Alþýðublaðið - 27.08.1926, Síða 2

Alþýðublaðið - 27.08.1926, Síða 2
2 Ialþýðublaðið í lcpmur út á hverjum virkum degi. * --------- ■' " { Afgreiðsla í Alpýðuhúsinu við < Hveríisgötu 8 opin írá k\. 9 árd. { til kl. 7 síðd. < Skrifstofa á sama stað opin kl. \ 91/2—'10 Vs árd- kL 8—9 siðd- } Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 í (skrifstofan). ; Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á J mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 ; hver mm. eindálka. < Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan ; (i sama húsi, söntu simar). Músnæðisleysi. Óafsakanleg vanræksla. Þótt enn sé rúmur mánuður til flutningsdags og ekki sé kominn frá atvinnustörfum úti um land fjöldi manna, sem á heima hér í hænum, pá eru kvartanir fólks um húsnæðisleysi pegar orðnar allmiklar. Afnám húsaleiguiag- anna er þegar farið að verka á þann hátt, að reynt sé að neyta þes^, að leigjendur eru varnar- lausir að vori komanda. Fyrir- sjáanlegt er, að fjöldi manns verður húsnæðislaus í haust, 0g verður sennilega gripið til ein- hverra örþrifaráða, svo sem bygg- ingar nýs „Grímsbýjar", til að grynna á vandræðunum. Ætli ekki hefði verið skynsam- legra að nota þann vínnukraft, sem ónotaður hefir verið í sum- ar sakir togarastöðvunarinnar, tii þess að byggja góð hús fyrir bæinn, sem bæði hefÖu getað orð- ið til arðs fyrir fólkið og bæinn og jafnframt látið í té húsnæði fyrir sanngjarna leigu? Þar með hefði líka mátt hafa hemii á fyr- irsjáanlegu húsaleiguokri, þegar vernd húsaleigulaganna í því efni fyrir leigjendur er úr sögunni á vori komandi. Vanrækslan í þessu efni er alveg óafsakanleg. En svona er ráðlag íhaldsins, hirðuleysi um ástandið, sem er, Qg fyiírhyggjuleysi um það, sem að höndum fer. Hljómleikur N. 0. Raasteds í fríkirkjunni í gær líkaði áheyrendum vel, sem að líkum ræður, par sem hann er tal- inn bezti organleikari í Danntörku. Ætlar hann að halda Bach-hljómleik á sunnudaginn. ÁjLir V Puli1./iX,íp E s p erantopingið. Eftir Öl. Þ. Kristjánsson. / 2. Upphaf pingsins. Lesendunum til skýringar skal það tekið fram, að esperantistar hafa nú um langt skeið haldið þing eða allsherjarfund árlega —• sum stríðsárin gengu vitanlega úr —, eins og sjá rná af því, að þetta skýldi vera hið 18. Er það ætlunarverk þessara þinga að vekja athygli á hreyfingunni og láta þá rnenn, sem utan við hana standa, sjá það, svo að ekki verði rnóti mælt, að Esperanto er í alla staði fært tii ætlunarverks síns: að létta viðskifti milli manna af ólíkum þjóðum og auka og glæða skilning þeirra og sam- úð, í fám orðum sagt: gera lífið betra og’ fegurra. Þingin eiga líka að vekja áhuga esperantistanna sjálfra og vera þeim sú afllind, er aldrei frýs og þeir geti því alt af unnið sér ljós og hita úr. Ég segi síðar frá því, hvernig þetta þing reyndist í þessu efni. f>að er venja, að byrja þingin með svo nefndu kynningarmóti. Er það iraldið i þeim tilgangi, að menn fái nokkuð tækifæri til að kynnast hverir öðrum, áður en alvarlegu störfin byrji. Svo var og gert að þessu sinni. Var þar margt um manninn, enda tóku þátt í þinginu langt á tí- unda hundrað manna af nálægt fjörutíu þjóðum, Menn voru þar jafnvel frá Brazilíu, Japan og Nýja-Sjálandi. En það var alveg sama, hvaðan menn voru. Allir heilsuðust og töluðu saman, eins og þeir væru gamlir kunningjar. Það er einmitt þessí bróðernis- andi, sem einna helzt sérkennir psperanto-þingin. Menn finna það, að þeir eru í vinahópi, og eru frjálsir og óþvingaðir, rétt eins og þeir væru heima hjá sínu eigin sifjaliði. Er það og sannast að segja, að líkar eru tilfinningar manna, þó ólíkt sé þjóðernið. Á þessu kynningarmóti voru og sungnir ýmsir lofsöngvar esper- antista. Þá sungu allir, er söng- rödd höfðu, og yar það bæði tilkomumikið og vann einnig að þvi að gera menn samrýndari, eins og sannreynt er að söngur gerir alt af. Má að lokum geta þess, að mót þetta var ágæt byrjun þess, sem á eftir kom. Sjálft þingið hóíst á mánudags- morgun 2. ágúst, og var byrjað á því að syngja sálm esperant- ista: „En la mondon venis nova sento“ (i heiminn kom ný kend). Síðan voru-haldnar ýmsar ræður. Kveðjur voru þinginu fluttar há- tíðlega frá ýmsum félögum, t. d. Rauða krossinum og Góð- tempiurum, eða þá frá ýmsum ríkisstjórnum. Borgarstjóri Edin- borgar hélt 0g ræðu í samkomu- byrjun. Fyrst bauð hann menn velkomna á Esperanto, og Jas hann það upp af blaði, því að sjálfur kunni hanh ekki Esper- anto, en vildi þó heiðra sam- komuna með því að rnæla á hennar máli. Síðan hélt hann ræðu á ensku og talaði þar um álit sitt og borgarstjórnarinnar — því að hann kom þarna frarn sem fulltrúi Edinborgar —■ á Esper- anto. Forseti þingsins þýddi sið- an aðalefni ræðunnar á Esper- anto, og var það alt mjög lof- samlegt. Um kvöldið bauð borgarstjórn- in öllum þingheimi í Listaskól- ann (College of Arts). Tóku þeir borgarstjóri og einn maður úr nefnd þeirri, er stóð fyrir þing- inu, þar a móti hverjum einstök- um og báðu velkominn. Kaffi, te, kökur, gosdrykkir og ísmeti var tií reiðu, eins og hver vildi hafa. I öðrum sal voru hljónrleik- ar, og voru þeir margir, er á þá hlýddu, en aðrir kusu heldur að rabba saman í veitingasalnum, a. m. k. annað veifið. Alt var kvöld- ið hið ánægjulegasta. Með boði þessu vildi borgar- stjórnin sýna hug sinn til Es- peranto-hreyfingarinnar, og er ó- hætt að fullyrða, að gestirnir hafi kunnað að meta þá velvild henn- ar, enda er gestrisni hvarvetna talin sú dygð, er höfðingjum hjartans sómi, eins og Islending- ar líklega vita. ^Frh.) Veðrið. Hiti 11—8 stig. Átt suðvestlæg og vestlæg, hæg. Loftvægislægð fyrir norðan land, önnur fyrir suðvestan land. Útlit: I dag hægur á suð- vestan, rigning öðru hvoru á Suð- vestur-landi, hægur og purt annars staðar. 1 nótt sennilega vaxándi sunnanvindur og rigning á Suður- og Vestur-landi, annars staðar purt.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.