Alþýðublaðið - 05.04.1935, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.04.1935, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGINN 5. APRÍL 1935. ALPÝÐUBLAÐIÐ Neitað um vatn. Aastnrrfki krefst leyfis til að koma á almennri herskyldu. Nýlega var felt í bæjarstjórn Reykjavíkur að verða við beiðni okkar, sem búum við Laugarás- veginn, um að vatnsleiðsla yrði íögð í veginn. Þetta er mjög illa farið, og hlýtur að stafa af þekk-r ingarleysi bæjarfulltrúanna á þessu mikla nauðsynjamáli okkar. Þeir hafa ekki kynt sér nógu vel þær erfiðu kringumstæður, sem við höfum orðið að búa við sökum vatnsskorts, en það vita þó allir, sem komnir eru til vits og ára, að þar sem mannabú- síaðir eru reistir, verður alt af og æfinlega að hugsa fyrir því, að nægilegt og heilnæmt vatn sé fyrir hendi, og þessi staðreynd hefir fyllilega verið viðurkend þegar um byggingarlóðir bæjar- ins hefir verið að ræða. Þar hefir ekki fengist að byggja nokkurt hús fyr en vatnsleiðsla væri kom- in það nálægt lóðunum, að hægt væri að ná til hennar frá hverju einasta húsi. Ég býst nú við að mér verði svarað því til, að þau lönd, sem liggi að Laugarásveg- inum séu á erfðafestu, og að annað eigi að gilda um þau en byggingarlóðir bæjarins, og að bærinn hafi hvorki efni né ástæð- ur til að leggja vatnsæðar um alt bæjarlandið. Þetta getur verið rétt, en við þetta er það að at- hug, að bæjarlandið er mjög mis- munandi að gæðum, bæði á þessu sviði og öðrum. Á einum staðnum getur verið knýjandi þörf fyrir vatnsleiðslu, á öðrum stað getur þannig hagað til frá náttúrunnar hendi, að hægt sé að komast af án dýrrar vatnsleiðslu. En þau lönd, sem hér er um að ræða, eru í tölu þeirra fyrnefndu. Ég hika ekkl við að fullyrða, að þau lönd, sem að Laugarásveginum liggja, eru einhver allra hrjóstr- ugasti bletturinn I bæjarlandinu, svo að segja ein stórgrýtisurð, og hvergi finst svo mikið sem smá lækjarspræna, sem hægt væri að nota sér vatn úr. Ég býst nú við | að margur hugsi sem svo, að j menn ættu að hafa vit á að byggja ekki á slíkum stöðum, og j að bærinn ætti ekki aÖ leyfa slíkt. Ég býst nú við að fyrir forráða- mönnum bæjarins hafi það fyrst og fremst vakað, þegar þeir á- kváðu að gefa bæjarbúum kost á því að fá þetta land á erfðafestu og skifta því í hálfs hektara reiti, að gott væri fyrir bæinn að láta einstaklingana brjóta þetta hrjóstruga land og breyta því í garða og gróandi tún, og er ekk- ert við því að segja. Takmarkið á að vera: alt bæjarlandið ræktað. Þá er komið að þeim mönnum, sem hreptu þessi lönd, og ég ætla að taka það strax fram, að nógir voru um boðið. Þeir litu á þetta fyrst og fremst, að landið lá mjög vel við. Sunnan í hlíð, sem gat orðið einhver allra fai- legasti staðurinn hér nærlendis, þegar hún væri komin í rækt. Þarna er heilnæmt loft og fögur útsýn og ekki lengra frá aðalbæn- um en sem svarar kortérs ferð fyrir mann á hjóli, og þarna voru menn lausir við umferðaskarkal- ann. Þetta hvatti menn til að taka löndin, en enginn gekk þess dulinn, að vatnsleysið myndi verða versta plágan á þessum stað, en allir vonuðu að bæjarfé- lagið hlypi þar undir baggann, sem hann var þyngstur, og sýndi þar með