Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 6

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 6
6 KOSNINGABLAÐ RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR stud. juz.: Um hvað er barizt? Stórviðburður stendur fyrir dyrum. Þessa dagana er mikil ólga meðal háskólaborgara, kappræður og leynifundir. Og það, sem veldur því, að hið daglega líf í Háskólanum fer úr sínum vanalegu skorðum er það, að senn er útrnnnið kjörtímabil þeirra manna, sem undanfarið ár hafa stjórnað félagsmál- um stúdenta, og á laugardaginn stendur til að kjósa aðra menn í þeirra stað. Þrátt fyrir það ,að hér er um mikið starf að ræða, sem eingöngu er unnið í sjálfboðavinnu — án launa, — þá hafa boðið sig fram til þessa þrefalt fleiri en kjósa á, og af því stafar mikill vandi. Það er nú fróðlegt, fyrst svona stendur á, að rifja upp fyrir sér í höfuðdráttum, í hverju störf stúdentaráðs eru fólgin. Starf- semi þessi er all margþætt.. Inn á við starf- ar ráðið að félagsmálum stúdenta, út á við er það málsvari stúdenta og hefir forustuna, ef háskólastúdentar vilja sem heild eitthvað láta til sín taka í almennum málum, og í þeirri kynningarstarfsemi milli stúdenta frá ýmsum þjóðum, sem nú tíðkast, hlýtur stúd- entaráð einkum að vera fulltrúi háskóla- stúdenta. Þótt hér sé stiklað á stóru, má af þessu sjá, að um fjölbreytt og þýðingarmikil störf er að ræða, sem að vísu eru sum svo vaxin, að tæpast getur orðið ágreiningur um þau, en önnur svo, að nauðsynlegt er að taka til greina fleiri sjónarmið en eitt. Stúdentaráð var svo skipað síðasta ár, að Vaka hafði þar hreinan meiri hluta, þ. e. 5 fulltrúa af 9 kjörnum, og þetta þrátt fyrir það, að félagið hafði ekki meiri hluta kjós- enda á bak við sig —og dugði þá ekki til hin mikla atorka forustumannanna um að dytta að kjörskránni á meðan mögulegt var. Félag róttækra stúdenta átti 2 fulltrúa og Félag frjálslyndra stúdenta og Stúdentafél. lýðræðissinnaðra sósíalista sinn fulltrúann hvort, en þessi félög höfðu hvort um sig talsvert meira athvæðamagn en til þess þurfti að koma einum manni að. Þó það sé ekki dregið í efa, að Vökumenn geti verið góðir og skynsamir, þá ber þeim engan veginn réttur til þess að stjórna mál- efnum stúdenta með hreinu meiri hluta valdi, nema á meðan þeir hafa til þess fylgi kjósenda — og það hafa þeir ekki lengur, — því er það að ,tvö félög í Háskólanum, Fél. frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélag lýð- ræðissinnaðra sósíalista, hafa talið það hyggilegt að sameinast um einn lista, til þess að atkvæði þau, sem á síðasta ári urðu afgangs því, sem til þess þurfti að koma að tveim mönnum frá báðum þessum félög- um, geti nú komið að raunverulegu gagni og fellt fimmta mann Vöku frá kosningu. Það væri vel farið og myndi m. a. valda því, að pólitísk sjónarmið Sjálfstæðisflokks- ins yrðu ekki alls ráðandi innan stúdenta- ráðs, hvenær sem slík átök ættu sér stað. Um Félag róttækra stúdenta er það að segja, að ótrúlegt er, að breyting verði á fulltrúa- fjölda þeirra, frá því sem var á síðasta ári. Þeir halda vafalaust sínum tveim fulltrúum í stúdentaráði, en tapa nokkru atkvæða- magni. Dagleg störf stúdentaráðs eru unnin af þriggja manna framkvæmdastjórn, sem kos- in er hlutfallskosningu af ráðinu. Mikið veltiu á því, að í stjórn séu kosnir hæfir menn og duglegir, og er sú kosning að sínu leyti eins þýðingarmikil og hinar almennu kosningar til stúdentaráðs. Eins og ráðið er nú skipað, báru Vöku 2 af þeim þrem mönn- um, sem í framkvæmdastjórninni eru, og þar sem fulltrúar þeirra félaga, sem nú standa að A-listanum, gerðu með sér kosn- ingabandalag, voru þeir tveir á móti tveim Kommúnistum. Hefði þá verið skorið úr með hlutkesti, nema af því, að Kommúnistar vildu ekki taka þátt í kosningunni. Þeir höfðu víst öðrum hnöppum að hneppa. Lík- lega hafa steðjað einhverjir erfiðleikar að Iran eða Egyptalandi um það leyti, en eins og menn muna, voru stjórnmálahorfur þar aðal-baráttumál Kommúnista við síðustu kosningar. Félög þau, sem nú standa að A-listanum, áttu því fulltrúa í framkvæmda- stjórn. Og nú kemur að því, sem er höfuðtilgang- urinn með því að hnekkja meiri hluta valdi Vöku við þessar kosningar, en hann er sá, að tnjggja fulltrúum A-listans mann í fram- kvæmdastjórn. Vaka, með sína 4 menn á þá einn fulltrúa vísan, en þriðji möguleik- leikinn skiptist á milli þess félags og Félags róttækra stúdenta, sem sagt, hlutkesti eða hugmyndir Kommúnista um starfsemi í fé- lagsskap myndi ráða þar um. Eins og stúdentaráð er skipað í dag, voru jafnar líkur fyrir því, að Sjálfstæðismenn og Kommúnistar væru einir í framkvæmda- stjórninni. Barátta þeirra, sem A-listann styðja, er fyrir því að tryggja þar áhrif þeirra félaga, sem að honum standa. Det konservative studentlag! ! ! í blaðinu Stud. Jur., málgagni norskra lagastúdenta, er formaður Vöku kynntur fyrir norsku þjóðinni, sem „formann í det konservative studentlag“ í Háskóla íslands. Má segja, að blaðinu hafi tekizt vel og réttilega að snara réttmætu heiti Vöku yfir á norska tungu.' Formaður Vöku skyldi þá aldrei hafa aðstoðað við þýðinguna? Ef svo væri mvndi það stinga mjög í stúf við grein, sem hann reit í Vöku-pésann á s. 1. vori, en þar sagði hann. „Vaka er eina félagið, sem ekki hefir lagt sér þá grundvallarreglu að skipa ör- uggu sætin á lista sínum eftir stjórnmála- skoðunum eingöngu, og stundum tekið mjög lítið tillit til þeirra við skipun list- ans. Þetta er aðalsmerki Vöku og gæfa stúdenta.“ Fylgisaukning Mikill vöxtur er nú í Stúdentafélagi lýð- ræðiss. sósíalista og Fél. frjálslyndra stúd. Má best marka það af því, að þegar hafa hátt á þriðja tug nýrra félaga innritast í félögin á þessu hausti. Er auðsætt, að stúd- entar hafa fullan hug á því, að gera meiri- hluta sigur Vöku dýrkeyptan.

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.