Skák


Skák - 01.02.1998, Qupperneq 31

Skák - 01.02.1998, Qupperneq 31
eftir krákustíg yfir fjallið eða fari sjóleiðina, en einungis er hægt að lenda við "helluna" á litlum bátum í lygnu veðri, því engin er bryggjan. Um þetta hefur verið gerð heimildarmyn- din "700 meter fra fremtiden" sem er ekki síður heimild um líf fólksins þarna í fámenninu en bjartsýni í vegagerð. Þegar við höfum lagt að baki snarbrött þrep upp hamravegginn blasir við einstaklega fagurt dalverpi þar sem þessi litla byggð kúrir en fram af hamraveggnum steypist hár og tignarlegur foss. Allir sem vettlingi gátu valdið voru úti við heyskap en gáfu sér þó tíma til að spjalla við okkur aðkomumenn og stilla sér upp til myndatöku. Síð- degis héldum við svo aftur áleiðis til Þórshafnar, og nú í boð í Norðurlandahúsinu á þessu síðasta kvöldi okkar á eyjunum. Þar var boðið upp á færeyska rétti af hlaðborði og þjóðlega dagskrá, leikna og sungna. Rúsínan í pylsuend- anum var svo færeyskur hring- dans sem gestum bauðst að taka þátt í. Sigurður Ingvason slóst þar í hópinn sem fulltrúi okkar, undir dyggri hand- leiðslu Flóvin Næs, og treystum við nú að hann æfi með okkur sporin áður en til næstu Færeyjaferðar kemur. Guðmundur Arason hf. Smíðajám Skútuvogi 4,104 Reykjavík, sími 568 6844 Rabb frh. af bls. 3 blöðin verði átta á ári og komi út í febrúar, mars, apríl og maí og síðan í september, október, nóvember og desember. Þetta er að vísu fækkun um tvö blöð, en nógu stór biti til að byrja með. Kaupfélag Skagfirðinga Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur, sími 455 4500 Einnig töldum við mikilvægt að fréttir og umfjöllun um skák- mót yrðu að vera ferskar og birtast helst í næsta blaði eftir að mót fer fram. Lifandi nýjar, stuttar fréttir og tilkynningar frá taflfélögum þyrftu helst að vera í hverju blaði. Þannig gæti málgagnið þjónað sem tengiliður milli félaganna og skákmanna. THafnar- fjarðarbær Strandgötu 6, Hafnarfirði Hampiðjan hf., Bíldshöfða 9, 112 Reykjavík, sími 567 6200 Loks töldum við ekki saka þótt meiri léttleiki setti mark á blaðið í framtíðinni. Við sáum fyrir okkur að lesendabréf, stuttar aðsendar greinar auk nýrra fastra þátta gætu orðið það krydd er fjölbreytni yki og ekki myndu einstaka viðtöl og svipmyndir skemma fyrir. Er hér var komið vangaveltum okkar hafði fjölgað á Laugar- bakka. Þar var kominn alþing- ismaður, fyrrum ráðherra og velunnari íslenskra skákmanna. í spjalli um heimsmeistara- keppnina í Hollandi, varpaði hann fram þessari spurningu: "Hefir ekki "gengi" íslenskra skákmanna sigið í seinni tíð?" Spurningunni er hér með varpað til lesenda auk þess sem um hana verður fjallað í næsta rabbi. Þráinn Guðmundsson Grímsneshreppur Árnessýslu Húsavíkur- kaupstaður Ketilsbraut 9, Húsavík, sími 464 1222 Menntaskólinn við Hamrahlíð Reykjavík, sími 568 5140 íslenskir Aðalverktakar hf. Keflavíkurflugvelli Vatnsveita Reykjavíkur Eirhöfða 11,112 Reykjavík, sími 569 7000 SKÁK 29

x

Skák

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.