Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 3
KOSNINGABLAÐ
3
TÓMAS ÁBNASON, stúd. jur.: form. Fél. frfálslyndra stúdenta.
Sameinumst gegn öfgunum
Við væntanlegar stúdentaráðskosningar
verða bornir fram þrír listar. Listi Vöku,
íhaldsmanna í háskólanum. — Listi Félags
róttækra stúdenta, kommúnista, — svo og
sameiginlegur listi Félags frjálslyndra stúd-
enta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra
sósialista. Það, sem er sérkennilegt við kosn-
ingarnar er, að líkur eru fyrir því, að Vaka
(íhaldsliðið) tapi meirihlutaaðstöðu sinni í
stúdentaráði, án þess að kommúnistar verði
þeim að falli. Er það merki þess, að íhaldið
verður ekki sigrað með kommúnistískri
öfgapólitík, sem nú er á fallandi fæti innan
Háskólans, heldur með samtökum frjáls-
lyndra lýðræðissinna.
Félag frjálslyndra stúdenta starfar á lýð-
ræðisgrundvelli og berst gegn hverskonar
byltinga- og öfgastefnum. Þess vegna meðal
annars telur það æskilegt að styrkja þau
öfl innan Háskólans, sem eru andstæð öfg-
unum til hægri og vinstri. Félagið viður-
kennir gildi samvinnustefnunnar og verka-
lýðshreyfingarinnar. Telur æskilegt að leysa
þjóðfélagsvandamálin á félagslegum grund-
velli. Virðir baráttu verkalýðshreyfingarinn-
ar en því aðeins á lýðræðisgrundvelli.
Helztu ástæðurnar fyrir því, að félagið
bíður nú fram sameiginlegan hsta til stúd-
entaráðskosninganna ásamt Stúdentafélagi
lýðræðissinnaðra sósialista eru:
Hefðu félögin borið fram sinn hvorn
lista hefði Vaka óumdeilanlega fengið ör-
uggan meirihluta í stúdentaráði, en sam-
vinnunni er fyrst og fremst ætlað að hnekkja
honum.
Kommúnistar hafa verið sterkastir meðal
vinstri félaganna í Háskólanum s. 1. ár.
Með sigri hins sameiginlega lista verða þeir
veikari en félögin sameinuð. Þeir eru af-
vopnaðir við kosningarnar. Fá sína tvo full-
trúa kjörna en hafa enga möguleika á þeim
þriðja. Því er stúdentum raunverulega mein-
lítið við kosningagöngu þeirra. Allra augu
beinast að baráttunni um þriðja sæti sam-
eiginlega listans og fimmta sæti á lista í-
haldsmanna.
Vaka, íhaldið innan Háskólans — „det
konservative studentlag“ — eins og þeir
sjálfir nefna sig, fylgir dyggilega að málum
Sjálfstæðisflokknum, þeim flokki, sem vill
viðhalda því þjóðfélagsfyrirbæri, að fáum
einstökum sé kleift að græða óhóflega á
kostnað annarra, vill milliliðastarfsemi og
hverskonar forréttindaaðstöðu, án þess að
leitast við að leysa vandamálin á öðrum
grundvelli. Vaka er íhaldslið Háskólans,
þótt þeir á allan hátt reyni að véfengja
faðernið og villa á sér heimildir t. d. með
því, að allir lýðræðissinnar skuli kjósa Vöku.
Hinsvegar eru kommúnistarnir, sem ekkert
skammast sín fyrir, að viðurkenna þvingun-
arvald minnihlutans, einungis ef hann þjón-
Stúdentar! Senn gefst ykkur kostur á að
neyta athvæðisréttar ykkar í stúdentaráðs-
kosningum þeim, er í hönd fara 30. okt. n. k.
í þeirri kosningu eigið þið um þrjá hsta
að velja: sameiginlegan lista lýðræðissinn-
aðra socialista og frjálslyndraa stúdenta,
hsta róttækra (kommúnista) og lista Vöku
(íhaldsins).
Að þessu sinni leggja lýðræðissinnaðir
socialistar og frjálslyndir stúdentar fram
sameiginlegan lista. Með því telja þeir, að
miklar líkur séu fyrir hendi, að hægt verði
að hnekkja því valdi, sem nú hefir haft
yfirtökin í stúdentaráði, og hefir sýnt sig,
að er þess ekki um komið að halda á mál-
um stúdenta, svo að vel sé. En þetta vald
er meirihlutavald Vöku í stúdentaráði.
Yfir störfum fráfarandi ráðs undir forystu
íhaldsins hefir hvílt slík lognmolla, að fá-
dæmum sætir.
Nefni ég eitt dæmi þess, hve sleifarlega
hefir verið haldið á málum stúdenta. En
það er styrkjamálið, sem er orðið mikið
hagsmunamál allflestra stúdenta. Þrátt fyrir
baráttu fulltrúa lýðræðissinnaðra socialista
í því, að það mál væri tekið fyrir þegar í
ar kommúnistiskum hagsmunum, þeir sem
gáfu Þjóðviljanum stórfé í fyrravetur og
stuðluðu þannig að því að auka blaðakost
Rússa á íslandi. Þeir stúdenar, sem hvorki
vilja styðja öfgarnar til hægri eða vinstri
kjósa hinn sameiginlega lista. Hnekkja þar
með meirihlutavaldi Vöku í Stúdentaráði
og berja um leið á kommúnistum. Hver
og einn, sem er andstæðingur íhalds og
hverskonar forréttindastefnu, vinnur sigur
sinni hugsjón með því að kjósa A-listann
á laugardaginn kemur.
fyrra haust, var það svæft af íhaldinu, og
hefir því lítið miðað áfram.
En hvers er líka að vænta af þeim mönn-
um, er fylgja þeirri stefnu að setja hags-
muni einstaklingsins ofar hagsmunum fjöld-
ans?
Eina ráðið til þess að fella fimmta
mann Vöku og koma þar með í veg fyrir,
að íhaldið hafi bolmagn til þess að svæfa
hagsmunamál stúdenta, er að kjósa A-hst-
ann.
Ekki eru kommúnistar þess umkomnir
að fella 5. mann Vöku. Enda má segja, að
það væri að fara úr öskunni í eldinn að
kjósa þá. Landsmenn eru nú flestir farnir
að þekkja þá og vita hvers af þeim er að
vænta. Við næst síðustu kosningar til stúd-
entaráðs fengu þeir þrjá fulltrúa kjörna.
Sýndu stúdentar svo í fyrra, hvers þeir mátu
verk þeirra í ráðinu, því að þá misstu þeir
einn fulltrúann í kosningunum. Og mun
fylgi þeirra vera í rénum innan veggja Há-
skólans eins og vonlegt er.
Stúdentar! Gerið glæsilegan sigur lýð-
ræðisaflanna með því að kjósa A-listann.
SIGURJÓN JÓHANNESSON, stud. mag.
Styðjum sönnu iýðræðisöflin