Alþýðublaðið - 14.03.1935, Page 3

Alþýðublaðið - 14.03.1935, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ FIMTUDAGINN 14. MARZ 1935 ALÞÝÐUBJ.AÐIÐ tíTGEFANDI: ALÞÝfcUFLOKKURINN RITSTJÓ RI : F. R. VA L D EMARSSON Ritslj6rn og afgreiðsla': Hvtifisgötu 8—10. SIMAR : 4900-4906. 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Rítstjörn (innlendar fréttir). 4902: Ritstjóri. 4903: Vilhj. S. Vihjálmss. (heima). 4904: F. R. Valdemarsson (heima) 4905: Prent: miöjan. 4906: Afgreiðslan: Verklýðsfélaglð Skiðldnr á Flateyri. Verkalýðsfélagið „Skjöldur" á Flateyri hefir nýlega náð samn- ingum við atvinnurekendur þar á staðnum. Er það í fyrsta skifti, sem félagið hefir vérið viðurkent sem samningsaðili, enda er það ungt félag, stofnað 1934. Helztu atriði samningsins eru þessi: I. Fiskuinna alls konár. Dagvinna kr. 0,90 pr. klst. Eftirvinna — 1,20 — — Næturvinna — 1,40 — — Helgidagav. — 1,50 — — II. Kol, salt og útlendar vörur. Dagvinna kr. 1,30 pr. klst. Eftir-, nætur- og helgidaga-vinna kr. 1,50 pr. klst. Dagvinna telst frá kl. 6V2 ár- degis til kl. 6V2 árdegis. Eftirvinna frá kl. 6 til 10 síð- degis. Næturvinna frá kl. 10 síð- degis til kl. pV2 árdegis. Helgidagavinna télst á öllum helgidögum þjóðkirkjunnar, enn fremur á sumardaginn fyrsta, 17. júní og 1. des. 1. maí skal vera almennur frídagur og pá ekki unnið. Félagar í verkalýðsfélaginu „Skjöldur" sitji fyrir allri vinnu, einnig ákvæðisvinnu. Vinnulaun greiðist í peningum mánaðarlega án alls frádráttar. (Petta ákvæði er sett vegria þess, að á þessu hefir viljað vera all- mikill misbrestur þrátt fyrir lög um greiðslu vérkkaups, og hefir gengið svo langt sums staðar, að stöðva hefir þurft vinnu til að IPIj íi( 1 i Skipulagning atvinnuveganna á Siglufirði. Álit og tiliogur fjárhagsnefndar Sigiufjarðar hafa verið sendar skipuiagsnefnd atvinnumála. OKIPULAGSNEFND atvinnumála hefir eins og áður ^ hefir verið skýrt frá hér í.blaðinu ritað bæjarstjór- um víðsvegar um iand og beðið þær um álit peirra og tillögur um skipulagningu atvinnuveganna á hverj- um stað. Alþýðublaðið hefir áður skýrt frá áliti fjárhags- nefndar ísafjarðar, sem sent var skipulagsnefnd og hér á eftir fer álit fjárhagsnefndar Siglufjarðarkaupstaðar tillögur um skipulagningu atvinnuveganna á Siglufirði. „Eins og öllum landslýð er kunnugt, er Siglufjörður miðstöð síldveiða, síldarverkunar og síld- arafurðavinslu vor íslendinga, og nú er svo komið framleiðsluhorf- um landsmanna, að síldarafurð- irnar eru að verða einhver ör- uggasta útflutningsvara þjóðar- innar. Pó ber því eigi að neita, að framleiðsla þessara afurða er enn altof einhæf og markaðir van- ræktir, en úr þessu hvorutveggja ber að bæta eins fljótt og unt er. Nú mun t. d. síldarlýsisframleiðsl- an vera að nálgast það magn, að hreinsunarstöð lýsis verði fram- faraspor næstu ára. Á þann hátt verður síldarframleiðslan verð- meiri og erlendur gjaldeyrir þjóð- knýja atvinnurekandann til greiðslu, sbr. á Bíldudal.) Auk þessara ákvæða áskilur fé- lagið sér rétt til að hlutast til um skiftingu vinnunnar, ef reynsl- an sýnir, að einhverjir verða af- skiftir. Ágreiningur, sem upp kann að rísa út af samningum þessum, skal lagðu'r1 í garð. Gerð- ardómur sé þannig skipaður, að félagið skipar einn mann, atvinnu- rekendur annan og þeir komaí sér síðan saman um þann þriðjfl. Samningurinn gildir til 1. jan. 1936, og framlengist af sjálfu sér, ef