Skák - 01.02.1998, Page 22
vegar hvort verðlaunaféð
myndi "mæta" á staðinn, en
þegar til kom reyndist svo vera.
A opnunarhátíðinni lýsti forseti
FIDE því yfir að hann ætlaði að
tryggja að mót þetta færi fram
næstu 10 ár, með sömu verð-
launafjárhæðum. Það á hins
vegar eftir að koma í ljós hvort
og hvernig þessar yfirlýsingar
ganga eftir.
Þeir Islendingar sem áttu rétt til
að taka þátt í mótinu voru
Jóhann Hjartarson, Margeir
Pétursson og Helgi Áss
Grétarsson. Þeir tveir fyrr-
nefndu höfðu öðlast réttinn á
svæðamóti sem haldið var árið
1995, en Helgi Áss fékk
keppnisrétt þegar hann varð
heimsmeistari ungmenna árið
1994. Island var í hópi þeirra
landa sem áttu flesta keppen-
dur og í því efni skutum við
hinum Norðurlöndunum ref
fyrir rass því við áttum fleiri
keppendur en hinar þjóðirnar
samtals, því einungis Ulf
Anderson og Curt Hansen
komust í mótið frá
frændþjóðum okkar.
I fyrri kappskák fyrstu umferð-
ar tefldi Margeir Pétursson með
hvítu gegn Lembit Oll frá
Eistlandi og upp kom katalónsk
vörn. Margeir náði ágætri
stöðu en Ollinn er ýmsu vanur
og með nokkrum nákvæmum
leikjum náði hann frum-
kvæðinu. Á örlagaríku augna-
bliki í skákinni missti Margeir
af möguleika á að komast út í
jafnteflislegt endatafl og tapaði
skákinni um síðir. Á sama tíma
gerði Helgi Áss átakalítið jafn-
tefli með hvítu gegn spænska
stórmeistaranum Miguel
Illescas. Jóhann tefldi með
hvítu við Sarunas Sulskis frá
Litháen, sem er frægastur fyrir
yfirlið í viðureign hans og
Margeirs Péturssonar á Olym-
píumótinu 1994. Byrjunin var
uppskiptaafbrigði drottningar-
bragðs þar sem Jóhann hrókaði
langt og Litháinn hóf þegar
peðasókn á drottningarvæng.
Eitthvað lék hann þó
ónákvæmt því Jóhann náði
yfirhöndinni sem hann hélt
þrátt fyrir að Sulskis fórnaði
skiptamun til að flækja taflið. I
úrvinnslunni urðu Jóhanni hins
vegar á slæm mistök, sem gáfu
andstæðingi hans kost á að
fórna manni og ná þráskák.
Síðari kappskák fyrstu umferð-
ar var tefld 10. desember og
höfðu allir Islendingarnir svart.
Menn voru hæfilega bjartsýnir
en staðráðnir í að berjast til
þrautar. Margeir tefldi forn-
indverska vörn en Oll tefldi vel
og fékk yfirburðastöðu. Mar-
geir sá því sitt óvænna og bauð
jafntefli sem Olli þáði. Þar með
var Margeir dottinn úr keppni.
Helgi Áss sýndi hins vegar allar
sínar bestu hliðar og tefldi eftir-
farandi skák gegn Illescas.
- Skýringar Helga Áss -
Ulescas- Helgi.
I einvígi þar sem eingöngu eru
tefldar 2 skákir skipta taugar og
góð sálfræði gríðarlegu máli.
Ein helsta forsendan fyrir því
að hafa stjórn á taugum sínum
er góð líkamleg og andleg líðan.
Þegar ég var að undirbúa mig
fyrir heimsmeistaramótið hóf
ég að synda reglulega. Þetta
hjálpaði mér mikið en það sem
olli straumhvörfum í
undirbúningi mínum voru
fundir okkar Gunnars
Eyjólfssonar leikara. Þó að við
hittumst eingöngu nokkrum
sinnurn veitti hann mér
ómetanlegan innblástur og
kraft. Sú ró og orka sem ég
hafði yfir að ráða í eftirfarandi
skák hefði ekki orðið til án hans
aðstoðar.
1. d4
í undirbúningi mínum fyrir
HM hafði ég einblínt á að laga
byrjunarval mitt gegn 1. e4. Eg
Úr keppnissalnum við upphaf heimsmeistarakeppninnar ískák 1997.
20 SKÁK