Skák


Skák - 01.02.1998, Blaðsíða 28

Skák - 01.02.1998, Blaðsíða 28
Nær er Rúnar að tefla við Jens Christian, fjær er Jón Garðar í viðureign sinni við John Arni. óformleg móttaka í skákheimili Havnar Telvinarfélag, sem var gestgjafi okkar fyrir hönd Talvsambands Færeyja. A laugardaginn hófst svo alvara lífsins með fyrri umferð landskeppninnar. Skákstjóri var Jákup Thomsen, sem lengi hefur verið frammámaður í skáklífi Færeyinga, m.a. for- maður Talvsamband Föroya og heiðursfélagi í Havnar Telvingarfélag. Jákup þessi er allra manna hressastur og ég held að ég verði að gera honum það til geðs að geta þess að hann er "ungkarl" eins og þeir segja í Færeyjum, þ.e.a.s. piparsveinn á óræðum aldri. Talsvert margir áhorfendur komu til keppninnar eins og jafnan áður, enda vekur hún athygli á eyjunum og er fylgt eftir með greinum í blöðum. Þarna mátti meðal annarra sjá "íslandsvininn" Eirík Jústinus- sen, fyrsta formann Taflsam- bands Færeyja. Eiríkur er mikill áhugamaður um samskipti þessarra grannþjóða, og tók nokkrum sinnum þátt í lands- keppninni á árum áður. Það er skemmst frá að segja að þrátt fyrir talsverða bjartsýni í her- búðum færeyska liðsins máttu þeir þola tap, 4-6, gegn Islandi í þessari fyrri umferð. Hér á eftir fara tvær skákir úr fyrri umferð. I viðureign Gylfa og Torkil er það Gylfi sem fær betra út úr byrjuninni og vinn- ur sannfærandi sigur eftir að Torkil lenti í miklu tímahraki. Hvítt: Gylfi Þórhallsson Svart: Torkil Nielsen 1. e4e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. Hel Rc5 7. Rxe5 Be7 8. Bxc6 dxc6 9. d4 Re6 10. Be3 0-0 11. Rc3 f6 12. Rf3 Bb4 13. Dd3 Bd7 14. Bd2 Bxc3 15. Dxc3 He8 16. Db3b6 17. He2 De7 18. Hael Df7 19. Be3 Had8 20. h3 Rf8 21. Bf4 Be6 22. Da3 a5 23. b3 Hc8 24. c4g5 25. Bg3 h5 26. Dcl Rg6 27. Dd2 Kf8 28. h4 gxh4 29. Rxh4 Rxh4 30. Bxh4 Kg7 31. Df4 Bg4 32. Ffxe8 Hxe8 33. Bxf6 Kg6 34. Dg5 Kh7 35. Hxe8 Gefið Hvítt: Sigurður Eiríksson Svart: Martin Brekká Eftir frekar rólega byrjun nær Sigurður undirtökunum. Mart- in reynir að flækja taflið og fómar peði í 22. leik. í 29. leik kemur mjög vafasamur leikur sem kostar hann mann. Eftir þetta verður skákin mjög flókin en Sigurður heldur ró sinni og stýrir skákinni útí endatafl sem hann vinnur af öryggi. Einstök úrslit voru sem hér segir Island Færeyjar Jón Garðar John Arni % - ’/2 Rúnar Jens Christian y2 - y2 Gylfi Torkil 1-0 Þór Torbjörn y2 - y2 Sigurjón Eyðun y2 - y2 Smári Steintór 0-1 Sigurður E. Martin 1-0 Gunnar Flóvin 0-1 Sigurður I. Bernhard 1-0 Sverrir Haldur 1-0 6-4 26 SKÁK

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.