Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Qupperneq 10
10
KOSNINGABLAÐ
INGIMAR JÓNASSON,stud. oecon.:
Háskólaþáttur
STÚDENTARÁÐSKOSNINGAR
Fráfarandi stúdentaráð var skipað 5 full-
trúum frá Vöku, 2 frá félagi róttækra stúd-
enta, einum frá félagi frjálslyndra stúdenta
og einum frá Stúdentafél. lýðræðissinnaðra
sósíalista. Vaka hafði því hreinan meiri-
hluta í ráðinu.
Undanfarin ár hafa kosningar til stúdenta-
ráðs verið pólitískar og er svo enn, en þó
svo sé, þá megum við stúdentar ekki
gleyma, að við erum að kjósa okkur full-
trúa til að berjast fyrir hagsmunamálum
okkar og fara með mikilvæg sameiginleg
mál okkar. Þetta munu Vökumenn hafa
rennt grun í við síðustu kosningar og hélt
Tómas Tómasson núverandi formaður stúd-
entaráðs þá tölu á framboðsfundinum, þar
sem hann lofaði, að kæmust Vökumenn að,
skyldi ekki aðeins starfi síðasta stúdenta-
ráðs haldið áfram heldur skyldu þeir verða
föðurbetrungar, og taldi hann upp fjölda
mála, sem stúdentaráð myndi beita sér fyrir.
Ekki verður annað sagt en að nýliðum í
„academiinu“ hafi verið nokkur vorkun, að
þeir létu ginnast af fögrum loforðum þess-
ara manna, þeir vissu ekki hve vel Vöku-
mönnum tekst að tileinka sér lífspeki háva-
mála: „fagurt skalt mæla, en flátt hyggja.“
Á laugardaginn kemur dæma stúdentar
um, hvernig Vaka hefur rækt forustuverk
sitt í stúdentaráði á síðasta háskólaári. Við
það tækifæri leita upp í hugan ýmsar spurn-
ingar. Hvað hefur ráðið gert til að bæta
bókaskort stúdenta, hvað líður undirbún-
ingi að stofnun félagsheimilis stúdenta?
Hví hefur blaðið Vettvangur Stúdentaráðs
ekki verið gefið út, hafði ráðið ekkert á
prjónunum, sem háskólastúdenta varðaði?
Slíkar og þvílíkar spurningar leita upp í
hugan við ævilok þessa stúdentaráðs, og
þær leiða að þeirri niðurstöðu, að mál sé
komið að veita Vökuforustunni hvíld.
HAPPY DAYS
Rússagildi var haldið í Sjálfstæðshúsinu
seint í október 1947. Magister bibendi var
próf. Niels Dungal, aðalræðuna flutti Tóm-
as skáld Guðmundsson og mun sú ræða
flestum verða minnisstæð fyrir sakir fyndni
og lífssanninda, Pétur Jónsson söng einsöng,
sungin voru Rússagildisljóð eftir Ragnar
Jóhannesson, einnig var drukkið drengilega
og dansað dátt þar til-----ja ég fylgdist
nú ekki með hvað klukkan var.
1. des. var að vanda haldinn hátíðlegur,
próf. Ásm. Guðmundsson flutti ræðu af
svölum alþingishússins, guðþjónusta var
haldin í Dómkirkjunni og prédikaði þar sr.
Jóhann Hannesson, samkoma var haldin í
Hátíðarsal Háskóla íslands og um kvöldið
var hóf stúdenta að Hótel Borg.
Á gamlárskvöld var haldinn áramótadans-
leikur í Háskólanum. Slíkur dansleikur hef-
ur undanfarin ár verið haldinn og þótt einn
helzti viðburður í skemmtanalífi academ-
iskra bargara, jafnt háskólastúdenta sem
kandidata, er óskandi að svo verði enn. Eins
og ávalt áður fór dansleikurinn fram vel og
prúðmannlega í hvívetna.
Síðasta vetrardag héldu háskólastúdentar
kvöldvöku í útvarpinu og Stúdentafélag
Reykjavíkur sumarfagnað í Sjálfstæðishús-
inu.
Á öllum þessum mannamótum hefur ríkt
hinn gamli, góði frjálslyndi stúdentaandi,
sem hafinn er yfir dægurþras og deilur og
sem út á við kemur fram í efhngu bræðra-
lags ekki aðeins meðal stúdenta allra landa,
heldur og meðal allra manna. Við stúdentar
megum því ekki vera svo veikir á svellinu
að láta slúðursagnir málgefinna lítilmenna
hafa áhrif á það hvernig við högum sam-
komum okkar og samlífi.
STÚDENTABLAÐIÐ
Stúdentar í flestum löndum eiga sér eitt-
hvert málgagn. Hér hafa ýmsar tilraunir
verið gerðar til þess, að stúdentar gæfu út
blað eða tímarit og má þar til nefna tíma-
ritið Garð, sem fór vel á stað hvað efni
snertir og frágang en hins vegar var fjár-
hagshlið málsins ekki glæsileg. í fyrra var
reynt að gefa út Stúdentablaðið nokkrum
sinnum en ekki gekk greiðlega að fá efni
í það.
Þrátt fyrir það þó svona illa gangi að
gefa út blað, sem sé málssvari allra háskóla-
studenta þá eru gefin út blöð af einstökum
félögum innan háskólans, pólitísku félögun-
um, Kristilegu Stúdentafélagi, félagi laga-
nema o. fl. Hvernig væri að breyta þessu
fyrirkomulagi þannig, að gefið yrði út eitt
alls-herjar blað eða tímarit, sem út kæmi
a. m. k. hálfs mánaðarlega og sem öll félög
háskólans ynnu að? Gæti í því blaði birzt
greinar um fræðileg efni (m. a. lögfræðileg
eins og í Úlffljóti nú). trúmál, þjóðfélagsmál,
háskólann, stúdentalífið, skáldskapur og
annað andlegt produkt stúdenta, fréttir af
stúdentum og stúdentamótum og yfirleitt
allt sem stúdenta varðar. Mætti annaðhvort
láta 1 eða 2 félög sjá um hvert tölublað eða
öll félögin legðu eitthvað af mörkum til
hvers tölublaðs. Með þessu eignuðust stúd-
entar veglegt tímarit, fjölbreytt að efni, sem
gera má ráð fyrir, að keypt yrði af öllum
stúdentum eldri sem yngri, því í því blaði
yrði áreiðanlega eitthvað fyrir alla.
MÁLSVARI OFBELDISINS
Ófrelsið er óvinur allrar sannrar mennt-
unar, það er því eðlilegt, að menntamenn
hafi á öllum tímum staðið fremst í flokki í
baráttunni gegn kúgun og ofbeldi enda
margir orðið að fórna lífinu í þeirri baráttu,
aðrir orðið að flýja land og enn aðrir verið
fangelsaðir, pyntaðir og kefldir. Það er því
vansi, að innan veggja háskólans hýrast
menn, sem ávalt eru reiðubúnir að leggja
blessun sína yfir landvinningastefnu Rússa
og ofbeldi, kúgun og valdaráni þeirra og
þeirra dindla. Hvert landið af öðru hefm:
hinn rússneski her brotið undir hið víðáttu-
mikla ríki, kommúnismanum verið þröngv-
að upp á hverja þjóðina af annari, allir
flokkar verið bannaðir aðrir en kommúnista-
flokkurinn. Yfirvöldin sagt til um, hvað skuli
prentað, hvað megi segja, hvaða list sé svo
hrein af borgaralegum áhrifum, að hún eigi
heíma í alþýðuríki og fólkinu haldið í skefj-