Alþýðublaðið - 20.07.1926, Qupperneq 3
ALfetgUBLAglÐ
3
'?% ,T
Um dagiim oy veginn.
Fiskafli
á öllu landinu hefir 1. júlí s. I.
verið orðinn 199439 skpd. af full-
verkuðum fiski. Árið 1925 nam afl-
inn á sama tíma 224828 skpd., eri
1924 (aflaárið mikla) 187692. Fisk-
urinn er vænni í ár en í fyrra. Af
aílanum er stórfiskur nú 150508
skpd.j en vai* í fyrra 149177 skpd.
Tölur þessar eru eftir skýrslu Fiski-
félagsins í júniblaði „Ægis“.
Páll Isólfsson
heldur næsta orgelhljómleilc sinn
í fríkirkjunni næsta fimtudag kl.
9. Verður sjálfsagt mikil aðsókn þar,
svo mjög sem áheyrendum fanst til
um síðasta hljómleikinn.
Skemtiferðaskip
þýzkt kemur hingað um næstu
Ferðatðskor
allar stærðir, mjög ódýrar
verzl. „JUfa“
Bankastræti 14,
Sími 1715. Simi 1715.
helgi og stendur hér við sunnudag
og mánudag. — Von er og á ítölsku
skemtiferðaskipi innan skamms.
Sjómerki.
I sumar á að endurreisa sjó-
merkjavörður, sína á hvorri eyju,
Stakksey og Súgandisey við Stykk-
ishólin og setja á þær toppmerkja-
plötur svartar, í Stakksey þrí-
strenda og viti horn niður, en fer-
strenda í Súgandisey.
, .. ..
Gott næmi.
„Lögrétta“ segir nýlega frá skag-
firzkri konu á níræðisaldri, Sigur-
björgu á Merkigili, og getur þess,
að s. 1. ár lærði hún utan að 120
nýja sálma og lcunni einnig mjög
margt fyrir.
Gengi erlendra mynta i dag:
Sterlingspund...........kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 120,77
100 kr. sænskar .... — 122,16
100 kr. norskar .... — 100,06
Dollar..................— 4,56l/o
100 frankar franskir. . . — 10,15
100 gyllini hollenzk . . — 183,46
100 gullmörk þýzk... — 108,52
Næturlæknir
er í nótt Árni Pétursson, Upp-
sölum, sími 1900.
■■Á Á' "
Brunamálið.
Maður sá, er tilkynti lögregiunni,
að hann hefði kveikt í húsinu á
Smiðjustíg 4, var húsbóndi fjöl-
skyldu þeirrar, sem þar býr. 1 dag
átti að flytja hann til Þórðar læknis
Sveinssonar, svo að athugað yrði,
hvort vit mannsins er óskert.
Maður beið bana sf slysi.
1 gær fór maður frá Mýrarhúsum
á Seitjarnarnesi að sækja sand í
sandgryfju skamt frá barnaskólanum
þar á nesinu. Með manninum var
drengur, 10 ára gamall. Meðan þeir
voru niðri í gryfjunni brast bakka-
brúnin og hrapaði skriða mikil yfir l
manninn. Drengurinn stóð dálitið
lengra frá og kornst því undan.
Illjóp hann þegar til bæjar og sagði
Frá slysinu og fóru nokkrir menn
undir eins til að grafa manninn
upp úr skriðunni. Voru 6 eða 7
skóflustungur niður að honum. Var
hann dáinn áður en honuin yrði
bjargað. Var Jón Hj. Sigurðsson
læknir þegar fenginn þangað.
Reyndi hann lengi að lífga mann-
inn, en það varð árangursíaust.
Maðurinn hét Ingólfur Zakaríasson.
Stakkasundið.
Þriðji maðurinn í því var Bjarni
Helgason sjómaður, er svam spöl-
inn á 3 mín. 17,2 sek. Er hér með
leiðrétt sú villa, er slæddist um
þetta inn í frásögnina í gær um
sundið.
■ riji • . -
Veðrið. * “
Hiti 14—9 stig. Átt víðast suðlæg.
Snarpur vindur i Vestmannaeyjum
og á Raufarhöfn. Annars staðar
iygnara. Loftvægislægð um Vestur-
iand. Útlit: Allhvöss suðvestanátt
annars stoðar en á Norðvestur-
landi. Skúrir og þokuloft á Suður-
og Vestur-landi.
Tíðarfarið.
Regnsamt er mjög hár á Suður-
landi./I Borgarfirði kveða tún vera
tekin mjög að gulna, en það, sem
slegið hefir verið, grotnar niður af
óþurki. Sama er sagan víðar að.
Sums staðar er súrheysverkun talin
koma að miklum notum.
Krónuseðlarnir
eru að eins gjaldgengir til næstu
mánaðamóta .Eftir þann tima eru
þeir ógildir. Menn, sem eiga þá,
eru hér með aðvaraðir um, að fá
þeim skift í bönkunum fyrir þann
tíma.
Einar ská'aglam: Húsið við Norðurá.
bíða eftir því, að hegningin tæki enda, og
þá tæki betra við. En þegar hann fór að
skifta við Gunnlaug sýslumann Elentinusson,
fanst honum þó taka út yfir allan þjófa-
bálk.
Hann hafði símað til sýslumannsins á und-
an sér og sagt honum erindi sitt.
Þegar hann kom upp eftir, stóð yfirvald-
ið á bryggjunni með borðalagt kaskeiti og
tók á móti honum.
Sýslumannshúsið ló rétt fyrir ofan bryggj-
una, og þangað fylgdi sýslumaður og inn
í stofu. Par sat frúin, sem Goodmann John-
son heilsaði kurteisléga, og var síðan sezt
að kaffidrykkju. Hann var að vísu svo am-
erískur i hugsun, að honum fanst honum.
lægi á öðru fyrr í þeim erindagerðum, semi
hann var, en að fara að setjast að kaffi-
drykkju með sýslumann6frúnni, en fyrir kurt-
eisissakir sat hann þó á sér.
Að lokinni kaffidrykkjunni leiddi sýslu-
maður Goodmann Johnson inn á skrifstofu
sína og bauð honum viðsjárveröan vindil.
„Thank you. Ég reyki pípu,“ sagði hann
og kveikti í og bjóst við, að nú yrði tekið
til við morðmálið, en það fór á annan veg.
„Hafið þér lesið síðasta heftið af „Járn-
brautarlestinni“ ?" spurði sýslumaður.
„Nei,“ anzaði Johnson. Hann var alveg
hissa.
„Það megið þér til með að gera, þar er
eitt af fegurstu kvæðum nýkleppismans eft-
ir Dellar Leirs. Nú skuluð þór heyra." Hann
fietti upp, en Johnson var orðinn fjólublár
í framan af reiði.
„Nú skuluð þér heyra,“ sagði sýslumaður.
„Er þetta ekki dásamlegt:
Á grammófóni’ eg geysist fram á' völlinn
með grábröndóttan aplakálf í taumi
.*.......r