Alþýðublaðið - 13.09.1926, Side 1
Alþýðutriaðið
■B3BB
Gefið út af Alpýðuflokkiium
1926.
Mánudaginn 13. september.
212. tölublað.
„Eg held ég fari til Hannesar.”
Molasykur, kassinn 19.50. Strausykur, 33 kr. pr. 50 kg. Haframjöl, pok-
inn 21.00. Hveiti, pokinn 24.50. Gerhveiti, pokinn 36.50. Hrisgrjón, 24
kr. pr. 50 kg. Sveskjur, kassinn 11.50. Rúsínur, kassinn 14.50. Dósa-
mjólk, kassinn 29.50. Mysuostur, 1.25 pr. kg. Matarkex afaróbýrt.
Margt fleira með góðu verði.
Það er engin furða, pó „Hannesarverð“ sé orðið pjóðfrægt. Ég hefi
alt af ódýrt selt, og ekki fer ég versnandi. Líttu inn til mín, ef pig
vanhagar um eitthvað. Það gæti orðið okkur báðum hagur.
Hannes Jónsson,
Laugavegi 28.
Þvottastelf frá 10 kr. mikið úrval.
Eldhilssett 13 stk. 20 kr.
Skálar i settum 4,50 settið.
Matarskálar frá 0,85.
t'
Matarstell 6 og 12 mauua.
Tekatlar, Diskar, Bollar o. fl. nýkomið.
K. linarsson & Bjnrnsson.
Sími 915. Bankastræti 11.
Erlend simskeyti.
Khöfn, FB., 11. sept.
Þjóðverjum fagnað í Þjóða-
bandalaginu.
Frá Genf er símað, að Þjóðverj-
um hafi verið tekið með miklum
fögnuði á pingfundi Þjóðabanda-
lagsins. Stresemann hélt áhrifa-
mikla ræðu og lagði áherzlu á
pað, að samvinna meðal pjóðanna
væri bezta tryggingin fyrir pví,
að friðurinn’ í heiminum yrði
varðveittur. Lofaði hann einiægri
samvinnu Þýzkalands til pess að
hrinda friðármálunum áleiðis.
Briand hélt sniklarlega ræðu og
hauð Þjóðverja velkomna.
Nýtt Ermarsunds-met.
Frá Lundúnum er símað, að
frakkneskur maður, Michel að
nafni, hafi synt yfir Ermarsund
á eliefu stundum.
Spánn segir sig úr Þjóðabanda-
laginu.
Frá Madríd er símað, að Spánn
hafi sent úrsögn sína úr Þjóða-
bandalaginu.
Khöfn, FB., 12. sept.
Tilræði við harðstjórann Muss-
olini misheppnast.
Frá Rómaborg er síinað, að
ítalskur verkamaður hafi kastað
sprengikúlu á bifreið, er Musso-
lini sat í. Mussolini sakaði ekki,
en sjö menn særðust. Gizkað er
á, að tilræðið hafi verið gert sam-
kvæmt álögðu ráði andstæðinga
svartliða, sem nú eiga griðastað
í Frakklandi. Mussolini var hyltur
af múgnum. Hann hefir aðvarað
nágrannalöndin, sem ieyfa félags-
skap andstæðinga svartliða. Hafa
svartliðar gert óspektir víða um
ítalíu, og hefir pað leitt til pess,
að Mussolini hefir bannað peirn
að vinna nokkur hefndarverk fyr-
ir tilræðið.
Gömul síld
búin til útflntnings.
Alpýðuflokksblaðið „Verkamað-
urinn“ á Akureyri segir svo frá
4. p. m.:
„All-kynleg ráðabreytni er það,
aö undan farna daga hefir fólk
verið að útbúa ársgamla síld til
útflutnings, sem legið hefir í
hirðuleysi niðri á Tanga síðan
snemma s. 1. vor. Er það hvort
tveggja, að ekki er sýnilegt, að
síldin sé nein útfiutningsvara og
svo hefir pað verið algild regla,
að flytja aidrei út fyrra árs síld
eftir að ný síld er.komin á mark-
aðinn. Félag í Reykjavík, mjög
handgengið Jandsstjórninni að
sagt er, á sildina, og vill það
vitanlega hafa sem mest upp úr
henni; en hváð segja síldarút-
flytjendur um petta? Hvað segir
yfirsíldarmatsmaðurinn ? Hvaða
samræmi er í pessu og því að
ætla aö stofna til einkasölu ein-
staklinga á síld, til að geta haft
hönd í bagga með útflutningi og
sölu síldar, og ekki síður hinu,
að banna að salta síld fyrr en
komið var langt fram á sildar-
tímann? Virðast peir menn lítt
l'ærir um að stjórna þessum mál-
um, sem svo eru ósamkvæmir í
fyrirskipunum og ráðstöfunum,
sem alt petta ber vott um.“
Bónorðsbréf
til andstöðuflokka Ihaldsins birt-
ir Ihaldsflokkurlnn í siðasta „Verði“,
þar sem hann mælist til þess hálf-
kjökrandi, aö honum sé iofað að
eiga landsþingmanninn, sem kjósa
á í'haust. Ihaldsblöðin eru rneð
lífið í lúkunum af hræðslu við pað,
að íhaldið missi pingsæti og kom-
'ist í minni hluta, og kernur hræðsl-
an greinilegast í ljós i „Mgbl.“ í
gær og í bónorðsbréfinu i „Verði“.
— „Sæll er sá, sem hræddur er, sé
hann ekki ofhræddur."