þessum borgurum sín- um, að bæjarfélagið kynni að meta verk þeirra manna, sem legðu fram krafta sína til að rækta og prýða bæjarlandið, og menn biðu þolinmóðir, því þeir vissu að aðalvatnsæðin til bæjar- ins var of lítil, svo að oft varð vatnsskortur í bænum. En svo kom að því, aÖ vatnsleiðslan til bæjarins var aukin að miklum mun, svo að nú geta allir, sem í bæjarlandinu búa, fengið nóg vatn þess vegna, og við sendum hverja beiðnina á fætur annari til bæjarráðs um vatn, og nú hefir okkur verið neitað um þessa eðlilegu og sjálfsögðu kröfu okk- ar. Ég vil nú spyrja: Hvað meinar bæjarstjórn með slíkri neitun? Ætlast hún kannske til að við getum lifað vatnslausir frekar en aörir menn, eða á að dæma okk- ur til að halda áfram að nota vatn, sem okkur býður við, af því við vitum, að alls konar c- þverri blandast í það? Því varla er það meiningin að flæma okk- ur í burtu af þessum blettum, sem gætu verið svo inndælir ef ekki vantaði svona tilfinnanlega heilnæmt vatn. Frá fjárhagslegu sjónarmiði séð er það leikur einn fyrir bæinn að verða við þessari ósk okkar, því þessi leiðsla myndi ekki kosta yfir 5—6 þús- und krónur, og þetta verk mættij láta vinna í atvinnubótavinnu, og. með því móti yrðu þetta hverf- andi lítil útgjöld fyrir bæinn, og sá vatnsskattur, sem okkur yrði gert að greiða myndi margborga þau útgjöld, og bærinn þar með hagnast á þessu nauðsynlega verki. Að öllu þessu athuguðu er ég að vona, að bæjarstjórn breyti nú þegar þessari vanhugsuðu á- kvörðun sinni og sjái svo um, að fullkomin vatnsleiðsla verði lögð í Laugarásveginn ekki síðar en um mánaðamót maí og júní þ. á, því þá má fara að búast við vatnsleysi á þeim stöðum. Að endingu vil ég geta þess, að ég var einn af þeim, sem sóttu sýningu Læknafélagsins í vetur, og þar var meðal annars til sýn- is Gvendarbrunnavatn og vatn úr einhverjum brunni, sjálfsagt úr bæjarlandinu, og munurinn var mikill, og af því að þetta er í sjálfu sér heilbrigðismál, þá vil ég enda þessar línur með því að skora á heilbrigðisráðið að beita sér fyrir því, að þessi beiðni okk- ar um heilnæmt vatn verði tekin til greina sem allra fyrst. Kristján Jóhannsson. Frá Hafrsarfirði. Botnvörpungurinn Haukanes kom í fyrradag af veiðum, eft- ir 10 daga útivist, með 103 föt lifrar. Línuveiðarinn Örninn var inni í fyrradag og hefir hann nú aflað 40 smálestir. Kolaskip kom í fyrradag til Hafnarfjarðar. — Nokkrir bátar frá Hafnarfirði stunda nú netaveiðar, og hefir aflinn verið sæmilegur undan- farna daga og fiskur góður. (FO.) VINARBORG í gærkveldi. FB. Ríkisstjórnin kom saman á fund í gær og ræddi um endurskipu- lagningu landvarnanna. Hefir ríkisstjórnin að undan- förnu, eftir því sem fullyrt er, tjáð þríveldunum, að Austurríki verði að fá aukinn herafla. Hefir því verið búist við, að þríveldin mundu leyfa Austurríki að auka herinn, enda hefir Austurríki áður lýst yfir, að það muni ekki efla herinn án leyfis stórveldanna. Austurríkismenn hafa nú 38 000 manna friðartímaher, eða 30 000 siðan friðarsamningarnir voru gerðir og 38 000 síðan Dollfuss kanzlari var myrtur. Eftir því sem United Press hefir fregnað vakir það fyrir aust- urrísku stjórninni, að um raun- verulega