Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 1
KOSNINGABLAÐ
FÉLAGS FRJÁLSLYNDRA STÚDENTA OG
STÚDENTAFÉLAGS LÝÐRÆÐISSINNAÐRA SÓSIALISTA
OKTÓBER REYKJAVÍK 1948
STÚDENTAR!
Kjósið gegn íhaldi
og kommúnisma
/ væntanlegum stúdentaráðskosningum eiga háskólakjósendur um þrjár leiðir að velja í
vali sínu, lista frjálslyndra stúdenta og lýðræðissinnaðra sósíalista, lista Vöku og lista kommúnista.
Vaka „Det konservative Studentlag," eins og þeir kalla sig á erlendum vettvangi, heíur at
lítt skiljanlegum ástæðum átt mestu fylgi að fagna meðal stúdenta undanfarin ár. Slík fylgispekt
við íhald og afturhald er lítt sæmandi íslenzkum háskólaborgurum. Sætir furðu, að nokkur mennta-
maður skuli Ijá fylgi sitt stefnu, sem vill viðhalda því þjóðskipulagi, sem gerir fáum mönnum kleitt
að afla sér forréttinda á kostnað fjöldans og hirða meginhlutann af þjóðartekjunum.
Kommúnistum hefur tekizt að koma saman lista, en ertiðlega mun það hafa gengið. Erfið-
leikar þeirra eiu mjög skiljanlegir. Stúdentar vita, að fulltrúar kommúnista fylgja frekar skipunum
frá æðri stöðum heldui en að vinna af alhug að hagsmunamálum stúdenta. Auk þess er fylgi
kommúnista alls staðai hrörnandi, og hér í háskólanum fækkar nú óðum þeim stúdentum, sem láta
blekkja sig til fylgis við þá.
A-listinn er borinn fram af andstæðingum öfganna til hægri og vinstri. Allir þeir, sem ekki
aðhyllast hið úrelta skipulag auðvaldsins og einræðisstjórn kommúnista, en vilja raunhæf stöif íyrir
hagsmuni stúdenta, fylkja sér um A-listann.
A-listinn er listi allra sannra stúdenta.
Sameinumst um A-listann
Kosningasknfstofa A-listans er í Edduhúsinu Lindargötu 9A Sími 6066.