honum er ekki sagt upp með 3 mán. fyrirvara. Stjórn félagsins skipa nú þess- ir félagar, kosnir á aðalfundi 13. jan. sl.: Jón Magnússon form., Halldór Vigfússon ritari, Njáll Bjarnason féhirðir ogj í meðstjórn Jón Pétursson og Guðjón Jóhann- esson. arinnar við það meiri. En þá er hitt eigi minna virði, að við þetta er hægt að skapa aukna vinnu á vetrum fyrir hinn vinnusnauða verkalýð, þar eð lýsishreinsuna'' vinnan aðallega ætti að fara fram eftir að sumarvinnan er úti. Sala hreinsaðs lýsis myndi að vísu vegna tollainnilokunarstefnu margra þjóða reyna meir á verzl- unar- og viðskifta-dugnað þeirra, er með sölu afurðanna hefðu að sýsla, en auðsætt er, að ef Is- land á að rísa úr því ófremdar- ástandi og láta framleiðsluvörur sínar til annara þjóða, sem óunna, vöru og verðlitla, verður hún að hefjast handa og vinna þau hrá- efni, sem til falla i landinu og hvað mest gefa von um sæmi- legan arð. Þar sem ríkið á svo mikla síldarbræðslu á Siglufirði, ætti ríkisstjórnin að koma þar sem fyrst á fót fullkominni síldar- hreinsunarstöð, enda myndi auð- velt að fá aðrar síldarbræðslur hér með í slíkt fyrirtæki og ef til vill ekki útilokað með fleiri síld- arbræðslur norðanlands. Erlendur gjaldeyrir til hreinsaðs lýsis til iðnaðar mundi sparast. Hér þarf nákvæma og hlutlausa rannsókn. Kæligeymslubús fyrir sild. Matjesíld og kryddsíld er i hieií- um sumrum eigi örugg fyrir skemdum, nema höfð sé í kæli- húsi. Mikið af íslenzkri matje- síld liggur fram yfir nýjár í kæli- húsum erlendis, og geymslugjald- ið eitt nemur stórfé. Hér ber pví ad koma upp geymsluhú i, einkum kœ igeymslu, er tryggi geymslu léttsaltadrar síldar á sumrum og spari kœli- húsaleigu erlendis ad. mestu. Því hefir opinberlega verið haldið fram, að slík síldarkælihús innanlands ættu að vera1 í Reykjial- vík vegna þess, að eigi væri ör- ugt að hafa kæligeymsluna á Siglufirði vegna íshættu á vetrum. Petta er mjög vanhugsað. Þegar komið er fram að nýári er rnegnið af síldinni selt, og þótt það, sem væri óselt þá, væri flutt til út- landa, mundi það ekki vera nema örlítið brot af metjesíldarfram- leiðslunni, en fyrir nýár hefir haf- ís aldrei komið til Siglufjarðar. Á það er að líta, að flutningur til Reykjavíkur á síld, er ætti að flytjast síðan þaðan til útlanda, myndi aðeins verða til þess að gera síldarframleiðsluna dýrari framleiðendum og arðminni, því að slíkur selflutningur síldarinnar myndi verða kostnaðarsamur og auk þess valda skemdum á síld- inni. Ríkið þarf þvi að vinna að því að koma hér upp stórri kæli- geymslu og styrkja framleiðendur til þess að koma fyrir kæli í hús- um sínum, þar sem það væri hentugt. Niðursuða á fiski, síld, hrognum o. fl. Niðurlagning síldar, hrogna o. fl. og niðursuða fiskjar ætti að vera eitt af nærtækustu framtíð- armálum þjóðarinnar, og væri þá sjálfsagt, að fyrsta síldarniður- lagningariðjan hæfist hér. Hér er síldarframleiðslan mest, og hér yrði hrávaran, síldin, ódýrust. Með skipunum, sem koma hingað tóm á haustin, ætti að mega fá ódýrari flutning hingað á erlendu efni til umbúðanna en til nokkurs annars staðar á landinu. Hvers vegna skyldu Islendingar, með miklu ódýrari hrávöru en útlend- ingar, ekki geta framleitt sam-, keppnisfæra vöru? En hér þarf ríkið að veita aðstoð sína með styrkjum og hentugum lánum og tollvernd, en hins vegar auðsætt, að Siglufjörður hefir hér beztu skilyröin. Skipulagsnefndin ætti og