varð æsispennandi og
líklega sú skemmtilegasta í
mótinu eins og menn geta sann-
fært sig um hér á eftir. Um
stund virtist halla ískyggilega á
Jóhann, en er púðurreyknum
létti og sást til átta var ekki
ástæða til að halda baráttunni
áfram og samið um skiptan
hlut. Eftir 11 umferðir voru
þeir enn jafnir með 9 vinninga,
en í 12. umferð náði Jóhann
forystu með sigri á Westerinen
meðan Hector gerði jafntefli við
Schandorff. Oneitanlega stóð
Jóhann betur að vígi í seinustu
umferð þar sem hann hafði
hálfs vinnings forskot og and-
stæðingur hans Rune Djurhuus
"léttari", a.m.k. á pappírnum en
Curt Hansen, sem Hector átti
að glíma við. Það kom enda í
ljós að Curt Hansen, sem
kominn var á skrið í loka-
umferðum mótsins eftir fremur
litlausa byrjun, vann sína skák
örugglega meðan Jóhann gerði
stutt jafntefli við Djurhuus.
Jóhann Hjartarson sigraði því
með glæsibrag á þessu fyrsta
"Bikarmóti Norðurlanda" og
varð um leið Skákmeistari
Norðurlanda 1997. Hann hlaut
IOV2 vinning og tapaði ekki
skák einn keppenda.
Nokkuð óvænt varð þannig
Hector í öðru sæti með 9Vi
vinning, en hann var vel að því
sæti kominn, hann tefldi manna
djarfast og tók ótrauður þá
áhættu sem slíkri taflmennsku
fylgir.
Curt Hansen hefir vafalaust
ætlað sér stærri hlut en tap
gegn Jóhanni snemma móts og
nokkur linkuleg jafntefli gerðu
út um sigurvonir hans. Hinn
Daninn Lars Schandorff var
hins vegar í essinu sínu og lenti
í 3.-4. sæti ásamt Curt Hansen
með 8V2 vinning.
Frammistaða Hannesar Hlífars
Stefánssonar olli nokkrum von-
brigðum, þótt 7 vinningar og 6.-
7. sæti hafi í raun ekki verið svo
slæmt. Slysalegt tap gegn
Westerinen dró hann mjög
niður. Helgi Ass og Þröstur
Þórhallsson náðu sér aldrei á
strik og geta varla verið
ánægðir með frammistöðu sína.
Þröstur sem vanalega teflir
mjög hvasst sættist t.d. á sjö
jafntefli; það er ólíkt honum.
Helga Ass virtist einnig vanta
þann fítonskraft sem oft hefir
einkennt taflmennsku hans.
Frammistaða Norðmannanna
kom ekki á óvart, nema helst
dapurt gengi Tisdall.
Eftir skjótan frama í fyrri
mótum bjuggust menn við
tilþrifum af Tiger Hillarp-
Persson, en hann var heillum
horfinn, vann aðeins eina skák
og lenti í næstneðsta sæti, en
John Arni rak svo lestina og var
eins og lamb í úlfahjörð innan
um alla titilhafana og "stiga-
mennina", sem töldu hann
skyldupunkt og þjörmuðu að
honum í hverri skák. Hans
hlutskipti var því ekki létt og
galt hann greinilega reynslu-
leysis síns, því að oft fékk hann
traustar stöður sem andstæðin-
garnir "sviðu" í lokin.
Um nánari úrslit sjá meðfylg-
jandi mótstöflu.
Skáksamband Islands hélt
8 SKÁK