Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 11

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt. 1948, Side 11
KOSNINGABLAÐ 11 um með hervaldi, leynilögreglu, fangelsun- um og líflátum. Sama, hvað gerzt hefur, allt- af hafa kommúnistar um heim allan varið þessar aðgerðir og lagt blessun sína yfir þær, og innan háskólans hafa þessir menn fylkt sér í félag róttækra stúdenta og því miður tekizt að draga aðra saklausa og hrekklausa stúdenta með sér, en auk þess hafa hinir svívirðilegustu verið valdir úr og uppfræddir í kommúnistiskum kúnstum í margs konar félagsskap öðrum svo sem Gromyko-málfundafélaginu, sem í fyrra auglýsti samkomur sínar hér í ganginum, stúdentum til mikillar furðu. ÍÞRÓTTAHÚS HÁSKÓLANS Merkasti viðburður í sögu síðasta há- skólaárs er án efa bygging hins glæsilega íþróttahúss háskólans, sem kostaði 1 'A millj. króna. Stúdentar ættu að meta þessa gjöf með því að stunda íþróttir í húsinu, ekki til að fullnægja íþróttaskyldu eða til að vinna nein afrek heldur sér til heilsubótar og hressing- ar en íþróttirnar eru vörn gegn margs kon- ar sjúkleika og uppbót fyrir langar inni- setur. Það er mikils vert til þess að þátttaka í íþróttunum verði almenn að haga rekstri hússins þannig, að sem haganlegast verði fyrir stúdenta. Þeir, sem búa á Görðunum, ættu að vísu að eiga hægt með að sækja íþróttatímana, en hitt er erfiðara fyrir stúd- enta, sem eiga heima úti í bæ, upp í Klepps- holti, suður í Hafnarfirði eða vestur á Sel- tjarnarnesi, að gera sér sérstaka ferð upp í Háskólahverfið einungis til að striplast í leikfimi í 3 stundarfjórðunga eða ekki það. Það þarf því að reyna að haga því svo, að menn geti samræmt íþróttatímana öðrum tímum, sem þeir sækja. Til þess að koma þessu heim, þyrfti að hafa nógu marga tíma á dag ,sem stúdentar gætu svo mætt í, eftir því sem hverjum hentaði bezt, teldi ég rétt- ast að við samningu reglugerðar fyrir notk- un hússins yrði leitað samvinnu við fulltrúa stúdenta frá hinum ýmsu deildum háskól- ans. Annað atriði, sem hjálpað getur til þess, að stúdentar sæktu íþróttirnar, er það, að komið yrði upp í háskólanum geymsluhólf- um, þar sem stúdentar utan úr bæ gætu geymt m. a. leikfimisföt sín og handklæði og hefði hver stúdent sitt læsta og tölusetta geymsluhólf, en það má búast við, að stúd- entar létu oft undir höfuð leggjast að koma með leikfimisföt eða handklæði í skólann og færust þá íþróttatímarnir hjá af þeim sökum. A-LISTINN er sameiginlegur listi frjálslyndra stúdenta og lýðræðissinnaðra sósíalista innari háskól- ans. Þeir, sem að honum standa, eru ekki að öllu leiti sammála í þjóðfélagsmálum en þeir eru allir sammála um, að vinna öflug- lega að hagsmunamálum stúdenta. Stúdentar, hjálpið þeim til þess og vinnið að sigri A-listans. A-LISTINN 1. Bjarni V. Magnússon, stud. oecon. 2. Stefán Hilmarsson, stud. jur. 3. Sigurjón lóhannesson, stud. mag. 4. Eiríkur Bjarnason, stud. med. 5. Rafn lensson, stud. polyt. 6. Guðmundur Gunnarsson, stud. polyt. 7. Magnús Guðjónsson, stud. jur. 8. Helgi Helgason, stud. jur. 9. Ingimar lónasson, stud. oecon. 10. Rannveig Þorsteinsdóttir, stud. jur. 11. Guðmundur Benediktsson, stud. med. 12. Björn H. lónsson, stud. theol. 13. Guðmundur lóhannesson, stud. theol. 14. Stefán Sörensson, stud. jur. 15. Árni Stefánsson, stud. jur. 16. Sveinn Finnsson, stud. jur. 17. lón P. Emils, stud. jur. 18. Tómas Árnason, stud. jur. Misheppnaður áróður Kommúnistar hafa haldið því mjög á lofti í þessari kosningabaráttu, að fulltrúar A- listans ætli að semja við Vökumenn um stjórn ráðsins að kosningunum loknum. Vökumenn hins vegar halda því fram, að fulltrúarnir ætli að semja við kommúnista um sama efni. Má segja, að margt munu stúdentaráðsfulltrúar A-Iistans hafast að eftir kosningarnar! Hins vegar skal kjósendum hér með kunngjört, að staðhæfingar andstæðing- anna í þessa átt eiga sér engan stað í veru- leikanum. Um þetta atriði munu félagsfundir félag- anna fjalla að kosningum loknum, sam- kvæmt samkomulagi félagsmanna. En gæti ekld hugsast, að til fulhrúa A- listans . verði eigi leitað í sambandi við stjórnarmyndun. Ætli kommúnistum og íhaldsmönnum myndi æja við að taka höndum saman um forystu í stúdentaráði. Slíka samvinnu hafa íslendingar áður þekkt í bæjarmálefnum, og ekki komst hnífurinn á milh kommúnista og íhaldsmanna innan nýsköpunarstjórnarinnar. Ábyrgðarmenn: Árni Gunnlaugsson og Tómas Árnason Prentsmiðja Hafnarfjarðar h.f. — 1948

x

Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista
https://timarit.is/publication/2074

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.