Alþýðublaðið - 26.02.1926, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐID
3
deild Landsbanka Islands til aö
gefa út ný bankavaxtabréf. (Sjá
blaðið i fyrra dag!). — Frv. um
kynbætur hesta var til 1. umr.
Var því vísað til 2. umr. og land-
búnaðarnefndar.
Frumvarp
um að bæta laun ljósmæðra flyt-
ur Halldór Steinsson. Eftir því
eiga þær að fá 400 kr. árslaun
í sveitum, er hækki um 50 kr.
þriðja hvert ár upp í 700 kr.,
og 1200 kr. árslaun í kaupstöðum,
er hækki á sama hátt um 100
kr. í senn upp í 1500 kr. Þær
hafi og dýrtíðaruppbót og ókeyp-
is síma og eftirlaunarétt, sem
nemi eftir 10 ára starf þriðjungi
árslaunanna, en helmingi þeirra
eftir 15 ára starf eða iengra auk
dýrtíðaruppbótar. Sem greinar-
gerð frv. fyigir því skjal frá Ljós-
mæðrafélagi Islands, þar sem 80
ljósmæður kveðast ekki geta hald-
ið áfram starfi sínu, ef kröfum
þeirra um launabætur verði ekki
sint. — Munu og flestir verða að
viðurkenna, að laun þeirra séu
ósæmilega lág.
— Meiri hluti allshn. n. d. hefir
sltilað áliti um frv. Jóns Baldv.
um, að sextugir menn séu ekki
sviftir réttindum vegna styrkþágu.
Vilja þeir vísa því frá með dag-
skrársamþykt.
Góður afli.
Hafþór koni í gær af veiðum
m,eð 99 skippund af fiski eftir 7
daga útivist.
Um dagima og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Árni Pétursson, Uppsöl-
um, sími 1900.
Togararnir.
Gulltoppur kom af velðum í
morgun með 1100 kassa. — Rán
og Imperialist eru nýlega komnir
til Hafnarfjarðar frá Englandi.
ísfiskssala.
Ari seldi í gær afla sinn fyrir
940 sterlingspund, Baldur fyrir 1053
og Karlsefni fyrir 1034, og hafn-
firsku togararnir: Ver fyrir 900,
Víðir fyrir 601 og Ýmir fyrir 742
sterlingspund.
Veðrið.
Hiti mestur 3 st. (á Seyðisf.);
minstur 6 st:. frost (á Grímsst.).
Átt víðast suðvestlæg; fremur hæg.
Loftvægislægð fyrir norðvestan
iand. Veðurspá: Suðvestlæg og vest-
læg átt. Hríðarveður á Suður- og
Vesturlandi. I nótt: svipað veðurlag,
en kaldara.
Útvarpsstöðin.
Hvers vegna sendir hún hvorki út
ræður, grammófónmúsik né fyrir-
lestra, úr því að hún getur það?
Eru þeir Lárus og Ottó búnir að
missa áhugann? Ro.
BW&T Allir reykja Uð! O
Elephant p
Ljúf f engar og kaldar
Einkasalar ú Islandi.
Tóbaksverjlun íslands h.f.
B
B
og hjálpa þeim við. Á sjóöurinn að
vera tii minningar um Guðbjörgu
sálugu Ingvarsdóttur og bera nafn
hennar.
í markaðsleit.
Hendrik J. Ottósson og Björn
Ölafsson fóru með „Lyru“ í gær á-
leiðis til Tékkó-Slóvakíu og Rúss-
lands í markaðsleit fyrir islenzka
síld.
Sjóðsstofnun.
Sigurjón Pétursson hefir gengist
fyrir stofnun sjóðs til þess að
styrkja drykkjumenn til læknlnga
Esperantö.
Nýung er það, að kostur gefst
hér á tilsögn í Esperanto, hinu á-
gæta allsherjarmáli, og það hjá höf-
undi greinarinnar „Esperanto", sem
birtist hér í blaðinu í júní s. 1.
(sbr. augl. á 4. síðu). Esperanto
eykst nú óðum fylgi víða um lönd,
einkum hjá verkamönnum og verzl-
unarlýð, því þeim er ljósust þýð-
ing þess.
Einar Skálaglain: Húsið -við Norðurá.
enginn þjónn drykkjufólsku hans. Hann var
því þrátt fyrir þjóninn alt af jafneinmana.
Þjónn majórsins, Maxwell, var alt annar
maður. Hann var á reki við húsbónda sinn,
mjór og spengilegur, fríður sýnum, hógvær
og fátalaður, en einkar-þunglyndislegur á
svipinn. Samferðamönnum majórsins hafði
líkað vel við hann, því að hann hafði marg-
sinnis á ferðinni sefað yfirgang húsbónda
síns, þegar hann hafði ætlað að hlaupa á
sig á ferðinni. Yfir höfuð gat enginn vafi
leikið á því, að engum hefði að óreyndu máli
dottið annað í hug, en að Maxwell væri
fyrirmaður, en enginn þjónn. Majórinn hafði
náð í Maxwell eftir auglýsingu í Lundúna-
blaði. Hann gat ekki annað en játað það
með sjálfum sér, að Maxwell yæri fyrir-
myndarþjónn, en þótt svo væri, stóð hon-
um einkennilegur stuggur af hógværð hans,
og honum fanst Maxwell oft líta svo til
sín, að honum rann kalt milli skinns og
hörunds. En það líkaði honum verst, að
hann gat ekki fengið hann til að drekka
með sér.
„Bara að við komumst með þetta alt gegn-
um tollinn,“ sagði Maxwell, skelti aftur kof-
fortinu og gekk upp á þilfar til að sjá,
hvert kornið væri.
Skipið var nú búið að hafna sig, og búið
var að setja upp landgöngubrúna, og á henni
var orðið heljarmikið öfugstreymi, því þeir,
sem um borð voru, leituðu í land, en þeir,
sem á landi voru, leituðu um borð.
I strauminum upp á skipið var Eiríkur
með augað. Hann lét skipsþjóninn segja sér
til klefa majórsins, gekk rakleitt inn, heilsaði
og sagði til sín.
Majórinn lá endilangur uppi í rúmi meó