almenna herskyldu verði að ræða, þó með þeim takmörk- unum, að menn verða sérstaklega valdir lil herskyldustarfa með það Fjórir nýir danðadómar yffr Nez- istnm fi Lithanen. LONDON í gærkveldi. Lithauenski landsstjórinn í Me- mel hefir sagt af sér, og stjórnin í Lithauen hefir sent mótmæli til þýzku stjörnarinnar út af ýmsu, sem komið hefir fram á mótmæla- fundum, sem haldnir hafa verið 1 Þýzkalandi vegna dómanna i Memel-málinu. I dag voru fjórir fleiri Nazistar dæmdir til dauða, og enn nokkrir í mismunandi langa fangelsisvist. (FO.) fyrir augum, að þeir séu trúir stuðningsmenn stjórnarinnar. Öllum vinnufærum karlmönnum verður gert að skyldu að vera vissan tíma í hernum, en að eins þeir, sem stjórnhollir eru, verða æfðir. (United Press.) Styrjöldin breiðist út um heim alían, ef hún brýzt út, segir sendiherra Sovét-Rússlands í Banda- rikjunum. LONDON í fyrrakvöld. Sendiherra Rússd í Bandaríkj- unum hélt ræðu í New York í dag, og sagði meðal annars, að ekki tjáði að loka augunum fyrir því, að til styrjaldar gæti komið hvenær sem væri. Sagði hann, að fáir, sem fylgd- ust með í heimsstjórnmálunum, myndu ganga þess duldir, að c- mögulegt yrði að takmarka stríð við tiltölulega lítil svæði, og ekki einu sinn við eina heimsálfu. Ef — og — þegar til styrjaldar kæmi, myndi hún geisa um allan heim og verða ægilegri en menn gætu gert eér hugmynd um, vegna hinna geigvænlegu upp- götvana visindamanna síðustu árin. (FO.) Verzlun Hinriks Auðunssonar, Hafnarfirði. Sími 9125. Beztar vörur, bezt er verð bregst ei þeim sem reynir. Sjá þú munt er framhjá ferð, fólksmergðin hvert streymir. Kensla í barnaskólnnnm hefst aftur mánudaginn 8. apríl. Sk ólastjór ar nir. Til sölu: Jörðin Þjórsártún við Þjórsárbrú, alkunnur greiðasölu- og verzlunar- staður. Þar er nálægt 400 hesta tún, véltækt, matjurtagarður, fallegur blómagarður og ágæt beit fyrir kindur og nautgripi. Þarna er á- gætt tækifærí fyrir dugleg hjón, sem jafnframt búskapnum vildu stunda verzlun og greiðasölu. Skifti á góða húsi í Reykjavík gætu komið til mála. Nánari upp- lýsingar gefur Jón Magnússon, Njálsgötu 13B. Heima eftic kl. 6 síðd. Simi 2252, Til sölu: 6500 kröna hús, með miðstöð og þvottahúsi. Sömuleið- is nýtt fremur lítið hús með verzl- unarbúð, ásamt fjölda annara húsa. — Jón Magnússon, Njálsgötu 13B heima eftir kl. 6 síðd, Sími 2252. Sel mörg REFASKINN næstu daga með tækifærisverði. B. Sig- valdas., Baldursg. 16. Reiðhjólaviðgerðir beztar og ódýrastar Laugavegi 64. !----------------------------------- | Tekið á möti ársgjöldum V. K. F. Framtiðin^i Hafnarfirði á Reykja- víkv.rvegi 23 frá kl. 6—9 alla daga Fjármálaritarinn Sveinlaug Þor- steinsdóttir. Hvað á ég að hafa i matinn á morgun? Beinlausan fisk, ýsu nýj- an stútung, nætursaltaðan fisk, kinnar, saltfisk, hausa, lifur og hrogn. Alt í síma 1689. Peningar! 