Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1982, Page 12

Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1982, Page 12
fyrirgefningu í A Moon for the Misbegotten, og föður sínum og fjölskyldu í Dagleiðinni löngu. Tvö eldri handrit að Dagleiðinni löngu vitna um þetta, því þar eru miklu grimmilegri og heiftúðugri gerðir leiksins. Ef til vill má segja að hér sé hinn persónulegi til- gangur verksins, sá tilgangur sem sektin og ástarhatrið studdu, en þá er ekkert minnst á tilgang listamannsins sem hefur þörf fyrir að túlka sína tíð og sitt fólk og miðla um það boðskap. Það er athyglisvert að leikritið gerist árið 1912, en árin frá alda- mótum til fyrsta heimsstríðs eru einhver mesti bjartsýnistími sem Bandaríkin hafa upplifað, en hinsvegar er verkið samið árið 1940, í svartnættinu á öðru ári heimsstyrjaldar og í dögun nýrrar aldar ógna og gereyðingarmöguleika. Og það var á sama tíma að O’NeiII var að reyna að setja saman flokk níu leikrita um ameríska fjölskyldu og sögu hennar allt frá sautjándu öld til sam- tímans. Hann lauk aldrei þessu verki og aðeins eitt þessara leikrita er til heilt, en það er A Touch of the Poet, en hins vegar hætti hann að vinna við þá stóru hugmynd og settist við að semja Dag- leiðina löngu og það má einmitt segja að í Dagleiðinni Iöngu krist- allist yfirlýstur tilgangur leikskáldsins með níu leikrita flokknum. I blaðaviðtali var hann eitt sinn spurður um leikritaflokkinn stóra og svar hans má hæglega tengja Dagleiðinni, sem og raunar öðr- um verkum frá síðasta skeiði hans, verkum eins og The Iceman Cometh og Hughie. Hann sagði: „Eg er að vinna eftir þeirri kenningu að í staðinn fyrir að vera best heppnaða land í ver- öldinni, séu Bandaríkin tákn um stærstu mislukkun í veröldinni . . . Þau fengu allt í arf, meira en nokkur önnur þjóð . . . Helsta hugmynd þeirra er sá eilífi Ieikur að reyna að öðlast sál sína með því að eignast eitthvað utan við hana og glata þannig sál sinni og einnig því sem er utan við hana. Petta var eiginlega miklu betur orðað í Biblíunni, við erum augljósasta dæmið um „Því hvað stoð- ar það manninn, að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni?“ Ef við skoðum þessa grimmilegu fullyrðingu í ljósi Dag- leiðarinnar löngu sjáum við að verkið er meira en túlkun á eigin lífi og reynslu höfundar og þá um leið túlkun á lífi og reynslu allra manna, það er listræn umfjöllun um ákveðið samfélag á ákveðnum tíma, sem e.t.v. speglar öll samfélög á öllum tímum, það er listræn umfjöllun um fjölskyldu og verður um leið umsögn um fjöl- skyldur, hvort sem það er kjarnafjölskyldan eða sú fjölskylda sem ein þjóð er, fjölskylda þjóðanna eða þá mannkynsfjölskyldan. Á.l. 10

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.