Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 2

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 2
2 KOSNINGABLAÐ ÁRNI GUNNLAUGSSON, stud. jur. formaður stúdentafél. lýðræðiss. sósíalista. Um hvað er Stúdentaráðskosningarnar fara nú senn í hönd, og stúdentar fá tækifæri til að neyta atkvæðisréttar síns. Sá réttur er hverjum okkar þess virði, að vert sé að gera sér fyrst vel ljóst, hvað raunverulega er kosið um, og hvað virðist ráða afstöðu stúdenta í þeim kosningum. Það er greinilegt, að pólitísk sjónarmið eru enn sett á oddinn hjá stúdentum, og er þess vegna nauðsyn- legt og okkur beinlínis skylt að kynna okkur þau, áður en við göngum að kjörborðinu. Enn ríkari ástæða er fyrir nýstúdenta að vita um þau, þar sem nafngiftir tveggja stærstu félaganna gefa mjög svo villandi heimildir um stjórnmálastefnur þær, sem forystumenn þessara félaga hafa boðað og stutt í ræðu og riti. Hér í háskólanum starfa nú fjögur stjórn- málafélög, og mun nú lítillega að þeim vikið og þeim pólitísku sjónarmiðum, sem þau að- hyllast. Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, nefnist félagsskapur konservativra stúdenta eða íhaldsstúdenta. Eins og nafn félagsins ber með sér er það afar villandi um hið raunverulega eðli þess. Þeir stúdentar, sem styðja Vöku, geta aðeins verið þeir, sem aðhyllast úrelt skipulag íhaldsmanna, kapi- talismann. Mönnum eru fyrir löngu orðnir ljósir ókostir þess skipulags, enda hafa í- haldsmenn farið hrakfarir að undanförnu í kosningum í nágrannalöndunum. Skortur á efnahagslegu öryggi, kreppur, atvinnuleysi, ranglát skipting þjóðarteknanna og það, að starfræksla atvinnutækjanna er ekki miðuð við hag þjóðarheildarinnar, en rekin í gróða- von einni, er allt einkenni á stefnu íhalds- manna, einkenni, sem hljóta að valda því, að sú stefna getur ekki orðið stefna fram- tíðarinnar. Það er lítt skiljanlegt, að íslenzk- ir stúdentar skuli aðhyllast slíkt skipulag Menntamenn frændþjóða okkar hafa hafnað því og skilið, að auðvaldsskipulagið er spor afturábak, afturhald, sem víðsýnir stúdetar geta ekki átt samleið með. — Ef þú, stúdent, kýst hsta Vöku, ertu irm leið að leggja blessun þína yfir íhalds- skipulagið. Er ekki kominn tími fyrir þá stúdenta, sem hingað til hafa kosið Vöku- listann, að endurskoða afstöðu sína? Hér starfar enn í háskólanum félagsskap- iu kommúnista, sem nefnir sig „félag rót- tækra stúdenta“. Kommúnistar í háskólan- um sem annars staðar styðja, vegsama og boða það stjórnskipulag, sem ríkir í Rúss- landi og leppríkjum þeirra eða Stalins- kommúnismann, sem þeir á sínu máli kalla „sósíalisma“. En menn þurfa ekki að undr- ast slíka nafngift, því að það er eitt af ein- kennum einræðissinna að villa á sér heim- ildir og sigla undir fölsku flaggi. Menn minnast þess, að Hitler kallaði sína hreyf- ingu líka „sósíalisma" á sama hátt og koll- ega hans Stalin gerir nú. En eitt er víst að kommúnisminn og nazisminn eru Kkari hvor öðrum en nokkurum sósíalisma. Sá, sem kýs lista „félags róttækra stúd- enta“ aðhyllist þá tegund „róttækni“, sem fólgin er í blindri aðdáun og baráttu fyrir þjóðskipulagi, sem byggist á alræði 14 manna klíku eins flokks, leynilögreglu, leynidómstólum, pólitískum fangabúðum, þrælkunarvinnu, manndýrkun, bhndu of- stæki, taumlausum yfirgangi og fullkominni fyrirlitningu stjórnvaldanna fyrir mannhelgi og frumstæðustu mannréttindum. Hvernig getur annað eins og þetta átt nokkmt fylgi stúdenta? Hvernig geta stúdentar, sem á að vera gefin óbrjáluð dómgreind og skynsemi, stutt með atkvæði sínu slíka harðstjórn. Allt bendir til, að eins fari fyrir kommún- ismanum og öllu öðru einræði. Þjóðirnar hafa vaknað. Kosningar úti í lýðfrjálsum löndum, t. d. á Norðurlöndum, sanna að fvlgið hrynur af kommúnistum. Alþýðusam- bandskosningarnar sýna, að eins mun fara hér á landi. Megi háskólastúdentar verða fyrstir til að gefa þessari ofbeldisstefnu verðugt svar og gera ósigur kommúnista sem mestan á laugardaginn. kosið ? Stúdentafélag lýðræðissinnaðra sósíalista kallast réttilega samtök þeirra háskólasúd- enta, sem trúa á gildi og úrræði sósíal- ismans á lýðræðisgrundvelli eða jafnaðar- stefnuna Jafnaðarmenn munu berjast til sigurs fyrir stefnu sinni, því að þeir vita, að hún er eina, rétta leiðin. Reynslan hefur sýnt og sýnir í dag, að lýðræðis-sósíalism- inn tryggir fólkinu allt það, sem því ætti að vera vera helgast og nauðsynlegast. Hvar er sannara frelsi, traustara lýðræði, meira alhliða öryggi og einlægari friðarvilji en í þeim löndum sem lýðræðissósíalisminn fær að þróast í friði við fullkomið frelsi og ör- yggi einstaklinganna. Stúdentafélag lýðræð- issinnaðra sósíalista skorar á alla víðsýna stúdenta að svara með sjálfum sér þeirri spurningu, hvort þeir geti ekki átt samleið með lýðræðissinnuðum sósíalistum í baráttu fyrir jafnaðarstefnuna, í baráttu gegn óvin- um hennar, íhaldinu og rauða einræðinu. Jafnaðarstefnan er í sókn og fylgi hennar í háskólanum fer ört vaxandi. Að þessu sinni hefur Stúdentafélag lýð- ræðsinnaðra sósíalista ákveðið að ganga til samvinnu við félag frjálslyndra stúdenta í stúdentaráðskosningunum og bjóða þessi tvö félög fram sameiginlegan lista, A-list- ann. Þótt þessi félög greini nokkuð á í stjórnmálum, eiga þau þó bæði tvo höfuð- andstæðinga, íhaldið og kommúnista. Kosn- ingaúrslitin í stúdentakosningunum síðast sýndu, að hefðu félögin staðið um einn lista með fylgi sitt, hefðu þau komið 3 full- trúum að. Markmiðið með þessari samvinnu er að koma minnst 3 fulltrúum í stúdentaráð, full- trúum sem andvígir eru öfgaöflum íhalds og kommúnisma. Stúdentafélag lýðræðissinnaðra sósíalista skorar á alla frjálshuga og víðsýna háskóla- stúdenta að veita A-listanum öflugt kjör- fylgi á laugardaginn og gera sigurinn stóran.

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.