Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 10

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Blaðsíða 10
10 KOSNINGABLAÐ INGIMAR JÓNASSON,stud. oecon.: Háskólaþáttur STÚDENTARÁÐSKOSNINGAR Fráfarandi stúdentaráð var skipað 5 full- trúum frá Vöku, 2 frá félagi róttækra stúd- enta, einum frá félagi frjálslyndra stúdenta og einum frá Stúdentafél. lýðræðissinnaðra sósíalista. Vaka hafði því hreinan meiri- hluta í ráðinu. Undanfarin ár hafa kosningar til stúdenta- ráðs verið pólitískar og er svo enn, en þó svo sé, þá megum við stúdentar ekki gleyma, að við erum að kjósa okkur full- trúa til að berjast fyrir hagsmunamálum okkar og fara með mikilvæg sameiginleg mál okkar. Þetta munu Vökumenn hafa rennt grun í við síðustu kosningar og hélt Tómas Tómasson núverandi formaður stúd- entaráðs þá tölu á framboðsfundinum, þar sem hann lofaði, að kæmust Vökumenn að, skyldi ekki aðeins starfi síðasta stúdenta- ráðs haldið áfram heldur skyldu þeir verða föðurbetrungar, og taldi hann upp fjölda mála, sem stúdentaráð myndi beita sér fyrir. Ekki verður annað sagt en að nýliðum í „academiinu“ hafi verið nokkur vorkun, að þeir létu ginnast af fögrum loforðum þess- ara manna, þeir vissu ekki hve vel Vöku- mönnum tekst að tileinka sér lífspeki háva- mála: „fagurt skalt mæla, en flátt hyggja.“ Á laugardaginn kemur dæma stúdentar um, hvernig Vaka hefur rækt forustuverk sitt í stúdentaráði á síðasta háskólaári. Við það tækifæri leita upp í hugan ýmsar spurn- ingar. Hvað hefur ráðið gert til að bæta bókaskort stúdenta, hvað líður undirbún- ingi að stofnun félagsheimilis stúdenta? Hví hefur blaðið Vettvangur Stúdentaráðs ekki verið gefið út, hafði ráðið ekkert á prjónunum, sem háskólastúdenta varðaði? Slíkar og þvílíkar spurningar leita upp í hugan við ævilok þessa stúdentaráðs, og þær leiða að þeirri niðurstöðu, að mál sé komið að veita Vökuforustunni hvíld. HAPPY DAYS Rússagildi var haldið í Sjálfstæðshúsinu seint í október 1947. Magister bibendi var próf. Niels Dungal, aðalræðuna flutti Tóm- as skáld Guðmundsson og mun sú ræða flestum verða minnisstæð fyrir sakir fyndni og lífssanninda, Pétur Jónsson söng einsöng, sungin voru Rússagildisljóð eftir Ragnar Jóhannesson, einnig var drukkið drengilega og dansað dátt þar til-----ja ég fylgdist nú ekki með hvað klukkan var. 1. des. var að vanda haldinn hátíðlegur, próf. Ásm. Guðmundsson flutti ræðu af svölum alþingishússins, guðþjónusta var haldin í Dómkirkjunni og prédikaði þar sr. Jóhann Hannesson, samkoma var haldin í Hátíðarsal Háskóla íslands og um kvöldið var hóf stúdenta að Hótel Borg. Á gamlárskvöld var haldinn áramótadans- leikur í Háskólanum. Slíkur dansleikur hef- ur undanfarin ár verið haldinn og þótt einn helzti viðburður í skemmtanalífi academ- iskra bargara, jafnt háskólastúdenta sem kandidata, er óskandi að svo verði enn. Eins og ávalt áður fór dansleikurinn fram vel og prúðmannlega í hvívetna. Síðasta vetrardag héldu háskólastúdentar kvöldvöku í útvarpinu og Stúdentafélag Reykjavíkur sumarfagnað í Sjálfstæðishús- inu. Á öllum þessum mannamótum hefur ríkt hinn gamli, góði frjálslyndi stúdentaandi, sem hafinn er yfir dægurþras og deilur og sem út á við kemur fram í efhngu bræðra- lags ekki aðeins meðal stúdenta allra landa, heldur og meðal allra manna. Við stúdentar megum því ekki vera svo veikir á svellinu að láta slúðursagnir málgefinna lítilmenna hafa áhrif á það hvernig við högum sam- komum okkar og samlífi. STÚDENTABLAÐIÐ Stúdentar í flestum löndum eiga sér eitt- hvert málgagn. Hér hafa ýmsar tilraunir verið gerðar til þess, að stúdentar gæfu út blað eða tímarit og má þar til nefna tíma- ritið Garð, sem fór vel á stað hvað efni snertir og frágang en hins vegar var fjár- hagshlið málsins ekki glæsileg. í fyrra var reynt að gefa út Stúdentablaðið nokkrum sinnum en ekki gekk greiðlega að fá efni í það. Þrátt fyrir það þó svona illa gangi að gefa út blað, sem sé málssvari allra háskóla- studenta þá eru gefin út blöð af einstökum félögum innan háskólans, pólitísku félögun- um, Kristilegu Stúdentafélagi, félagi laga- nema o. fl. Hvernig væri að breyta þessu fyrirkomulagi þannig, að gefið yrði út eitt alls-herjar blað eða tímarit, sem út kæmi a. m. k. hálfs mánaðarlega og sem öll félög háskólans ynnu að? Gæti í því blaði birzt greinar um fræðileg efni (m. a. lögfræðileg eins og í Úlffljóti nú). trúmál, þjóðfélagsmál, háskólann, stúdentalífið, skáldskapur og annað andlegt produkt stúdenta, fréttir af stúdentum og stúdentamótum og yfirleitt allt sem stúdenta varðar. Mætti annaðhvort láta 1 eða 2 félög sjá um hvert tölublað eða öll félögin legðu eitthvað af mörkum til hvers tölublaðs. Með þessu eignuðust stúd- entar veglegt tímarit, fjölbreytt að efni, sem gera má ráð fyrir, að keypt yrði af öllum stúdentum eldri sem yngri, því í því blaði yrði áreiðanlega eitthvað fyrir alla. MÁLSVARI OFBELDISINS Ófrelsið er óvinur allrar sannrar mennt- unar, það er því eðlilegt, að menntamenn hafi á öllum tímum staðið fremst í flokki í baráttunni gegn kúgun og ofbeldi enda margir orðið að fórna lífinu í þeirri baráttu, aðrir orðið að flýja land og enn aðrir verið fangelsaðir, pyntaðir og kefldir. Það er því vansi, að innan veggja háskólans hýrast menn, sem ávalt eru reiðubúnir að leggja blessun sína yfir landvinningastefnu Rússa og ofbeldi, kúgun og valdaráni þeirra og þeirra dindla. Hvert landið af öðru hefm: hinn rússneski her brotið undir hið víðáttu- mikla ríki, kommúnismanum verið þröngv- að upp á hverja þjóðina af annari, allir flokkar verið bannaðir aðrir en kommúnista- flokkurinn. Yfirvöldin sagt til um, hvað skuli prentað, hvað megi segja, hvaða list sé svo hrein af borgaralegum áhrifum, að hún eigi heíma í alþýðuríki og fólkinu haldið í skefj-

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.