Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Síða 1

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Síða 1
KOSNINGABLAÐ FÉLAGS FRJÁLSLYNDRA STÚDENTA OG STÚDENTAFÉLAGS LÝÐRÆÐISSINNAÐRA SÓSIALISTA OKTÓBER REYKJAVÍK 1948 STÚDENTAR! Kjósið gegn íhaldi og kommúnisma / væntanlegum stúdentaráðskosningum eiga háskólakjósendur um þrjár leiðir að velja í vali sínu, lista frjálslyndra stúdenta og lýðræðissinnaðra sósíalista, lista Vöku og lista kommúnista. Vaka „Det konservative Studentlag," eins og þeir kalla sig á erlendum vettvangi, heíur at lítt skiljanlegum ástæðum átt mestu fylgi að fagna meðal stúdenta undanfarin ár. Slík fylgispekt við íhald og afturhald er lítt sæmandi íslenzkum háskólaborgurum. Sætir furðu, að nokkur mennta- maður skuli Ijá fylgi sitt stefnu, sem vill viðhalda því þjóðskipulagi, sem gerir fáum mönnum kleitt að afla sér forréttinda á kostnað fjöldans og hirða meginhlutann af þjóðartekjunum. Kommúnistum hefur tekizt að koma saman lista, en ertiðlega mun það hafa gengið. Erfið- leikar þeirra eiu mjög skiljanlegir. Stúdentar vita, að fulltrúar kommúnista fylgja frekar skipunum frá æðri stöðum heldui en að vinna af alhug að hagsmunamálum stúdenta. Auk þess er fylgi kommúnista alls staðai hrörnandi, og hér í háskólanum fækkar nú óðum þeim stúdentum, sem láta blekkja sig til fylgis við þá. A-listinn er borinn fram af andstæðingum öfganna til hægri og vinstri. Allir þeir, sem ekki aðhyllast hið úrelta skipulag auðvaldsins og einræðisstjórn kommúnista, en vilja raunhæf stöif íyrir hagsmuni stúdenta, fylkja sér um A-listann. A-listinn er listi allra sannra stúdenta. Sameinumst um A-listann Kosningasknfstofa A-listans er í Edduhúsinu Lindargötu 9A Sími 6066.

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.