að styrkja tilraunir til þess að flytja ísaða síld til útlanda frá Siglu- firði, og kynnu þar að opnast nýir möguleikar með aukna síld- arsölu, en auðsætt er, að slíkar tilraunir ber aðallega og fyrst og fremst að gera héðan, sem mest berst að af síldinni, og flutninga- skipin þyrftu að bíða styttra hér en annars staðar til þess að fá fullfermi. Hvort slíkur útflutning- ur gæti haft stuðning af frysti- húsum og kælihúsumi í Siglufirði er atriði, sem reynslan ein getur skorið úr, en óhugsandi væri það eigi. En tilraunir þessar ætti síld- arverksmiðja ríkisins að gera. Þar hafa síldarútgerðarmenn og sjómenn beinan hag af. Hraðfrysting á fiski. Siglufjörður er líka miðstöð þorsk- og ýsu-veiða fyrir Norð- urlandi. Eins og kunnugt er, ligg- ur fjörðurinn út við hafið og þaðan styzt á fiskimiðin, sem liggja beggja megin við, til vest- urs og austurs. Þar sem sölu- örðugleikar steðja að þjóðinni með sölu saltfiskjar og hún þarf því að leggja inn á nýjar leiðir með sölu hraðfrysts fiskjar, væri nauðsynlegt, að skipulagsnefndin beitti sér fyrir því, að koma hér upp hraðfrystihúsi af nýtízkugerð. Renna undir það m. a. tvær stoð- ir, að hér á Siglufirði ætti skipu- lagsnefndin fyrst að hefjast handa í þessu skyni. Síldarverksmiðja ríkisins hefir keypt, ódýrt mjög allstórt íshús, sem hægur vandi væri að stækka og útbúa; í þessu skyni. Svo er og á það að líta, að vegna þoku- og rigningar- veðráttunnar í Siglufirði eiga Norðlendingar, er gera út héðan eða sækja sjó héðan, hægara með að þurverka fisk sinn en aðrir landsmenn. Tunnusmiðja.*J Þá er tunnuverksmiðja, stór og öflug, eitt af því, er skipulags- nefndin ætti að stuðla að og styrkja að kæmist upp sem fyrst á Siglufirði, og sá vísir, sem til er, aukinn og endurbættur. Þyrfti í því sambandi að koma upp stórri skemmu til geymslu tunna og efnis, sem eigi er að vænta að fært sé nema með ríkisstyrk og ríkisláni. En eigi má við það staðar nema. Löggjöfinni þarf að breyta í það horf, að tunnuefni verði tollfrjálst, en toilur hækk- aður á tunnum, einkum þeim, er seldar eru „dumping“-verði. Upp á síðkastið hefir löggjöfinni verið breytt í það horf, að efnistollur- inn hefir fengist endurgreiddur, [ en fátækum fyrirtækjum er gert örðugt fyrir með að vera að heimta af þeim toll af efnivör- um, er síðar fæst endurgreiddur vörutollur af. Tunnuefni og gjarð- ir er lika þess háttar, að ekki verður það notað nema til iðn- aðar, og kemur ríkissjóði þá ekk- ert ver, að efnið sé tollfrjálst. Á síðaii árum hefir það komið oft fyrir, að erlendar tunnuverksmiðj- ur selja hér erlendar síldartunnur undir framleiðsluverði, en ná sér aftur niðri á kaupendum tunn- anna með því að nota aðstöðuna til þess að ná góðu verði á afurð- um, er á móti koma til sölu. (Frh.) Foreldrar þínir hafa fóstrað þig og lagt grund- völl að gæfu þinni í Iífinu. Það væri ánægja fyrir þig að geta gert hið sama gagnvart þínum eigin börnum. Hæfileg líftrygging í ANDVÖKU er stórt skref í rétta átt. r" Skáldskapar 09 meaningurmál. Eftir Guðmund Gíslason Hagalín. II. (Frh.) Ég vil þá fyrst víkja að al- gengustu kröfunum. Þær má segja í einni stuttri setningu: Sagan fari vel. Um kvæði er varla að tala lengur sem almenn- an lestur — og; í rauninni leikrit ekki heldur, þó að kvæði ein- staka skálds og leikrit sérstaks efn-is njóti enn talsvert almennra vinsælda. En þó að margir séu sammála um þessa kröfu, að sag- an