Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Page 2
2
SUNNUDAGASKÓLABLAÐ
Blaðið er vonandi aðeins lítill vísir þess aukna
barnastarfs, er koma skal og ég hlakka til, þegar það
verður. Vonandi verður það líka sem allra fyrst, að
krisiilega barnastarfið gefi sjálft út blað sitt.
Útgefandi.
'T'
PÁLMASUNNUDAGUR
Lestu Mark. 11, 1.—10.
Minnistexti: Og þeir sem fóru á undan og þeir
sem fylgdu á eftir hrópuðu: Hósanna! blessaður
sé sá, sem kemur í nafni Drottins. (Mark. 11,9).
í guðspjöllunum er sagan skráð um fyrsta Pálma-
sunnudaginn. Þá voru glaðir lærisveinar á ferð með
Jesú, sem gjörðu eins og hann sagði þeim. Þegar Jesús
bauð tveim þeirra að fara sendiferð, flýttu þeir sér
og gjörðu eins og hann lagði fyrir þá, og fengu að
reyna að erindið gengur vel, ef fyrirmælum Jesú er
hlýtt. Þeir elskuðú Jesú og vissu, að hann var sonur
Guðs, af himnum sendur til þess að stofna Guðsríki
á jörð. Þeir hylltu hann sem konung sinn og höfðu í
hjarta sínu heitið að fylgja honum og þjóna alla sína
daga.
Þegar Jesús steig á bak folanum, sem þeir höfðu
sótt handa honum, og hóf innreið sína til höfuðborg-
arinnar, þá lustu þeir upp miklu fagnaðarópi. Og
innilega glöddust þeir, er þeir sáu mannfjöldann, sem
kom á móti þeim frá borginni, hylla Jesú og sýna
honum dýpstu lotningu.
Fleiri og fleiri tóku undir lofsöng lærisveinanna,
svo að lofgjörðin svall um allar hlíðar Olíufjallsins
og bergmálaði frá múrum Jerúsalemborgar.
Lærisveinarnir fögnuðu, er þeir sáu þennan mikla