Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 16.08.2007, Blaðsíða 7

Bæjarblaðið Jökull - 16.08.2007, Blaðsíða 7
Eins og vígvöllur Greinilegt er að betur hefur gengið hjá kríunni að ná í æti í sumar en á síðásta ári, himininn er hvítur af kríum þegar ekiö er á milli Hellissands og Rifs, allir melar og vegkantar eru þaktir af bústnum ungum sem bíða eftir því að for- eldrarnir færi þeim síli eða annað í gogginn. Því miður er einnig mikið af ungum sem halda til á veginum og eru seinir til flugs, ef ekki er ekið varlega er hætt við að ekið sé á ungana. Greini- legt er að einhverjir skeyta ekki um að hægja á þegar ekið er þennan stutta kafla sem undirlagður er af kríunni því að vegurinn er eins og vígvöllur, þó að vegfarendur séu að tína upp hræin þá er ástandið orðið eins daginn eftir. Það lengir ekki ferðina um margar mínútur þó að hægt sé á ferðinni á milli Rifs og Hellissands þennan tíma sem ungarnir eru sem mest á veginum. Það verður að hafa það í huga að krían er einkennisfugl Snæfells- bæjar og því dapurt að ferðamenn og aðrir þurfi að horfa upp á þessi dráp á fuglinum. Hægjum á og hlífum kríunni. #KÆLIVERehf T S:530-3100 heimsókn í Gamla Rif Heimilisfólk Jaðars skelltu sér á kaffihúsið Gamla Rif í júlí og gæddu sér á heitu súkkulaði og tertum. Sævar Friðþjófsson mætti með nikkuna og spilaði nokkur lög. „Lóan er komin" var fyrs- ta lagið sem hann spilaði og sagði hann íbúm Jaðars og öðrum gestum að þetta hefði verið uppáhalds lag föðurs síns sem hann hefði oft sungið fyrir þau börnin. Væri þetta í fyrsta skipi sem hann spilaði þetta lag á nikkuna sína í gamla eldhúsinu henn- ar mömmu. Að sögn gesta var þetta mjög notaleg og skemmtileg stund. Vöruafgreiðsla að Norðurtanga 1 Simi 431 5613 - 895 5613 - 899 5613 - 899 5624 - netf. vorur@simnet.is ^Aialflutningar Vöruafgreiðsla að Skútuvogi 8^ Við útvegum akstur innanbæjar í Reykjavík Ferðir alla virka daga frá Norðurtanga 1 í Snæfellsbæ kl. 10 og frá afgreiðslu að Skútuvogi 1 í Reykjavík kl. 17 Strandganga Nú er um að gera að drífa sig í góða gönguferð áður en haustið leggst að. Síðasta skipulagða ferð sumarsins á vegum Þjóðgarðsins Snæ- fellsjökuls veður farin laug- ardaginn 18. ágúst kl. 11. Gengið verður með strönd- inni um stórbrotið hraun á milli Skálasnagavita og Beru- víkur. Sæmundur Kristjáns- son verður leiðsögumaður og mun fræða okkur um mannlíf og búskap í Beruvík og fuglalíf og nytjar í bjarg- inu. Gangan er 3. áfanginn af 6 í göngu eftir endilangri strönd þjóðgarðsins. Ferðin tekur um 5-6 kl.st og mikil- vægt er að vera í góðum skóm og með nesti. Hist verður við afleggjarann út á Öndveróarnes klukkan 10:45. Fólk verður ferjað til baka frá Beruvík að göngu lokinni. Þjóðgarðurinn Snæfells- jökull

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.