fari vel, þá skilur að öðru leyti leiðir — og að því er mér hefir virzt, er um fjóra flokka að ræða þeirra, er vilja þó allir, að endirinn sé góður: Einn flokkurinn gerir þá kröfu, að sagan sé sætleg ástarsaga. Elskendunum mæti ýmsir erfið- leikar, sem þeir síðan yfirstigi með órjúfandi trygð og hollustu. Sagan byrji með hýrurn augna- skotum og endi í glóðvolgri hjónasæng, eins og Guðmundur skáld Friðjónsson mun hafa ein- kent þennan bókmentasmekk hér éður á árumj, 1 þessum flökki hef- i| mér virzt viss hluti blessaðrar kvenþjóðarinnar í nökkrúm meiri hluta, og má ef til vill draga af því einhverjar ályktanir. Þá er annar flokkurinn, og kýs hann sér sögur, sem, í gerast þjófnaðir, morð, bardagar, og að lokum uppljóstranir, er hafa annars veg- pr í för með sér æfilanga þrælk- un eða helzt herigingar, en hins vegar ástarsælu áður fátækra, en í sögulok efnaðra elskenda, sem allar horfur eru á að eigi mörg börn og þroskamikil, er siðan geti af sér stóran kynþátt. 1 þessum flokki er viss tegund karlmanna í miklum rneiri hluta, — og eru þeir sjálfsagt að fullnægja ein- hverju því í eðli sínu, sem ekki fær útrás í gráum veruleikanum, og munu að því leyti eiga sam- rnerkt við fyrsta flokkinn. Þriðji flokkurinn kýs helzt þær skáldsögur, sem fjalla um svipuð viðfangsefni og þeir, sem þann flokk fylla, fást við í daglegu lífi. Sjómenn vilja sumir helzt lesa um sjómensku, bændur um fólk, sem fæst við búskap, o. s. frv. Loks er svo fjórði flokkurjnn, sem kýs helzt æfintýralegar sög- ur um þýð, draumræn efni og virðist hafa sterkasta hvötina til að flýja veruleikann. Það, sem hér hefir verið sagt, á einkum við þá lesendur, sem minst hafa notið fræðslu og yfir- leitt gera ekki- heldur neinar kröf- ur til þess, að á þá sé litið sem sérstaklega dómbæra um fagrar bókmentir. En svo koma þeir, sem hafa fengið meiri fræðslu, líta stærra á sig, og finst þeir hafa ráð á að miðla öðrum af vizku sinni og þekkingu. Þeir skiftast einnig í allmarga flokka. Stærstur er líklega sá, er segir: Skáldin verða að leiða fram það fagra og góða í mönnunum og tilverunni. Annars eru þau og þeirra verk til niðurdreps fyrir þjóðlífið, spilla mönnunum og sainlífi þeirra — og þá einkum æskulýðnum. Hjá þessum lesend- um eða ritdæmendum — því ýmsir þeirra ritdæma bækur — hefir það yfirleitt lítið að segja, hvað er sannleikur, hvað er veru- leiki. Þeir segja raunar: Skáldin mála mennina ljótari, en þeireru; — þau Ijúga að ykkur. Þau elska ekki sannleikann. En þeir tala aftur á móti ekkert um hitt, þó að lífið sé sýrtt í gegn um rósrauð gleraugu, þó að lesendunum sé skamtað síróp út á sætsúpu. Um slíka höfunda er aðeins sagt: En hvað þetta er nú fallegt! Þarna er skáld, sem kann að sýna mennina eins og þeir í raun og veru eru og lífið í sönnu og fögru ljósi, sýna þetta eins og það er — rétt skoðað. — Skoðið lífið rétt, er þeirra kjörorð, — en rétt er sama og eins og þeim hentar. En allir þessara lesenda og ritdómenda hafa samt ekki jafn þröngt sjón- arm-ið. Sumir gera vissar kröfur til listar á máli, framsetningu og persónulýsingum, aðrir gera það að ákaflega litlu leyti. Það fellir alveg skáldrit í þeirra augum, ef í því er eitthvað, sem þeir kalla Ijótt — og það er þeim nóg, ef guð er nógu oft nefndur til góðs frá þeirra sjónarmiði — eða kær- leikur og fyrirgefning, auðmýkt og trúnaðartraust nógu oft og vandlega saman fléttað og tvinn- að. Og svo er