3000—4000 kr. óskast að láni gegn góðri tryggingu. Til- boð leggist á afgreiðslu blaðsins fyrir 10. þ."m. merkt „Iðnaður". Sólrík 3ja herbergja íbúð með öllum þægindum til leigu 14. maí, Nöfn með fólksfjölda og atvinnu sendist í afgr. blaðsins, merkt „6“ Odýr og góð hveiti í sekkjum og lausri vigt. Drííandi, Laugavegi 63, sími 2393. W. Somerset Maugham. . Litaðalblæjan 17 þinni. Hann vill um fram alt giftast mér. Dorothy Tovvnsend vill gjarnan skilja við hann og við munmn gifta okkur undir eins og við erum frjáls." „Skýrði hann þér frá því með þessum orðum, eða er þetta hug- mynd, sem þú hefir skapað þér sjálf fyrir samvistirnar við hann?“ Augu Walters lýstu af biturri hæðni. Kitty varð dálítið óróleg. Hún var alls ekki viss um, að Charlie hefði nokkru sinni sagt þetta með svona mörgum orðum. „Já, hann hefir margsinnis sagt það.“ „Það er lygi og þú veizt að það er lygi.“ „Hann elskar mig meira en lífið í brjósti sér. Hann elskar mig eins innilega og ég elska hann. Þú hefir uppgötvað alt og ég mun engu neita. Hví skyldi ég gera það? Hann hefir verið elskhugi minn í ^ieilt ár og ég er stolt yfir því. Hann er mér meira virði en alt anna;ð í heiminum og ég fagna yfir því, að þú skulir nú loks vita það. Við vorum orðin dauðleið á öllu þessu pukri og laumuspili. Það var misgáningur einn, að ég nokkurn tíma fór að giftast þér. Ég hefði aldrei átt að gera það. Ég var heimskingi. Mér þótti aldrei hið minsta vænt um þig og við áttum ekkert sameiginlegt. Mér geðjaðist ekki að þvi fólki, sem þér geðjaðist að, og mér leiðast þau mál, sem þú hefir áhuga fyrir. Og ég fagna yfir þvi, að nú skuli alt vera á enda.“ Hann horfði á hana og engin svipbrigði komu í Ijós á andliti hans. Það, sem hún sagði, virtist engin áhrif á hann hafa, en hann hlustaði með athygli. „Veiztu af hvaða ástæðu ég giftist þér?“ „Af því þú vildir verða á undan Doris systur þinni út í hjóna- bandið." Það var satt, en það hafði einkennileg áhrif á hana að verða þess vör áð hann vissi þetta. Þótt reiði hennar væri mikil á því augnabliki, þá var ekki laust við að hún fyndi til meðaumkunar með honum. Hann brosti dauflega. „Ég gerði mér engar tálvonir um þig. Ég vissi að þú ert heimsk, hégómagjörn og léttúðug. En ég elskaði þig. Ég vissi að markmið þín og hugsjónir eru almúgalegar og lítilfjörlegar. En ég eiskaði þig samt. Ég vissi að þú varst af lakara taginu — en ég elskaði þig. Mér finst hlægilegt þegar ég hugsa um það, hversu mjög ég gerði mér far um að hafa ánægju af hinu sarna og þú og einnig, hvað ég lagði mig[ í líma til þess að hylja það fyrir þér að ég var ekki fávís og almúgalegur í hugsunarhætti né gefinn fyrir slúðursögur. Ég vissi að við skynsemi varst þú hrædd og ég gerði alt, sem í þiinu valdi stóð, til þess að láta þig lifa í þeirri trú að ég væri sama fíflið og hinir karlmennirnir, sem þú þektir. Ég vissi að þú hafðir gengið út í hjónabandið með mér aðeins vegna þess, að það var þér hentugast þá í svipinn. En ég elskaði þig svo mikið, að ég skeytti ekkert um það. Að minni hyggju finst víst flestum, sem elska án þess að ást þeirra sé endurgoldin, að þeir hafi orðið fyrir þungu böli. Þeir verða gramir og reiðir, En þannig var mér ekki farið. Ég bjóst aldrei við þvi, að þú myndir elska mig. Mér fanst engin von til þess, því að ég hefi aldrei áliíið sjálfan mig neitt elskulegan. Ég var þakklátur fyrir að mega elska þig og ég var gagntekinn af fögnuði á þeim stundum er ég heyrði að þú værir ánægð með mig eða þegar ég sá blíðuglampa bregða fyrir í augum þínum. Ég reyndi ekki að trana ást minni fram eða þröngva þér til að elska mig. Ég vissi að ég gat það ekki og ég var á verði ef ástúð mín gerði þig óþolinmóða. Það, sem eiginmenn yfirleitt telja sinn óskoraða rétt, leit ég á sem sér- staka náð.