Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Blaðsíða 2

Sunnudagaskólablað - 02.04.1944, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGASKÓLABLAÐ Blaðið er vonandi aðeins lítill vísir þess aukna barnastarfs, er koma skal og ég hlakka til, þegar það verður. Vonandi verður það líka sem allra fyrst, að krisiilega barnastarfið gefi sjálft út blað sitt. Útgefandi. 'T' PÁLMASUNNUDAGUR Lestu Mark. 11, 1.—10. Minnistexti: Og þeir sem fóru á undan og þeir sem fylgdu á eftir hrópuðu: Hósanna! blessaður sé sá, sem kemur í nafni Drottins. (Mark. 11,9). í guðspjöllunum er sagan skráð um fyrsta Pálma- sunnudaginn. Þá voru glaðir lærisveinar á ferð með Jesú, sem gjörðu eins og hann sagði þeim. Þegar Jesús bauð tveim þeirra að fara sendiferð, flýttu þeir sér og gjörðu eins og hann lagði fyrir þá, og fengu að reyna að erindið gengur vel, ef fyrirmælum Jesú er hlýtt. Þeir elskuðú Jesú og vissu, að hann var sonur Guðs, af himnum sendur til þess að stofna Guðsríki á jörð. Þeir hylltu hann sem konung sinn og höfðu í hjarta sínu heitið að fylgja honum og þjóna alla sína daga. Þegar Jesús steig á bak folanum, sem þeir höfðu sótt handa honum, og hóf innreið sína til höfuðborg- arinnar, þá lustu þeir upp miklu fagnaðarópi. Og innilega glöddust þeir, er þeir sáu mannfjöldann, sem kom á móti þeim frá borginni, hylla Jesú og sýna honum dýpstu lotningu. Fleiri og fleiri tóku undir lofsöng lærisveinanna, svo að lofgjörðin svall um allar hlíðar Olíufjallsins og bergmálaði frá múrum Jerúsalemborgar. Lærisveinarnir fögnuðu, er þeir sáu þennan mikla

x

Sunnudagaskólablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagaskólablað
https://timarit.is/publication/2076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.