nú ekki eins og það, sem þeir kalla ljótt og ó- sæmilegt, verði af öllum kallað það, eða sé hjá þessu fólki alt jafn fordæmt. Eitt morð eða svo, einn þjófnaður — þetta getur hvort tveggja puntað upp á í fínni og fallegri bók — en aftur á móti er alt, sem jafnvel fullkom- lega eðlilegu kynferðislífi viðvík- ur, gersamlega fordæmt — nema það sé helzt tekið fram, að nakinn brandur eða að minsta kosti, vegna vöntunar á öðru ægilegra — reglulega stór og beittur búr- hnífur, liggi á beðinum milli elsk- eridanna. — Því hverjum skyldi detta í liug, að nokkur ungur1 maður eða nokkur ung kona hefði nokkurn tíma látið sér til hugar koma að flytja þess háttar egg- vopn til — heldur sofna sætt og rótt í sakleysi með vopnið á rnilli sín, í því innilega trúnaðar- trausti, að hvorki hann né hún gætu upp á því tekiö að vera með svefnlæti eða fara illa í rúmi. Eins er um guð og það góða. Það er vanalega einhver alveg sérstakur og staðfastlega kerfis- bundinn guð, sem verður að fá tilbeiðslu í þessum skáldritum — og gæðin verða venjulega að standa í sambandi við undan- gengna synd og efíirfaiandi iðiun. Enn eru þeir, sem krefjast-þess fyrst og fremst, að bókmentirnar þjóni einhverri sérstakri stjórn- málastefnu eða ákveðnum ytri menningarformum. Sumir þeirra vilja, að þær standi í þjónustu hins gamla tíma, telja það höfuð- kost, ef þær dásama klakaþæfða þelsokka inst við fót — og gjarn- an grófa togsokka utanlyfir. Þess- ar bókmentir eiga líka að dá- sama prjónaskyrtur og vefstóla, litaða skinnleista og lágt vinnu- fólkskaup. Enn fremur eiga þær að fara í öllu sem háðulegustum orðum um það, sem kauptúnum og kaupstöðum við kemur, — hat- ast við fínlega kjóla, hárkamba og festar, nema úrfestar, svo að ekki sé nú talað um andlitsduft og andlitssmyrsl og annað af þess kyns spilverki hins klóka og sí- vökula höfðingja þess illa — og liðað kvenmannshár, sem ekki er þannig af guði gert, skal vera í svona bókmentum ólíkt viðbjóðs- legra en hárið af uppeyrðum, sneplóttum að líkindum upp undir það hálfíslenzkum fjárhundi. 1 þessum bókinentum á það svo að skína í gegn, að hver maður á kúskinnsskóm, með ullartrefil um háls, konu og fimm til tíu börn á palli í torfbaðstofu í sveit, sé hálfgerður frelsari þjóðarinnar, spekingur að viti, lífsreynslu og þekkingu á liinum einu sáluhjálp- legu fræðum, íslenzkum fornbók- mentum, að meðtaldri sögu Her- rauðs og Bósa, ferskeytlum, Passíusálmum og einhverri post- illu, sem er minst 50—100 ára gömul — að ógleymdum rímum og þeirri sönglist, sem þeim er samfara. Þá ber skáldunum, sem þessum lesendum gera til hæfis, að láta þessa sína spekinga hafa sérstaka óbeit á búfræÖingum, nema helzt frá Ólafsdal, — því þeir eru komnir til ára sinna allir saman —, einnig á ung- mennafélags-forkólfum, danz- hneigðum sveitamönnum — já, að ógleymdum barnakennurunum. Kauptúna- og kaupstaða-fólkið á svo yfirleitt ekki að eiga rétt á sér, nema helzt einhver nauðsyn- legur og stórbrotinn kaupmaður, — en sérstaklega er það kven- fólkið við sjávarsíðuna, sem á að verða fyrir barðinu á skáldunum, enda heitir það ekki kristilegum, viðkynnilegum nöfnum, heldur t. d. fröken Liverpool og frú Afg- hanistan, fröken Hawai eða frú Buda-Pest, — það er að segja, ef landafræðisþekking skáldsins leyfir svona langsótt nöfn. Nú, um stjórnmálaskoðun söguhetj- (Frh. á 4. síðu.)

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.