Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 6
6
KOSNINGABLAÐ
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR stud. juz.:
Um hvað er barizt?
Stórviðburður stendur fyrir dyrum. Þessa
dagana er mikil ólga meðal háskólaborgara,
kappræður og leynifundir. Og það, sem
veldur því, að hið daglega líf í Háskólanum
fer úr sínum vanalegu skorðum er það, að
senn er útrnnnið kjörtímabil þeirra manna,
sem undanfarið ár hafa stjórnað félagsmál-
um stúdenta, og á laugardaginn stendur til
að kjósa aðra menn í þeirra stað. Þrátt fyrir
það ,að hér er um mikið starf að ræða, sem
eingöngu er unnið í sjálfboðavinnu — án
launa, — þá hafa boðið sig fram til þessa
þrefalt fleiri en kjósa á, og af því stafar
mikill vandi.
Það er nú fróðlegt, fyrst svona stendur á,
að rifja upp fyrir sér í höfuðdráttum, í
hverju störf stúdentaráðs eru fólgin. Starf-
semi þessi er all margþætt.. Inn á við starf-
ar ráðið að félagsmálum stúdenta, út á við
er það málsvari stúdenta og hefir forustuna,
ef háskólastúdentar vilja sem heild eitthvað
láta til sín taka í almennum málum, og í
þeirri kynningarstarfsemi milli stúdenta frá
ýmsum þjóðum, sem nú tíðkast, hlýtur stúd-
entaráð einkum að vera fulltrúi háskóla-
stúdenta. Þótt hér sé stiklað á stóru, má af
þessu sjá, að um fjölbreytt og þýðingarmikil
störf er að ræða, sem að vísu eru sum svo
vaxin, að tæpast getur orðið ágreiningur
um þau, en önnur svo, að nauðsynlegt er
að taka til greina fleiri sjónarmið en eitt.
Stúdentaráð var svo skipað síðasta ár, að
Vaka hafði þar hreinan meiri hluta, þ. e. 5
fulltrúa af 9 kjörnum, og þetta þrátt fyrir
það, að félagið hafði ekki meiri hluta kjós-
enda á bak við sig —og dugði þá ekki til
hin mikla atorka forustumannanna um að
dytta að kjörskránni á meðan mögulegt var.
Félag róttækra stúdenta átti 2 fulltrúa og
Félag frjálslyndra stúdenta og Stúdentafél.
lýðræðissinnaðra sósíalista sinn fulltrúann
hvort, en þessi félög höfðu hvort um sig
talsvert meira athvæðamagn en til þess
þurfti að koma einum manni að.
Þó það sé ekki dregið í efa, að Vökumenn
geti verið góðir og skynsamir, þá ber þeim
engan veginn réttur til þess að stjórna mál-
efnum stúdenta með hreinu meiri hluta
valdi, nema á meðan þeir hafa til þess fylgi
kjósenda — og það hafa þeir ekki lengur, —
því er það að ,tvö félög í Háskólanum, Fél.
frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélag lýð-
ræðissinnaðra sósíalista, hafa talið það
hyggilegt að sameinast um einn lista, til
þess að atkvæði þau, sem á síðasta ári urðu
afgangs því, sem til þess þurfti að koma
að tveim mönnum frá báðum þessum félög-
um, geti nú komið að raunverulegu gagni
og fellt fimmta mann Vöku frá kosningu.
Það væri vel farið og myndi m. a. valda
því, að pólitísk sjónarmið Sjálfstæðisflokks-
ins yrðu ekki alls ráðandi innan stúdenta-
ráðs, hvenær sem slík átök ættu sér stað.
Um Félag róttækra stúdenta er það að segja,
að ótrúlegt er, að breyting verði á fulltrúa-
fjölda þeirra, frá því sem var á síðasta ári.
Þeir halda vafalaust sínum tveim fulltrúum
í stúdentaráði, en tapa nokkru atkvæða-
magni.
Dagleg störf stúdentaráðs eru unnin af
þriggja manna framkvæmdastjórn, sem kos-
in er hlutfallskosningu af ráðinu. Mikið
veltiu á því, að í stjórn séu kosnir hæfir
menn og duglegir, og er sú kosning að sínu
leyti eins þýðingarmikil og hinar almennu
kosningar til stúdentaráðs. Eins og ráðið er
nú skipað, báru Vöku 2 af þeim þrem mönn-
um, sem í framkvæmdastjórninni eru, og
þar sem fulltrúar þeirra félaga, sem nú
standa að A-listanum, gerðu með sér kosn-
ingabandalag, voru þeir tveir á móti tveim
Kommúnistum. Hefði þá verið skorið úr
með hlutkesti, nema af því, að Kommúnistar
vildu ekki taka þátt í kosningunni. Þeir
höfðu víst öðrum hnöppum að hneppa. Lík-
lega hafa steðjað einhverjir erfiðleikar að
Iran eða Egyptalandi um það leyti, en eins
og menn muna, voru stjórnmálahorfur þar
aðal-baráttumál Kommúnista við síðustu
kosningar. Félög þau, sem nú standa að
A-listanum, áttu því fulltrúa í framkvæmda-
stjórn.
Og nú kemur að því, sem er höfuðtilgang-
urinn með því að hnekkja meiri hluta valdi
Vöku við þessar kosningar, en hann er sá, að
tnjggja fulltrúum A-listans mann í fram-
kvæmdastjórn. Vaka, með sína 4 menn á
þá einn fulltrúa vísan, en þriðji möguleik-
leikinn skiptist á milli þess félags og Félags
róttækra stúdenta, sem sagt, hlutkesti eða
hugmyndir Kommúnista um starfsemi í fé-
lagsskap myndi ráða þar um.
Eins og stúdentaráð er skipað í dag, voru
jafnar líkur fyrir því, að Sjálfstæðismenn og
Kommúnistar væru einir í framkvæmda-
stjórninni. Barátta þeirra, sem A-listann
styðja, er fyrir því að tryggja þar áhrif
þeirra félaga, sem að honum standa.
Det konservative
studentlag! ! !
í blaðinu Stud. Jur., málgagni norskra
lagastúdenta, er formaður Vöku kynntur
fyrir norsku þjóðinni, sem „formann í det
konservative studentlag“ í Háskóla íslands.
Má segja, að blaðinu hafi tekizt vel og
réttilega að snara réttmætu heiti Vöku yfir
á norska tungu.' Formaður Vöku skyldi þá
aldrei hafa aðstoðað við þýðinguna? Ef
svo væri mvndi það stinga mjög í stúf við
grein, sem hann reit í Vöku-pésann á s. 1.
vori, en þar sagði hann.
„Vaka er eina félagið, sem ekki hefir
lagt sér þá grundvallarreglu að skipa ör-
uggu sætin á lista sínum eftir stjórnmála-
skoðunum eingöngu, og stundum tekið
mjög lítið tillit til þeirra við skipun list-
ans. Þetta er aðalsmerki Vöku og gæfa
stúdenta.“
Fylgisaukning
Mikill vöxtur er nú í Stúdentafélagi lýð-
ræðiss. sósíalista og Fél. frjálslyndra stúd.
Má best marka það af því, að þegar hafa
hátt á þriðja tug nýrra félaga innritast í
félögin á þessu hausti. Er auðsætt, að stúd-
entar hafa fullan hug á því, að gera meiri-
hluta sigur Vöku dýrkeyptan.