Skák


Skák - 01.02.1998, Page 25

Skák - 01.02.1998, Page 25
Það var ekki fyrr en núna sem ég náði að mynda mér heil- steypta áætlun til að innbyrða vinninginn. Staðan er enn unnin en engu að síður var mikilvægt að átta sig á helstu markmiðum svarts. I fyrsta lagi er ljóst að hvíti riddarinn má ekki komast til f3 þar sem hann færi svo til e5. I annan stað er ljóst að svartur verður að halda d-línunni í því augnamiði að koma í veg fyrir að hvíti kóngurinn komist til drottn- ingarvængsins. I þriðja lagi á svartur að fara að ýta drottn- ingarvængspeðum sínum áfram og mynda sér frípeð. Eins og framhald skákarinnar sýnir nær svartur fram þessum markmiðum sínum. 42. Rbl Bd5 Valdar f3 reitinn og kemur í veg fyrir að riddarinn komist þan- gað. Jafnframt ryður hann braut fyrir c-peðið. 43. Rc3 Bb3 44. Ke2 b4 45. Rbl Bc4+ 46. Kel Bd5 47. Kd2 c4 48. Bxb6 Kxb6 49. Ke3 c3 50. bxc3 Ba2 51. cxb4 Bxbl 52. Hf7 Ba2 53. Hf6 Hxf6 54. gxf6 Kb5 0-1 Þar með var Helgi kominn í aðra umferð, flestum að óvörum. Hann er hins vegar frábær keppnismaður og virðist alltaf ná sínu besta þegar mikið liggur við. A meðan á þessu gekk tefldu Sulskis og Jóhann spánskan leik. Staða Jóhanns var mjög þröng um tíma. Hann náði síðan að létta á stöðunni og vinna peð, en þeir yfirburðir nægðu ekki til vinnings. Þeir kappar þurftu því að tefla tvær atskákir. I fyrri atskákinni hafði Jóhann svart og tefldi franska vörn. Eitthvað mistókst byrjunin og Jóhann fékk hart- nær tapað tafl. Hann reyndi að klóra í bakkann og fórnaði loks liði til að tryggja sér jafnteflið. Fórnin var á misskilningi byggð, en sem betur fór fann Sulskis ekki besta leikinn og skákin koðnaði niður í jafntefli. Sulskis var síðan öllum lokið í síðari skákinni. Jóhann - Sulskis. 1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4. g3 Bb4 5. Bg2 0-0 6. Rd5 Rxd5 7. cxd5 Rd4 8. Rxd4 exd4 9. Dc2 d6 10. 0-0 a5 11. e3 Bc5 12. b3 Df6 13. Bb2 Bf5 14. d3 Dh6 15. Bxd4 Bxd4 16. exd4 Hac8 17. Hael Df6 18. Dc3 b5 19. He3 b4 20. Dc4 Hfe8 21. Hfel Kf8 22. Db5 Hed8 23. Hf3 He8 24. Hee3 Dg5 25. Dxa5 Bg4 26.HÍ4 Hxe3 27. fxe3 c5 28. h4 Dg6 29. dxc5 Bh3 30. Bxh3 Dxg3+ 31. Bg2 Dxe3+ 32. Hf2 Kg8 33. Dxb4 g5 34. Dg4 Dxc5 35. Dxg5+ Kf8 36. Df6 Ke8 1-0 í aðra umferð mættu síðan allir stigahæstu skákmennirnir, að Gelfand og Karpov undan- skildum. Andstæðingur Jóhanns í þessari lotu var Hvít- Rússinn Aleksei Aleksandrov, mikill stöðuskákmaður og teflir vörnina sérstaklega vel. Þrátt fyrir sín 2660 elo-stig er Aleksandrov þessi óþekktur á Vesturlöndum, og mun hann hafa fengið stigin á mótum í gömlu austantjaldslöndunum. I fyrri kappskák þeirra hafði Jóhann svart og tefldi Nimso- indverska vörn. Jóhann fékk þrönga stöðu fyrir peð en Hvít- Rússinn komst ekkert áfram og í lokin var það Jóhann sem gerði árangurslausar vinn- ingstilraunir. A sama tíma gerði Helgi Ass, sem stýrði hvítu mönnunum, jafntefli gegn hinum þrautreynda rúss- neska meistara Jusupov, sem nú teflir fyrir Þýskaland. I síðari skák annarrar umferðar gerði Jóhann stutt jafntefli við Aleksandrov. Helgi Ass varðist hins vegar með slavnesku vörninni í annað sinn á mótinu. I þetta skipti náði hann hins vegar aldrei að jafna taflið og tapaði um síðir og lauk þar með þátttöku á mótinu. Jóhann tefldi síðan atskákir við Aleksandrov. Fyrri skákin þar sem Jóhann hafði hvítt var tíðindalítil og lauk með jafn- tefli. Seinni skákin var hins vegar æsispennandi. Jóhann náði fljótlega að jafna taflið með svörtu og náði betri stöðu. Hann missti síðan af bestu leiðinni og Hvít-Rússinn sem tefldi vörnina vel og varðist öllum hótunum. I jafnteflis- stöðu hélt Jóhann hins vegar áfram vinningstilraunum með þeim afleiðingum að staða hans hrundi og hann var að játa sig sigraðan. Þar með lauk þátt- töku Islendinga á þessu heimsmeistaramóti. I næsta tölublaði verður umfjöllun um Heimsmeistara- mótið framhaldið og kepp- endum fylgt fram í heims- meistaraeinvígið sjálft. skák23

x

Skák

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.