Kosningablað Félags frjálslyndra stúdenta og Stúdentafélags lýðræðissinnaðra sósíalista - okt 1948, Page 11
KOSNINGABLAÐ
11
um með hervaldi, leynilögreglu, fangelsun-
um og líflátum. Sama, hvað gerzt hefur, allt-
af hafa kommúnistar um heim allan varið
þessar aðgerðir og lagt blessun sína yfir
þær, og innan háskólans hafa þessir menn
fylkt sér í félag róttækra stúdenta og því
miður tekizt að draga aðra saklausa og
hrekklausa stúdenta með sér, en auk þess
hafa hinir svívirðilegustu verið valdir úr og
uppfræddir í kommúnistiskum kúnstum í
margs konar félagsskap öðrum svo sem
Gromyko-málfundafélaginu, sem í fyrra
auglýsti samkomur sínar hér í ganginum,
stúdentum til mikillar furðu.
ÍÞRÓTTAHÚS HÁSKÓLANS
Merkasti viðburður í sögu síðasta há-
skólaárs er án efa bygging hins glæsilega
íþróttahúss háskólans, sem kostaði 1 'A millj.
króna.
Stúdentar ættu að meta þessa gjöf með
því að stunda íþróttir í húsinu, ekki til að
fullnægja íþróttaskyldu eða til að vinna nein
afrek heldur sér til heilsubótar og hressing-
ar en íþróttirnar eru vörn gegn margs kon-
ar sjúkleika og uppbót fyrir langar inni-
setur.
Það er mikils vert til þess að þátttaka í
íþróttunum verði almenn að haga rekstri
hússins þannig, að sem haganlegast verði
fyrir stúdenta. Þeir, sem búa á Görðunum,
ættu að vísu að eiga hægt með að sækja
íþróttatímana, en hitt er erfiðara fyrir stúd-
enta, sem eiga heima úti í bæ, upp í Klepps-
holti, suður í Hafnarfirði eða vestur á Sel-
tjarnarnesi, að gera sér sérstaka ferð upp í
Háskólahverfið einungis til að striplast í
leikfimi í 3 stundarfjórðunga eða ekki það.
Það þarf því að reyna að haga því svo, að
menn geti samræmt íþróttatímana öðrum
tímum, sem þeir sækja. Til þess að koma
þessu heim, þyrfti að hafa nógu marga tíma
á dag ,sem stúdentar gætu svo mætt í, eftir
því sem hverjum hentaði bezt, teldi ég rétt-
ast að við samningu reglugerðar fyrir notk-
un hússins yrði leitað samvinnu við fulltrúa
stúdenta frá hinum ýmsu deildum háskól-
ans.
Annað atriði, sem hjálpað getur til þess,
að stúdentar sæktu íþróttirnar, er það, að
komið yrði upp í háskólanum geymsluhólf-
um, þar sem stúdentar utan úr bæ gætu
geymt m. a. leikfimisföt sín og handklæði
og hefði hver stúdent sitt læsta og tölusetta
geymsluhólf, en það má búast við, að stúd-
entar létu oft undir höfuð leggjast að koma
með leikfimisföt eða handklæði í skólann
og færust þá íþróttatímarnir hjá af þeim
sökum.
A-LISTINN
er sameiginlegur listi frjálslyndra stúdenta
og lýðræðissinnaðra sósíalista innari háskól-
ans. Þeir, sem að honum standa, eru ekki
að öllu leiti sammála í þjóðfélagsmálum en
þeir eru allir sammála um, að vinna öflug-
lega að hagsmunamálum stúdenta.
Stúdentar, hjálpið þeim til þess og vinnið
að sigri A-listans.
A-LISTINN
1. Bjarni V. Magnússon, stud. oecon.
2. Stefán Hilmarsson, stud. jur.
3. Sigurjón lóhannesson, stud. mag.
4. Eiríkur Bjarnason, stud. med.
5. Rafn lensson, stud. polyt.
6. Guðmundur Gunnarsson, stud. polyt.
7. Magnús Guðjónsson, stud. jur.
8. Helgi Helgason, stud. jur.
9. Ingimar lónasson, stud. oecon.
10. Rannveig Þorsteinsdóttir, stud. jur.
11. Guðmundur Benediktsson, stud. med.
12. Björn H. lónsson, stud. theol.
13. Guðmundur lóhannesson, stud. theol.
14. Stefán Sörensson, stud. jur.
15. Árni Stefánsson, stud. jur.
16. Sveinn Finnsson, stud. jur.
17. lón P. Emils, stud. jur.
18. Tómas Árnason, stud. jur.
Misheppnaður áróður
Kommúnistar hafa haldið því mjög á lofti
í þessari kosningabaráttu, að fulltrúar A-
listans ætli að semja við Vökumenn um
stjórn ráðsins að kosningunum loknum.
Vökumenn hins vegar halda því fram, að
fulltrúarnir ætli að semja við kommúnista
um sama efni. Má segja, að margt munu
stúdentaráðsfulltrúar A-Iistans hafast að
eftir kosningarnar!
Hins vegar skal kjósendum hér með
kunngjört, að staðhæfingar andstæðing-
anna í þessa átt eiga sér engan stað í veru-
leikanum.
Um þetta atriði munu félagsfundir félag-
anna fjalla að kosningum loknum, sam-
kvæmt samkomulagi félagsmanna.
En gæti ekld hugsast, að til fulhrúa A-
listans . verði eigi leitað í sambandi við
stjórnarmyndun. Ætli kommúnistum og
íhaldsmönnum myndi æja við að taka
höndum saman um forystu í stúdentaráði.
Slíka samvinnu hafa íslendingar áður þekkt
í bæjarmálefnum, og ekki komst hnífurinn
á milh kommúnista og íhaldsmanna innan
nýsköpunarstjórnarinnar.
Ábyrgðarmenn:
Árni Gunnlaugsson og Tómas Árnason
Prentsmiðja Hafnarfjarðar h.f. — 1948