Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Page 3

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Page 3
KOSNINGABLAÐ 3 TÓMAS ÁBNASON, stúd. jur.: form. Fél. frfálslyndra stúdenta. Sameinumst gegn öfgunum Við væntanlegar stúdentaráðskosningar verða bornir fram þrír listar. Listi Vöku, íhaldsmanna í háskólanum. — Listi Félags róttækra stúdenta, kommúnista, — svo og sameiginlegur listi Félags frjálslyndra stúd- enta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósialista. Það, sem er sérkennilegt við kosn- ingarnar er, að líkur eru fyrir því, að Vaka (íhaldsliðið) tapi meirihlutaaðstöðu sinni í stúdentaráði, án þess að kommúnistar verði þeim að falli. Er það merki þess, að íhaldið verður ekki sigrað með kommúnistískri öfgapólitík, sem nú er á fallandi fæti innan Háskólans, heldur með samtökum frjáls- lyndra lýðræðissinna. Félag frjálslyndra stúdenta starfar á lýð- ræðisgrundvelli og berst gegn hverskonar byltinga- og öfgastefnum. Þess vegna meðal annars telur það æskilegt að styrkja þau öfl innan Háskólans, sem eru andstæð öfg- unum til hægri og vinstri. Félagið viður- kennir gildi samvinnustefnunnar og verka- lýðshreyfingarinnar. Telur æskilegt að leysa þjóðfélagsvandamálin á félagslegum grund- velli. Virðir baráttu verkalýðshreyfingarinn- ar en því aðeins á lýðræðisgrundvelli. Helztu ástæðurnar fyrir því, að félagið bíður nú fram sameiginlegan hsta til stúd- entaráðskosninganna ásamt Stúdentafélagi lýðræðissinnaðra sósialista eru: Hefðu félögin borið fram sinn hvorn lista hefði Vaka óumdeilanlega fengið ör- uggan meirihluta í stúdentaráði, en sam- vinnunni er fyrst og fremst ætlað að hnekkja honum. Kommúnistar hafa verið sterkastir meðal vinstri félaganna í Háskólanum s. 1. ár. Með sigri hins sameiginlega lista verða þeir veikari en félögin sameinuð. Þeir eru af- vopnaðir við kosningarnar. Fá sína tvo full- trúa kjörna en hafa enga möguleika á þeim þriðja. Því er stúdentum raunverulega mein- lítið við kosningagöngu þeirra. Allra augu beinast að baráttunni um þriðja sæti sam- eiginlega listans og fimmta sæti á lista í- haldsmanna. Vaka, íhaldið innan Háskólans — „det konservative studentlag“ — eins og þeir sjálfir nefna sig, fylgir dyggilega að málum Sjálfstæðisflokknum, þeim flokki, sem vill viðhalda því þjóðfélagsfyrirbæri, að fáum einstökum sé kleift að græða óhóflega á kostnað annarra, vill milliliðastarfsemi og hverskonar forréttindaaðstöðu, án þess að leitast við að leysa vandamálin á öðrum grundvelli. Vaka er íhaldslið Háskólans, þótt þeir á allan hátt reyni að véfengja faðernið og villa á sér heimildir t. d. með því, að allir lýðræðissinnar skuli kjósa Vöku. Hinsvegar eru kommúnistarnir, sem ekkert skammast sín fyrir, að viðurkenna þvingun- arvald minnihlutans, einungis ef hann þjón- Stúdentar! Senn gefst ykkur kostur á að neyta athvæðisréttar ykkar í stúdentaráðs- kosningum þeim, er í hönd fara 30. okt. n. k. í þeirri kosningu eigið þið um þrjá hsta að velja: sameiginlegan lista lýðræðissinn- aðra socialista og frjálslyndraa stúdenta, hsta róttækra (kommúnista) og lista Vöku (íhaldsins). Að þessu sinni leggja lýðræðissinnaðir socialistar og frjálslyndir stúdentar fram sameiginlegan lista. Með því telja þeir, að miklar líkur séu fyrir hendi, að hægt verði að hnekkja því valdi, sem nú hefir haft yfirtökin í stúdentaráði, og hefir sýnt sig, að er þess ekki um komið að halda á mál- um stúdenta, svo að vel sé. En þetta vald er meirihlutavald Vöku í stúdentaráði. Yfir störfum fráfarandi ráðs undir forystu íhaldsins hefir hvílt slík lognmolla, að fá- dæmum sætir. Nefni ég eitt dæmi þess, hve sleifarlega hefir verið haldið á málum stúdenta. En það er styrkjamálið, sem er orðið mikið hagsmunamál allflestra stúdenta. Þrátt fyrir baráttu fulltrúa lýðræðissinnaðra socialista í því, að það mál væri tekið fyrir þegar í ar kommúnistiskum hagsmunum, þeir sem gáfu Þjóðviljanum stórfé í fyrravetur og stuðluðu þannig að því að auka blaðakost Rússa á íslandi. Þeir stúdenar, sem hvorki vilja styðja öfgarnar til hægri eða vinstri kjósa hinn sameiginlega lista. Hnekkja þar með meirihlutavaldi Vöku í Stúdentaráði og berja um leið á kommúnistum. Hver og einn, sem er andstæðingur íhalds og hverskonar forréttindastefnu, vinnur sigur sinni hugsjón með því að kjósa A-listann á laugardaginn kemur. fyrra haust, var það svæft af íhaldinu, og hefir því lítið miðað áfram. En hvers er líka að vænta af þeim mönn- um, er fylgja þeirri stefnu að setja hags- muni einstaklingsins ofar hagsmunum fjöld- ans? Eina ráðið til þess að fella fimmta mann Vöku og koma þar með í veg fyrir, að íhaldið hafi bolmagn til þess að svæfa hagsmunamál stúdenta, er að kjósa A-hst- ann. Ekki eru kommúnistar þess umkomnir að fella 5. mann Vöku. Enda má segja, að það væri að fara úr öskunni í eldinn að kjósa þá. Landsmenn eru nú flestir farnir að þekkja þá og vita hvers af þeim er að vænta. Við næst síðustu kosningar til stúd- entaráðs fengu þeir þrjá fulltrúa kjörna. Sýndu stúdentar svo í fyrra, hvers þeir mátu verk þeirra í ráðinu, því að þá misstu þeir einn fulltrúann í kosningunum. Og mun fylgi þeirra vera í rénum innan veggja Há- skólans eins og vonlegt er. Stúdentar! Gerið glæsilegan sigur lýð- ræðisaflanna með því að kjósa A-listann. SIGURJÓN JÓHANNESSON, stud. mag. Styðjum sönnu iýðræðisöflin

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.