Alþýðublaðið - 07.06.1926, Side 2
2
ALÞtÐUBLAÐID
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
í kemur út á hverjum virkum degi.
! Afgreiðsla i Alpýðuhúsinu við
< Hverfisgötu 8 opin frá kl. 9 árd.
: til kl. 7 siðd.
; Skrifstofa á sama stað opin kl.
9 Va—10 Va árd. og kl. 8—9 siðd.
; Simar: 988 (aígreiðslan) og 1294
: (skrifstofan).
; Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á
I mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15
; hver mm. eindálka.
: Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan
(i sama húsi, sömu simar).
Með skyldum að skifta.
Við kosningarnar 1923 voru
„Sjálfstæðis“-mennirnir svo köll-
uðu allir i fylkingu íhaldsmanna.
Sigurður Eggerz, sera þá var Táð-
herra, barðist harðlega fyrir fram-
öjóðendum íhaldsins i Reykjavík
bg Gullbringu- og Kjósar-sýslu og
viðar. Jakob Möller var kosinn á
lista íhaldsins i Reykjavík. Bjarni
frá Vogi og Benedikt Sveinsson
voru einnig studdir af íhalds-
mönnum og veittu þeim stuðning
i móti.
,jSjálfstæði“ og Ihald ruglaði þá
saman reitum sinum og hefir ekki
borið fá neinu ósamkomulagi i
þeim herbúðum.
Sigurður Eggerz studdi íhalds-
stjórnina til valda. (Það var eftir
að þeir höfðu sett íhaldsnafnið
á flokkinn.) t>á var það, að Jön
Þorláksson bauð S. E. banka-
stjórastöðu við Islandsbanka, að
sögn S. E. sjálfs. En S. E. fylgdi
þeirri gömlu og góðu reglu, sem
rétt var(!?), „að betra er hjá sjálf-
um sér að taka en barn sitt eða
bróður að biðja." Og á þinginu
1925 greiddu þeir Bjarni og Bene-
dikt atkvæði á móti vantrausts-
yfirlýsingu á íhaldsstjómina.
lhaldsstjórnin hefir því hingað
til setið í skjóli „Sjálfstæðis"-
manna. Ihald og „Sjálfstæði" hef-
ir verið ein hjörð, og yfirhirðir
hefir verið foringi Ihaldsins, Jón
Þorláksson.
Nú er kjörtimi SigurÖax Eggerz
liðinn, og nú vill bann heimta, að
skifti fari’ fram á kosningareit-
um Ihalds og „Sjálfstæðis", —
að minsta kostt fram yfir lands-
kjörið.
Krafa SigurÖar i samlagsbúið
er aö sögn sú, að hann fái fyret
og fremst að halda öllu því fylgi,
sem íslandsbanki getur haft i
landinu; í öðru lagi krefst hann
þess, að Ihaldið Iáti honum i té
svo mikið af atkvæðum við lands-
kjörið, að hann hafi líkur fyrir
þvi að verða kosinn. Sagt er, að
íhalds- og SjáIfstæðis“-broddarnir
hafi mjög mikið um það hugsað
að skifta nú svo jafnt kjörfylgi
sinu, að bæði Jón Þorláksson og
Sigurður Eggerz verði kosnir. En
þá kemur upp sá skolli, að ekki
sé víst, að svo mikið sé kjörfylgi
hinna sameinuðu, að það' sé til
tviskiftanna. En Jön vill pg Sig-
nrður vill; báðir vilja komast að.
Nú er úr vöndu að ráða. Helzta
úrræði hinna sameinuðu er það,
að Sigurður herji á þau héruð
gagnsóknarlaust af íhaldinu, þar
sem mikið er fylgi Alþýðuflokks-
ins. Lét S. E. þetta eftir þeim og
fór til ísafjarðar og annara staða
á Vestfjörðum, en heldur kvað
vera dauft yfir honum yfir árangri
þeirrar farar, og er hann þó mað-
ur bjartsýnn, því aö þótt Sigurð-
ur sé i sumu frjálslyndari en
römmustu íhaldsmenn, þá get-
ur hann ekki vænst þess, að nokk-
ur Alþýðuflokksmaður ljái honum
fylgi sitt, svo framarlega sem
hann hefir i flokki staðið í seinni
tið að rífa niður landsverzlun, og
svo fast sem hann og sumir aðrir
flokksmenn hans hafa staðið á
móti aðal-stefnumálum Alþýðu-
flokksins, En vel mega Alþýðu-
flokksmenn una því, að þessir
gömlu samherjar, „Sjálfstæði" og
íhald, rifist nú um kosningafylgi
kaupmanna og útgerðarmanna.
