Alþýðublaðið - 15.06.1926, Side 1
1926.
Þriðjudaginn 15. júní.
135. tölublað.
Gefið át af Alpýðaaoktamm
Ihaldið varitáriaust
i kjördæmi ihaldsþingsmamis.
Mjög fjölmennur landsmála-
fundur á Paíreksfirði.
Einöregið fylgi með A-listanum.
(Einkaskeyti til Alpýðublíiðsins.)
Patreksfirði, 14. júní.
Mjög fjölmennur verkalýðs- og
landsmála-fundur var haldinn hér
íjgærkveldi. Enginn tók upp vörn
fyrir íhaldíð. Alment fyigi A-iistans.
Erfeiisl simskeyil.
Khöfn, FB., 14. júní.
Marokkömálin.
Frá París 'er símað, að Briand
hafi haldið ræðu í pinginu um
Marokkómálin, og ságði hann
m. a., að Spánn og Frakkland
muni ráða íram úr Márokkómál-
unum án pátttöku annara ríkja.
Barið á mótmælandi alpýðu-
fólki.
Frá Prag er sírnað, að par hafi
íent í blóðugum götubardögum
milli sameignarsinna og lögreglu-
manna. Sæi'ðust margir. Sam-
pignatsinnar höfðu safnast saman
til pess að mótmæla toili á land-
búnaðarvörum, er nýlega var
sampyktur.
Afieiðingarnar af ósanngirni
auðvaldsins.
Frá Lundúnum er símað, að
ínnflutningar hafi orðið svo mikið
minni í máí heldur en apríl, að
fluttar voru inn vörur í maí fyrir
21 milljón sterlingspunda minna
en í apríl. Verðmæti útfluttra
vara var 7 millj. steriingspunda
minna í maí heldur en apríl. Eru
þetta afleiðingar verkfallsins.
Tjón af hvirvilvindi í Sviss.
Frá Bern er shnað, að mikill
hvirftlvindur hafi komið nálægt
Masaburger Fhilhariaoaisches Orchester.
Siðnstu hijómleikar
undir stjórn Jóns Leifs í Dómkirkjunni miðviksid. 16. jp. m. kl. 9 e. h.
Aðgöngumiðar seldir í Hljóðfærahúsinu í dag og á morgun
og i Iðnó ' sömu daga frá kl. 4. — Sími 12.
Chaux du fond og gert stórtjón
á skógum og húsum. Margir
særðust.
Einræðiskröfur pólsku stjórn-
arinnar.
Frá Varsjá er símaö, að stjórnin
lofi . pingkosningum innan hálfs
árs. Krefst hún stjórnarskrár-
breytingar, sem heimili stjórninni
löggjafarvaJd, pegar ping er ekki
haldiö.
Deilan um fu istaeignirnar.
Flokkarnir Mast til baráttu.
Frá Berlín er símað, að flokk-
arnir hervæðist og búi sig undir
pjóðaratkvæðagreiðsluna um til-
iögu jafnaðarmanna (lýðvalds-
jafnaðarmanna og sameignar-
sinna) um endurbótalaust eigna-
nám meðal furstanna. Allir auð-
valdsílokkarnir nema pjóðræðis-
sinnar hvetja kjósendur til pess
að fella tillöguna.
Innlend tíHIndi.
Akureyri, FB., 14. júní.
Landsfundi kvenna lokið.
Landsfundi kvenna lauk í dag
síðdegis eftir viku fundahöld. Tíu
órindi voru flutt á fundinum uro
ýms áhugamál kvenpjóðarinnar,
og' voru flest mikið rædd, par á
meðal um ávarpstitil kvenna.
Frummælandi, Halldóra Bjarna-
dóttir, vildi, að frúartitillinn væri
notaður um allar konur, giftar
sern ógiftar. Sampykt að bera
málið undir kvenfélög landsins og
fá álit peirra.
Apa- og slðngn-
eikhus
Sýning í Bárubúð í kvöld
klukkan 8.
1 gær fóru konurnar í bifreiðum
að Grund, en um kvöldið var hér
skilnaðarsamsæti og rnargar ræð-
ur fiuttar og kvæði sungið eftir
Krístinu Sigfúsdóttur skáldkonu.
Glúnta^kvold.
1 gærkveldi sungu þeir Helge
Nissen frá konungiega leikhúsinu
í Höfn og Hendrik Dahl söngvari
frá Osló hina vinsælu Glúnta
Wennerbergs í Nýja Bíö fyriir
troðfullu húsi. Voru áheyrendurn-
ir ekki siður hrifnir af,leik söng-
maUnanna en söng peirra; mönn-
um virtust pessir tveir stúdentar,
„Glunten“ og „Magisteren“, standa
fyrir framan pá á söngpaliinum.
Helge Nissen, sem söng hlut-
verk „Gluntens", hefir mjög fagr-
an bassa-baryton, sem hljómaði
ágætlega, og Hendrik Dahl hreif
alla áheyrendurna með hinu mikla
fjöri sínu.
Söngmennirnir höfðu góðan
stuðning í frú Valborgu Einars-
son, sem lék undir. Skémtu
rnenn sér ágætlega við söng
þennan og klöppuðu óspart lof í
lófa bæði á eftir hverju iagi og
i iok hljómleikanna. F.
: