Alþýðublaðið - 28.03.1935, Blaðsíða 4
I :
irL^nfmv mvn SDiinadaysblað AfMðshlað: íds
Nýir ALÞY iltlBLAÐIO er ódýrasta skemtiblað á íslandi.
kavpendur fá Alpýðublaf ið «8$9ÆMMT A M&MÆaSlMJv Enn þá
ókeypis til næstu mánaðumóta. er hægt að fá það frá upphafi í
MIÐVIKUDAG 27. MARZ 1935. afgreiðslu blaðsins.
|33ass»!& Bikél
Brúður
dáuðans
Einkennileg og hrifandi
talmynd eftír leikriti Albesto
Casellas: Death takes a
Holiday.
Aðalhlutverk leikur.
Fredric March
af framúrskarandi snild.
Siðasía sinn í kvöld.
LÓÐUM STOLIÐ.
(Frh. af 1. síðu.)
úr línuveiðaranum „Rifsnes“, sem
lá utan á kolaskipi við Löngulínu.
Nokkrir skipverja voru í skip-
inu og einnig vaktmaður, en eng-
inn varð þjófsins var.
Lögreglan tók mann fastan í
gær og hafði hann grunaðan um
að vera valdur að þjófnaðinum.
Játaði hann líka eftir nokkurt þóf
að hafa átt þátt í þjófnaðinum,
en þar sem framburður hansþótti
ekki nægilega glöggur, var hann
úrskurðaður í gæzluvarðhald.
Lóðirnar og færin voru um 400
króna virði.
Voffvðraraar
komnar:
Éermingarföt.
Fermingarskyrtur.
Nærföt.
Flibbar. Slaufur.
Sokkar.
Kvenundirfót.
Peysufatalífstykki
og margeftirspurðu
Barnasokkarnir,
hvítir og misl. o. m. fl.
Sottkabúðin,!
Laugavegi 42.
S. IT.
Eldri danzatnir.
Laugardaginn 30. marz kl. 9'A
síðd. Áskriftarlisti í G.T.-húsinu,
sími 3355 og 3240. 6 manna hljóm-
sveit. Aðgöngumiðar afhentir á
laugardag kl. 5—8.
Stjórnin.
HITLER HEIMTAR.
(Frh. af 1. síðu.)
Titulescu, utanríkismálaráðherra
Rúmeniu heldur af stað til Parísar
í kvöld, og er erindi hans að
kynna Frökkum og Bretum skoð-
anir og afstöðu Litla-bandalags-
ins. Búlgaría hefir þegar opinber-
lega tilkynt Tyrklandi, að hún
muni ekki fallast á að fella úr
gildi nein vígbúnaðarákvæði Ver-
salasamningsins. (FO.)
Æsingar í Þýzkalandi.
LONDON í gærkveldi.
I Þýzkalandi ríkja mjög miklar
æsingar, vegna dómsins í Memel-
málinu. Einkanlega hafa orðið
miklar æsingar í Austur-Þýzka-
landi, og er þar farin hver kröfu-
gangan á fætur annari, í mót-
mælaskyni. (FÚ.)
ítalir auka herflota
sinn í lofti.
RÓMABORG í gærkveldi. (FB.)
Valle aðstoðar-fiugmálaráð-
herra flutti ræðu. í neðri málstof-
unni í dag um útgjöldin til flug-
málanna. Ræddi hann um nauð-
synina á að efla loftvarnirnar sem
allra mest, og þótt Italir hefðu
lagt mikla áherzlu á það að und-
anförnu að koma upp öflugum,
vel skipulögðum og útbúnum
flugflota, yrði að gera enn betur.
I ræðu hans kom það fram, að
undanfarnar vikur hefir verið
byrjað á framleiðslu1 í stórum stíl
í ítölskum flugvélaverksmiðjum á
gríðarstórum flugvélum, sem eru
sérstaklega útbúnar til þess að
varpa niður sprengikúlum. Sagði
Valle, að hver þessara nýju flug-
véla gæti haft meðferðis 1500 kg.
af sprengjum. Hraði flugvéla
þessara er alt að 330 kílómetra á
klukkustund og þær geta flogið
220 kílómetra án þess að bæta
við sig nýjum benzínforða.
(United Press.)
Frakkar kaupa
ull og baðmull til her-
gagna.
LONDON í gærkveldi.
Bann frönsku stjórnarinnar
gegn því, að flytja úr landi viss-
ar tegundir hráefna, gengur í
gildi á morgun. Vissar verksmiðj-
ur í Frakklandi, segir þýzkur
fréttaritari, hafa undanfarna daga
gert stórkostleg innkaup á ull,
baðmull og jafnvel dúkum fyrir
verð, sem er til mikilla muna
hærra en verið hefir undanfarið.
Ullarkaup þessi eru talin nema
5000 smálestum. (FÚ.)
pínir
hafa fóstrað þig og lagt grund-
völl að gæfu þinni í lífinu. Það
væri ánægja fyrir þig að geta
gert hið sama gagnvart þínu o
eigin börnum. Hæfileg líftrygging
í ANDVÖKU er stórt skref í
rétta átt.
LLJ. Ld UÍ U
-M
Foreldrar
Lik
Stefáns Árnasonar
fanst í höfninni í gær.
I gær um kl. 3 var vélbáturinn ;
Hermöður að koma úr róðri.
Er báturinn var kominn inn á !
miðja innri höfn, sáu skipverjar
eitthvert flykld á floti í sjónum, :
og er þeir gættu betur að, sáu
þeir, að þetta var lík af karl-
manni.
Skipvérjar gerðu lögreglunni
þegar aðvart, og fóru lögreglu-
þjónar út á höfn og fundu líkið.
Fluttu þeir það síðan upp í lík-
hús, en þar fór fram rannsókn á
því.
Líkið var mjög rotið og óþekkj-
anlegt. Var mest alt hold farið
af andliti þess. Það var í öll-
um fötunum, og á þeim þektist
að þetta var lík Stefáns Árnason-
ar, sem hvárf af togaranum Karls-
efni, er lá hér á aðfangadag í
vetur. Þektist líkið einnig af bréfi,
er var í jakkavasa þess.
Rannsóknir
á miðimum kringum Vest-
mannaeyjar.
VESTM.EYJUM í gærkveldi.'
Síðasta alþingi veitti 10 þús.
krónur til veiðarfæra- og áhalda-
kaupa í vor, til vísindalegra
rannsókna, einkum síldarrann-
sókna við Vestmannaeyjar. Árni
Friðriksson fiskifræðingur hefir
dvalið hér í Vestmannaeyjum í
nokkra daga og gert undirbún-
ingsrannsóknir — rannsakað dýra-
líf á sjávarbotninum, mælt sjávar-
hita o. s. frv., eftir þeirri áætlun,
sem hann hafði gert er hann kom
hingað til Vestmannaeyja síðast-
liðið haust.
Tæki til sjálfrar síldarrannsókn-
arinnar eru nú komin; aðeins
vantar tvær síldarbotnvörpur,
aðra frá Þýzkalandi, en hina frá
Englandi, og er þeirra vænst með
Goðafossi næstkomandi föstudag.
Geir Sigurðsson skipstjóri kom
hingað til Vestmannaeyja í dag,
og verður hann við tilraunirnar.
Árni er vongóður um að þær beri
góðan árangur og með þeim geti
byrjað hagnýting nýrra mögu-
leika.
Hér í Vestmannaeyjum hefir
verið alment róið þessa viku, og
er afli dágóður, þótt afli á línu
sé að verða heldur tregari. Einn
bátur lagði þorskanet í fyrra dag
og fékk í þau um 4500 þorska.
19 þúsDfld manns
farast í Gula-fljótinu.
LONDON í gærkveldi.
Fréttir frá Kína herma, að um
10,000 manns muni hafa farist í
hóð'um í Gula-fljótinu. Hundruð
fermílna eru algerlega undir vatni
og bar flóðin svo skjótt að, að
fjö'di lólks gat að eins bjargað
sér upp á húsþök eða upp i grein-
ar trjá ma, og bíða þar þess, að
flóðin sjatni. (FÚ.)
Málverkasýning
Grete Linck Scheving og Gunn-
laugs Óskars Scheving í húsi
Garðars Gíslasonar, Hverfisgötu
4, uppi, er opin daglega kl. 11
—9. Aðgangur kostar eina krónú.
Starfsstúlknafélagið „Sókn“
heldur fund í K.-R.-húsinu í
kvöld kl. 9 e. h. Fundarefni:
Stytting vinnudagsins og önnur
félagsmál.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Guð-
mundur Karl Pétursson, sími 1774.
Næturvörður er í nótt í Reykja-
víkur- og Iðunnar-apóteki. 1
Veðrið: Hiti í Reykjavík 0 st.
Yfirlit: Grunn lægð fyrir suðvest-
an Island, en háþrýstisvæði yfir
Norðurlandi. Útlit: Allhvass og
sums staðar hvass á austan. Lítils
háttar snjókoma.
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar.
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Frá útlöndum (séra
Sigurður Einarsson).
21,00 Lesin dagskrá næstu viku.
21.10 Tónleikar: a) Útvarpshljóm-
sveitin. b) Plötur: Rúss-
neskir hljómleikar: 1) Mus-
sorgsky (100 ára afmæli).
2) Stravinsky (f. 1882). c)
Danzlög.
Skipafrétt'r.
Gullfoss er í Hofsós. Goðafoss
er á leið til Vestmannaeyja frá
Hull. Dettifoss er á leið til út-
landa frá Vestmannaeyjum. Brú-
larfoss er í Kaupmannahöfn. Lag-
arfoss er á Seyðisfirði. Selfoss
fór frá Færeyjum í gær. Dron-
ning Alexandrine fór frá Fær-
eyjum í dag. Island er í Leith.
Togararnir.
Belgaum kom i morgun með
110 tunnur. Karlsefni kom ímorg-
un með 90 tunnur.