Hitt myndi ekki grátið, þótt þeirri
deilu lyki svo, að þar veitti ýms-
um verr en hvorugum betiu-.
Vestfirðingur,
Um daginn eg veginn.
Nætnrlæknir
er i nött Guðmundur Guðlinnsson,
Hverfisgötu 35, simi 1758.
í dag
eru 21 ár síðan stórpiogið norska
santpykti að sambandi Norðmanna
við Svia skyldi slitið.
Hættir veiðum
eru togaramir: Hihnir, Baldur,
Gylfi, Hannes ráöherra og Ólafur.
Eru Belgaum og Júpíter þá einir
eftir á veiðum, Belgaum á salt-
fisksveiðum, en Júpíter á ísfisks-
veiðum. — Útgerðarmennirnir veröa
svo sem ekki í vandræðum með
flotasýningu fyrir konginn.
Togararnir.
Ölafur kom i gær með 36 tunn-
ur. Þá kom og franskur togari
hingað.
Veðrið.
Hiti 11—7 stig. Átt suðlæg og
austlæg, hæg. Lofh'ægislægð fyrir
sunnan land. Útlit: Suðaustanátt
fj'rst, en verður fremur hæg sunn-
anátt í nótt. Úrkoma víða, poka
verður sumstaðar i nótt.
Hljómsveitin þýzka
hélt í gærkveldi hljómleika i
dómkirkjunni, fullri áheyrenda.
Vegna kunnugleika á efninu drógu
hin snjöllu, nýju lðg eftir Jón Leiffi
við Galdra-Loft og þjóðlögin efti»
Svendsen við „Keisari nokkur, mæt-
ur mann”, að sér athyglina. —
Næstu hljómleikar verða á morg-
un, og verða þá leikin lög eftir
Mozart og Bach. Þá leikur fyrsti
hornleikari sveitarinnar, Albert
Doscher, born-„konzert“ eftir M<y-
zart.
Silfurbruðkaup
hjónanna frú Halldóru Bjöms-
dóttur og Þórðar Sigurössonar,
prentara í Gutenberg, er í dag.
119 ár
enu í dag frá fæðingu sr. Tómasar
Sæmundssonar, samstarfsmanns Jón-
asar Hallgrimssonar að viðreisn og
mentun islendinga.
Skemtun
var baldin áð Varmá í gær. F6r«
þangaö margir Reykvikingar, og
var framkoma flestra þeirra peim
lítt til sóma.
Frá safnaðarfundinum i gær.
Sampykt var tillaga frá fyrra
ísafnaðarfundi um að hraða iíkhúss-
byggingu, en feld önnur tillaga frá
Sveini Jónssyni, um að verja 5 þús.
kr. úr kirkjugarðssjóði til viðgerð-
ar á gamla likhúsinu, — þar eð
kirkjugarðsvörðurinn, Felix Guð-
mundsson, og að pví er virtist flest-
ir aðrir fundarmenn töldu viðgerð
á því ógerlega. Áætlað er, að löt-
hússbyggingin kosti 35 þús. kr., og
gerði Sigurbjörn Á. Gíslason þá ét~
ætlun, að niðurjöfnun þess að hélfu
verðj 60 aurar á gjaldanda á ári
þrjú næstu árin, en hinn hlutinn,
sem jafna skal niður eftir efnum
og óstæðum, yrði 2—3 kr. á hæstu
gjaldendur, en nokkrir aurar á
flesta. Samþykt var tillaga frá
Kjartani ólafssyni steinsmið um
skipun nefndar til að undirbúa ann-
að tveggja stækkun dómkirkjunn-
ar að miklum mun eða nýja kirkju-
byggingu innan fjögurra ára. —
Samkvæmt tilmælum Sigurjóns A.
Óiafssonar lofaði formaður sóknar-