Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 30.04.2008, Page 2

Bæjarblaðið Jökull - 30.04.2008, Page 2
HEIM-SENDIR Vöruafgreiðsla að Norðurtanga 1 Sími 431 5613 - 895 5613 - 899 5613 - 899 5624 - netf. vorur@simnet.is VF5 VÖRUFLUTNINGASTÖÐIN Sími: 533 2211 Við útvegum akstur innanbæjar í Reykjavík Vöruafgreiðsla að Skútuvogi Ferðir alla virka daga fró Norðurtanga l í Snæfellsbæ kl. 10 og frá afgreiðslu að Skútuvogi 13 í Reykjavík kl. 17 Bæjarblaðið □ □ SNÆFELLSBÆ Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ. Blaðiö kemur út vikulega. Upplag: 800 Ab.maöur: Jóhannes Olafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617 Lionssundmót Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán héldu sundmót í samstarfi við sunddeild Víkings á sumardaginn íyrsta sem var s.l. fimmtudag. Öllum börn- um í Snæfellsbæ var heimil jDátttaka. Lionsklúbbarnir hafa haldið mót með sund- deildinni síðan 2001 og alltaf verið góð þátttaka, í ár var þátttaka í sundmótinu þó með slakara móti þar sem að innan við 30 börn og unglingar voru skráð til keppni miðað við tæplega 60 á síðasta ári en öll stóðu þau sig með stakri príði, mótió var haldið í sund- lauginni í Ólafsvík. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverri grein og svo fengu allir pizzu frá Hobbitanum í þátttöku- verðlaun. Eins og fyrri ár var sundráðið með veitinga- sölu á meðan á mótinu stóð og rann allur ágóði af þeirri sölu til styrktar starfi sund- deildarinnar. Ástæðuna fyrir slakari þát- töku í mótinu má líklega rekja til þess að langt er síð- an jafn margt hefur verið um að vera á Sumardaginn fyrsta og nú, messa var á Ingjaldshóli klukkan 11, sundmótið hófst um há- degi, klukkan 13 var dag- skrá á vegum Skógræktarfé- lagsins á Hellissandi í Tröð- inni, klukkan 14 var dans- sýning í Röstinni og tónleik- ar voru í Klifi klukkan 17. Til sölu Hábrekka 1 Ólafsvík. Gott mikið endurbætt einbýlishús á einni hæð. Húsið stendur á stórri 800 fm lóð með möguleika til stækkunar með viðbyggingu. og byggingu bílskúrs. Við húsið er timburverönd til suðurs og stór bakgarður og fallegt útsýni. Húsið hefur verið mikið endurbætt nýlega. svo sem nýjar hurður og gólfefni, eldhúsinnrétting og ný tæki ásamt baðherbergi og hluti af pípulögn. Nýlegir gluggar og gler í suðurhlið. í húsinu eru tvö svefnherbergi, forstofa, þvottahús og geymsla, baðherbergi, opið eldhús og stór stofa. V. 14,9m Áhvílandi gott lán til yfirtöku frá íbúðalánasjóði til 40 ára á 4,1S% vöxtum Brautarholt 20 Ólafsvík. Stór efri sérhæð og meðfylgandi bíslkúr. Hæðin er 5 - 6 herbergja með fjórum svefnherbergjum og tveimur stofum. Góðar svalir og pallur í bakgarði til suðurs. Sérstandandi bílskúr. Áhvílandi 14, 5m lán frá íbúðalánasj á 4,4% vöxtum Veitingahúsið Gilið. Fasteignin Grundarbraut 2 og rekstrar- félagið Kaffi Group. Húsið er innflutt bjálkahús og byggt 2006. Húsið er á tveimur hæðum, hæð og ris og skráð 196 fm, jarðhæðin er skráð 132 fm og risið 96 fm. Á inngangshæð er veitingasalur, bað- herbergi, eldhús og bar/afgreiðsluborð. Eldhúsiö er vel tækjum búið. Á 2. hæð er veitingasalur, útgangur á svalir og skrifstofa. Rekið hefur verið vinsælt veitingahús þar undanfarin ár. mat- og veitingasala, vínveitingaleyfi, aðstaða fyrir áhorf íþróttakappleikja og samskonar viðburða í sjónvarpi. Húsið stendur á besta staði í Ólafsvík í alfaraleið við lækinn og nálægt höfninni. Gott tækifæri fyrir framtakssama einstaklinga. Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 530 6500 Snæfellingar taka þátt í Gothia Cup 708 Ákveðiö hefur verið að sameiginlegt lið Snæfellsness í 4. flokki karla í knattspyrnu taki þátt í alþjóðlegu knatt- spyrnumóti sem fram fer í Gautaborg, 12. til 19. júlí n.k. Ætlunin er að gera slíkar ferðir að föstum lið hjá 4. flokki, þannig að farið verði með lið í kvenna- og karlal- flokki til skiptis. Liðsmenn eru allir tekju- litlir námsmenn sem eiga fullt í fangi með að standa straum af ferðakostnaði. Ferðanefnd hefur því ákveð- ið að aðstoða leikmenn við fjáröflun vegna feröarinnar. Verða allar góðar hugmyndir nýttar í þessu sambandi og óhjákvæmilegt annað en að íbúar Snæfellsness verði þessa varir með einhverjum hætti. Við vonum að drengj- unum verði vel tekið. Allar hugmyndir og aðstoð hvað þetta varðar eru vel þegnar. Undir forystu Baldvins Leifs ívarssonar starfa í ferða- nefnd; Sigrún Ólafsdóttir, Guórún Lilja Arnórsdóttir og Daði Jóhannesson. Ferðanefnd. #KÆLIVER ehf S:530-3100

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.