Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 2
2
KOSNINGABLAÐ
ÁRNI GUNNLAUGSSON, stud. jur. formaður stúdentafél. lýðræðiss. sósíalista.
Um hvað er
Stúdentaráðskosningarnar fara nú senn í
hönd, og stúdentar fá tækifæri til að neyta
atkvæðisréttar síns. Sá réttur er hverjum
okkar þess virði, að vert sé að gera sér
fyrst vel ljóst, hvað raunverulega er kosið
um, og hvað virðist ráða afstöðu stúdenta
í þeim kosningum. Það er greinilegt, að
pólitísk sjónarmið eru enn sett á oddinn
hjá stúdentum, og er þess vegna nauðsyn-
legt og okkur beinlínis skylt að kynna okkur
þau, áður en við göngum að kjörborðinu.
Enn ríkari ástæða er fyrir nýstúdenta að
vita um þau, þar sem nafngiftir tveggja
stærstu félaganna gefa mjög svo villandi
heimildir um stjórnmálastefnur þær, sem
forystumenn þessara félaga hafa boðað og
stutt í ræðu og riti.
Hér í háskólanum starfa nú fjögur stjórn-
málafélög, og mun nú lítillega að þeim vikið
og þeim pólitísku sjónarmiðum, sem þau að-
hyllast.
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta,
nefnist félagsskapur konservativra stúdenta
eða íhaldsstúdenta. Eins og nafn félagsins
ber með sér er það afar villandi um hið
raunverulega eðli þess. Þeir stúdentar, sem
styðja Vöku, geta aðeins verið þeir, sem
aðhyllast úrelt skipulag íhaldsmanna, kapi-
talismann. Mönnum eru fyrir löngu orðnir
ljósir ókostir þess skipulags, enda hafa í-
haldsmenn farið hrakfarir að undanförnu í
kosningum í nágrannalöndunum. Skortur á
efnahagslegu öryggi, kreppur, atvinnuleysi,
ranglát skipting þjóðarteknanna og það, að
starfræksla atvinnutækjanna er ekki miðuð
við hag þjóðarheildarinnar, en rekin í gróða-
von einni, er allt einkenni á stefnu íhalds-
manna, einkenni, sem hljóta að valda því,
að sú stefna getur ekki orðið stefna fram-
tíðarinnar. Það er lítt skiljanlegt, að íslenzk-
ir stúdentar skuli aðhyllast slíkt skipulag
Menntamenn frændþjóða okkar hafa hafnað
því og skilið, að auðvaldsskipulagið er spor
afturábak, afturhald, sem víðsýnir stúdetar
geta ekki átt samleið með.
— Ef þú, stúdent, kýst hsta Vöku, ertu
irm leið að leggja blessun þína yfir íhalds-
skipulagið. Er ekki kominn tími fyrir þá
stúdenta, sem hingað til hafa kosið Vöku-
listann, að endurskoða afstöðu sína?
Hér starfar enn í háskólanum félagsskap-
iu kommúnista, sem nefnir sig „félag rót-
tækra stúdenta“. Kommúnistar í háskólan-
um sem annars staðar styðja, vegsama og
boða það stjórnskipulag, sem ríkir í Rúss-
landi og leppríkjum þeirra eða Stalins-
kommúnismann, sem þeir á sínu máli kalla
„sósíalisma“. En menn þurfa ekki að undr-
ast slíka nafngift, því að það er eitt af ein-
kennum einræðissinna að villa á sér heim-
ildir og sigla undir fölsku flaggi. Menn
minnast þess, að Hitler kallaði sína hreyf-
ingu líka „sósíalisma" á sama hátt og koll-
ega hans Stalin gerir nú. En eitt er víst að
kommúnisminn og nazisminn eru Kkari hvor
öðrum en nokkurum sósíalisma.
Sá, sem kýs lista „félags róttækra stúd-
enta“ aðhyllist þá tegund „róttækni“, sem
fólgin er í blindri aðdáun og baráttu fyrir
þjóðskipulagi, sem byggist á alræði 14
manna klíku eins flokks, leynilögreglu,
leynidómstólum, pólitískum fangabúðum,
þrælkunarvinnu, manndýrkun, bhndu of-
stæki, taumlausum yfirgangi og fullkominni
fyrirlitningu stjórnvaldanna fyrir mannhelgi
og frumstæðustu mannréttindum. Hvernig
getur annað eins og þetta átt nokkmt fylgi
stúdenta?
Hvernig geta stúdentar, sem á að vera
gefin óbrjáluð dómgreind og skynsemi,
stutt með atkvæði sínu slíka harðstjórn.
Allt bendir til, að eins fari fyrir kommún-
ismanum og öllu öðru einræði. Þjóðirnar
hafa vaknað. Kosningar úti í lýðfrjálsum
löndum, t. d. á Norðurlöndum, sanna að
fvlgið hrynur af kommúnistum. Alþýðusam-
bandskosningarnar sýna, að eins mun fara
hér á landi. Megi háskólastúdentar verða
fyrstir til að gefa þessari ofbeldisstefnu
verðugt svar og gera ósigur kommúnista
sem mestan á laugardaginn.
kosið ?
Stúdentafélag lýðræðissinnaðra sósíalista
kallast réttilega samtök þeirra háskólasúd-
enta, sem trúa á gildi og úrræði sósíal-
ismans á lýðræðisgrundvelli eða jafnaðar-
stefnuna Jafnaðarmenn munu berjast til
sigurs fyrir stefnu sinni, því að þeir vita,
að hún er eina, rétta leiðin. Reynslan hefur
sýnt og sýnir í dag, að lýðræðis-sósíalism-
inn tryggir fólkinu allt það, sem því ætti
að vera vera helgast og nauðsynlegast. Hvar
er sannara frelsi, traustara lýðræði, meira
alhliða öryggi og einlægari friðarvilji en í
þeim löndum sem lýðræðissósíalisminn fær
að þróast í friði við fullkomið frelsi og ör-
yggi einstaklinganna. Stúdentafélag lýðræð-
issinnaðra sósíalista skorar á alla víðsýna
stúdenta að svara með sjálfum sér þeirri
spurningu, hvort þeir geti ekki átt samleið
með lýðræðissinnuðum sósíalistum í baráttu
fyrir jafnaðarstefnuna, í baráttu gegn óvin-
um hennar, íhaldinu og rauða einræðinu.
Jafnaðarstefnan er í sókn og fylgi hennar í
háskólanum fer ört vaxandi.
Að þessu sinni hefur Stúdentafélag lýð-
ræðsinnaðra sósíalista ákveðið að ganga til
samvinnu við félag frjálslyndra stúdenta í
stúdentaráðskosningunum og bjóða þessi
tvö félög fram sameiginlegan lista, A-list-
ann. Þótt þessi félög greini nokkuð á í
stjórnmálum, eiga þau þó bæði tvo höfuð-
andstæðinga, íhaldið og kommúnista. Kosn-
ingaúrslitin í stúdentakosningunum síðast
sýndu, að hefðu félögin staðið um einn
lista með fylgi sitt, hefðu þau komið 3 full-
trúum að.
Markmiðið með þessari samvinnu er að
koma minnst 3 fulltrúum í stúdentaráð, full-
trúum sem andvígir eru öfgaöflum íhalds
og kommúnisma.
Stúdentafélag lýðræðissinnaðra sósíalista
skorar á alla frjálshuga og víðsýna háskóla-
stúdenta að veita A-listanum öflugt kjör-
fylgi á laugardaginn og gera sigurinn stóran.