Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1982, Qupperneq 8

Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1982, Qupperneq 8
háskólanum, en lauk ekki prófi. Hann fór síðan á flakk um heiminn og kom víða við. Hann fór í gullleitarleiðangur til Hond- úras, fór á sjóinn og gerðist háseti á fraktskipum og sigldi bæði til Evrópu og Afríku. Heim kom hann á ný og settist að í knæpunni hjá Kobba Klerki (Jimmy the Priest’s) í New York og kynntist þar úrhrökum amerísks þjóðfélags og nýtti sér það and- rúmsloft síðar í verkum á borð við Anna Christie og The Iceman Cometh, og þar var það sem hann, i'ullur svartsýni, reyndi að fremja sjálfsmorð. Þá tók faðir hans hann með sér í leikferðirnar og starfaði hann þar bæði sem sviðsmaður og aukaleikari. En fljótlega hellti hann sér á ný út í ævintýrin og hélt til Buenos Aires þar sem hann lifði flækingslífi og svaf þá ýmist á bekkjum í al- menningsgörðum eða á ströndinni. En heim komst hann enn á ný frá göturæsum Buenos Aires og enn starfaði hann í leikflokki föð- ur síns og dvaldist á sumrum í New London þar sem hann starfaði eitt sumarið sem blaðamaður á bæjarblaðinu. (Faðir hans borgaði reyndar launin hans, en um það vissi enginn neitt nema ritstjórinn og James gamli O’Neill. Oðruvísi var enga vinnu fyrir strákinn að hafa). Og það var á einu af þessum sumrurn í New London að Eugene kvefaðist illilega og fékk upp úr því berkla og varð að fara á heilsuhæli. Það var haustið 1912, sama ár og Dagleiðin langa á að gerast. Það var síðan á heilsuhælinu að hann hóf fyrir alvöru að skrifa og undbúa lífsstarfið, því þar las hann kerfisbundið alla klassísku leikina og allt til nýskapandi höfunda samtímans, allt frá Æskílosi og Sófóklesi til Strindbergs og Shaw. Strindberg varð sá leikritahöfundur sem mest og varanlegust áhrif hafði á leikskáldið O’Neill. Þess ber reyndar einnig að geta að hann var orðinn í meira lagi bókhneigður áður en berklarnir bundu hann við heilsuhælið, því hann fylgdist mjög vel með öllu því nýjasta og „hneykslanlegasta” í bókmenntum samtímans. Þannig haföi hann þegar lesið Friedrich Nietzsche, og þá einkum „Also sprach Zara- thustra", en sú bók fylgdi honum allt lífið, og hann hafði lesið Oscar Wilde, Charles Algernon Swinburne, Charles Baudelaire í vondum þýðingum Arthur Symonds, Ernest Dowson og Dante Gabriel Rosetti, svo einhverjir séu nefndir. Allt það sem hér að ofan er skráð hljómar kunnuglega er við horfum á meistaraverk O’Neill, Dagleiðin langa inn í nótt, enda augljóst og margumrætt að leikritið er í meira lagi sjálfsævisögu- legt. Þegar lesin er besta heimildin um líf O’Neill, tveggja binda ævisaga leikskáldsins eftir Louis Sheaffer, kemur í ljós hversu 6

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.