“ Kitty, sem var vönust smjaðri og fagurgala, hafði aldrei fyrr; heyrt talað til sín á þennan hátt. Ofsafengin reiði, sem rak allan ótta á brott, vaknaði í brjósti hennar. Henni fanst hún vera að kafna og æðarnar á gágnaugum hennar þrútnuðu. Særð hégóma- girni getur gert konu reiðari heldur en ljónynju, sem er rænd ungum sínum. Það kom kipringur í andlitsdrætti hennar og heift- in brann í augum hennar. En hún hélt tilfinningum sínum í skefjum. „Hafi karlmaðurinn ekki þá eiginleika til að bera, sem vekja ást hjá konunni, þá er það hans sök, en ekki hennar.“ „Auðvitað." Háðið í född hans gerði hana ennþá æstari. Hún fann, að hún gat sært hann dýpra með því að vera róleg. „Ég er hvorki mentuð né gáfuð. Ég er blátt áfram og óbreytt kona. Mér geðjast hezt að því, sem ég hefi vanist frá fyrstu bernskudögum mínum. Mér þykir gaman að danzi, tennis og að fara í ilieikhús. Það ier alveg satt, að már hefir alt af þótt þú leið- inlegur og einnig alt það, sem þú hefir haft áhuga fyrir. Fyrir mig er það alt einskis virði.“ „Já, ég skil þig.“ „Mér þykir leitt, að ég skuli ekki hafa getað orðið þér eins góð og þú væntir, en mér hefir alt af fundist þú ískaldur og fráhrind- andi. Og þú getur naumast ástakað mig fyrir það.“ „Ég geri það heldur ekki.“ Kitty fanst aÖ alt myndi hafu orðið henni léttbærara, ef hann, hefði aðeins verið hamslaus og æstur. Hún hefði þá getað goldið í sömu mynt. Sjálfstjórn hans vár ómannleg og hún hataði hann nú meir en nokkru sinni áður. „Mér finst það nú því líkast, að þú sért eigi karlmaður. Því brauzt þú ekki inn í hei'bergið, þar sem þú vissir að ég va,r jtar með Charlie? Þú hefðir þó alt af getað gert tilraun. Varstu snreyk- ur?“ En jafnskjótt og hún hafði sagt þetta, roðnaði hún af sneypu. Hann svaraði ekki, en hún las ískalda fyrirlitningu í augum hans. Dauft bros lék um varir hans. „Kannske það megi hið sama um mig segja og fræga persónu í sögunni, að ég hafi veriÖ of stoltur til að berjast.“ Kitty ypti öxlum, hún gat engu svarað. Um stund einblíndi hann á hana. „Ég held að ég hafi lokið máli rnínu — neitir þú að fara til Nei-tan-fu, þá mun ég afturkalla tilboð mitt.“ „En hvers vegna viltu ekki fallast á skilnað?" Nú Ioks leit hann af henni. Hann hallaði sér aftur á bak í stóln- um og kveikti sér í vindlingi. Hann reykti hann án þess að mæla orð. Að því búnu brosti hann og leit enn einu sinni á hana. „Ég mun samþykkja skilnað, ef frú Townsend vill gefa mér tryggingu fyrir því, að hún ætli að skilja við marin sinn, og ef maður hennar vill láta mér; í té skriflegt loforð um, að hann ætli að ganga iað eiga þig, áður en vika er liðiri frá því að ákvörðun þessi er gerð gildandi.“ Það var eitthvað í rödd hians, sem stakk hana ónotalega. En sjálfsvirðing hennar knúði hana til að taka boði hans fegins hendi. „Það er mjög göfugmannlegt af þér, Walter.“ *

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.