Leikskrár Þjóðleikhússins


Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1982, Blaðsíða 22

Leikskrár Þjóðleikhússins - 21.11.1982, Blaðsíða 22
Frumuppfærslan á Dagleiðinni löngu inn í nótt Allt frá því að Konunglega leikhúsið (Dramaten) í Stokkhólmi sýndi leikritið Önnu Christie árið 1923, hefur það leikhús sýnt O’Neillsérstakanáhugaogræktarsemiogvarðhonumsemhöfundiafar mikils virði. Eflaust hafa vandaðar uppfærslur Dram- aten á Strange Interlude (1929) og Mourning Becomes Electra (1933) orðið þungar á metunum er O’Neill voru veitt Nóbelsverð- launin árið 1936. Það var stuttu eftir að Karl Ragnar Gierow varð listrænn stjórnandi leikhússins árið 1951, að Lars Hanson leikari (sem hafði leikið í Strange Interlude, Mourning Becomes Electra og Desire Under the Elms í uppfærslum leikhússins og lék síðan fyrstur hlutverk föðursins í Long Day’s Journey Into Night) sagði honum eftir Lillian Gish, mótleikara sínum í nokkrum þöglum Hollywood kvikmyndum, að O’Neill væri búinn að semja nýtt stórverk sem væri sennilega með bestu leikritum hans. f>að var svo fyrir tilstilli Dag Hammarskjöld, sem þá var orðinn aðalritari Sam- einuðu þjóðanna, að Gierow hitti Carlotta O’Neill, ekkju leikskáldsins. Haustið 1955 kom Gierow til baka til Stokkhólms með handrit að tveimur áður ósýndum leikritum eftir O’Neill, en það voru Long Day’s Journey Into Night og Hughie. I New York hafði Gierow varið miklum tíma með Carlotta O’Neill og þá hafði hún upplýst að ein af síðustu óskum Eugene O’Neill hafi verið að Long Day’s Journey Into Night yrði fyrst sýnt á Dramaten í Stokkhólmi og hann hafi ennfremur óskað þess að höfundarlaun- unum yrði varið til þess að stofna sjóð til styrktar ungum leikurum við leikhúsið. Eftir frumsýninguna í Stokkhólmi, þann 10. febrúar 1956, skrifaði Carlotta O’Neill Gierow bréf: „Þeim mun lengur sem ég Iifi, þeim mun furðulegra finnst mér lífið. Til dæmis 1954 þegar þú varst að leita að mér og ég var að leita að þér, án þess þó að vita að hverjum ég væri að leita. Þá var það Dag Hammarskjöld sém fann mig-það varþessi reyndi samningamaðursem kom okkurí sam- band-ogviðkomumstaðþvíaðþúogO’Neillogéghöfðumöllþaðsama íhuga.“ 20

x

Leikskrár Þjóðleikhússins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leikskrár Þjóðleikhússins
https://timarit.is/publication/2016

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.