„Gott og ilt“
heitir erindi, er Þorlákur Ó-
feigsson flytur á fundi í „Sep-
tímu“ annað kvöld kl. 8V2-
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn annað
kvöld kl. 8y2l í Iðnó. Aðgöngumið-
ar að fundinum verða afhentir
samlagsmönnum gegn sýningu
gjaldabókar í skrifstofunni Berg-
staðastr. 3 kl. 2—5 og í Iðnó í
fundarbyrjun.
Fundir
féllu niður í báðum deildum
alþingis í dag vegna jarðarfarar
Jóns Þorlákssonar borgarstjóra.
Skemtun í Hafnarfirði.
Skólabörnin í Hafnarfirði héldu
skemtun í Góðtemplarahúsinu
mánudaginn og þriðjudaginn i
þessari viku. Börnin önnuðust
sjálf öll skemtiatriði: sungu, lásu
upp og sýndu tvo sjónleiki eftir
frú Ragnheiði Jónsdóttur, og
hafði hún undirbúið leiksýning-
una með börnunum. Þetta er
fjórði veturinn, sem börn iBarna-
skóla Hafnarfjiarðar efna til
skemtunar, og er tilgangurinn að
afla fjár til ferðalaga að loknu
námi. Skemtanir þessar hafa verið
vel sóttar, og áhorfendur lokið
lofsorði á framkomu barnanna.
Skemtunin verður að öllu for-
fallalausu endurtekin á morgun.
Leiknir
losaði í gær afla sinn í land á
Patreksfirði. Hafði hann 96 föt
lifrar eftir viku útivist. Gylfi lagði
afla sinn í land síðiastliðinn mánu-
dag, og var hann með 93 föt
lifrar. (FÚ.)
Góður afli í Húsavik.
Síðustu daga hefir verið góður
fiskafli við Húsavík. Á grunn-
miðum hafa róðrarbátar stundum
tvíhlaðið. 1 gærmorgun brast á
með hríð, og urðu bátar að hleypa
frá lóðum sínum, en náðu allir
landí. (FÚ.)
Aflafréttir frá Siglufirði.
Nokkrir bátar á Siglufirði réru
í fyrra dag, en afli var tregur,
mest 1000 kílógrömm. Mestallur
fiskurinn seldist í bænum. (FÚ.)
Vegna inflúenzufaraldursins
er ungbarnavernd Líknar lok-
uð fyrst um sinn.
Kvöldskemtun
heldur V. K. F. Framsókn á
laugardagskvöldið í K.-R.-húsinu.
Skemtunin verður nánar auglýst
í blaðinu á morgun.
Rauði krossinn
heldur aðalfund sinn í Kaup-
þingssalnum 27. apríl kl. 4 síð-
degis.
Ný|» Bfó
Kpjaröf din.
Frönsk tal- og tón-
mynd, er sýnir spennandi
og vioburðaríka leynilög-
reglusögu.
Aðalhlutverkin leika:
Vera Korent ,
Jean^ Servat s,
og öperusöngvarinn
Lucien Muratore.
Aukamynd:
Postulíi siðnaður.
Fræðimyn l í 1 þætti.
Elskuleg eiginkona- og móðir okkar, Guðrún H. Jónsdóttir frá
Keflavík, Rauðasandshreppi, veiður jarðsungin frá dómkirkjunni
föstudaginn 29. þ. m. og hefst með húskveðju á heimili hennar,
Framnesvegi 13, kl. 1 eftir hádegi,
Ólafur T. Guðbjartsson.
Guðbjörg A. Ólafsdóttir, Guðbjartur Ólafsson, Ólöf G. Ólafsdóttir,
Hjörleifur Ólafsson, Hafliði Ólafsson. Bjarney Ólafsdóttir.
Tilboð óskast
um verzlunarhúsnæði, 3—5 skrif-
stofuherbergi, og stórt geymslupláss
frá 14. maí n. k. Afgreiðslan vísar á.
Tllbúinn
áburður.
Verðið er sem hér segir, miðað við 100 kíló, á
höfnum þeim er skip Eimskipafélags íslands og Skipa-
útgerðar ríkisins koma við á.
Nitrophoska I G 16,5 % köfnunarefni
16,5 % fosforsýra og
21,5 % kali kr. 33,00
Garða-Nitrophoska IG — 33,00
Superfosfat 18 % fosforsýra — 7,40
Kali 40 % — 12,00
Kalksaltpétur 15,5 % köfnunarefni — 17,40
Kalkammonsaltpétur 20,5 % — — 20,00
Brennisteinssár stækja 20,8 % — — 17,40
Tröllaœjöl 20 °/o — — 17,00
Leunaphos 20 7o — og
20 % fosfórsýra — 28,00
Sökum takmarkaðs innflutnings er vafasamt að hægt
verði að fullnægja pöntunum sem ekki eru komnar
fyrir 10 apríl næstkomandi.
Áburðurinn verður aðallega, og eftir pví sem frek-
ast er hægt, sendur með skipum Eimskipafélags íslands
og eru kaupendur út um land beðnir að athuga pað,
ef peir vilja miða pantanir sínar við ákveðnar ferðir.
ibœrðarsala rlkisins.