Alþýðublaðið - 25.04.1935, Blaðsíða 2
FIMTUDAGINN 25. APRIL’ 1935.
ALRÝÐUBLAÐIÐ
Haínarfjörðnr.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
óskar öllu starfsfólki og viðskiftamönnum
gleðilegs sumars.
Óskum öllu starfsfólki og viðskiftamönnum
okkar gleðilegs sumars og þökkum
fyrir veturinn.
Sf. Akurgerði,
Hafnarfirði.
Verzlunin Aldan
og
Kjötbúð Vesturbœjar, Hafnarfirði
óskaöllum gleðílegs sumars og pakka
fyrir veturinn.
Guðmundur Guðmundsson.
Gleðilegt sumar 1
Gunnlaugur Stefánsson,
Hafnarfirði.
Óskum öllum okkar viðskiftavinum
gleðilegs sumars.
Kolaverzlun Guðna & Einars
>oo<xx>oc<xxxxxxx>c<xxxxxw
M j ólkursamsalan
óskar öllum viðskiftavinum 'sínum
gleðilegs sumars!
:xxxxx>oococ<xxxxxxxxxx>o
:xxx>cooooooo<
Gleðilegt sumar!
Viðtækjaverzlun ríkisins.
>oooooooooo<x
Gleðilegt sumar!
Bifreiðastöð Reykjavíkur.
Gleðilegt sumar!
Þökkum samstarfið á vetrinum.
Kaupfélag Reykjavíkur,
Brauðgerð Kaupfélags Reykjavíkur.
Óskum öllum okkar viðskiftavinum
GLEÐILEGS SUMARS
og pökkum viðskiftin á vetrinum.
Veggfóðrarinn h.f.
Gleðilegt sumar!
Kol & Salt.
>OOOOOOOOOOOOOOOC<XXXXXXX
m n
Gleðilegt sumar!
u n
Gleðilegt sumar!
Kolaverzlun
Ólafs Ólafssonar.
Gleðilegt sumar!
Kolasalan s.f.
mr yrww
HÚSNÁÐIÖSKAST©:
Regnhlífar teknar til viðgerðar á
Luafásvegi 4.
Þegar ég hætti að selja trúlof-
unarhringana kom svo mikill aft-
urkippur í trúlofanir í landinu,
að til vandræða horfði. Er því
byrjaður aftur. Sigurþór.
Laugavegs-Automat selur 3
rétti matar fyrir 1 krónu.
------------------------:—j
Húsmæður!" Munið fisksímann
1689.
Hlutabréf í Eimskipafélagi, sem
starfar að millilandaflutníngum tii
sölu. Atvinna fylgir. Sími 3664.
Heyrðu!
Ég sel matvörur með lægsta verði
bæjarins. Hringdu til mín, ég
sendi um allan bæinn.
Cæsar Mar, sími 2587«
Gleðilegt sumar!
Verzlun
Péturs Kristjánssonar,
Ásvallagötu 19.
ziKk'imnziztzímziXizi
n 52
52 Gleðilegt sumar! 52
52 52
Nýlenduvóruverzlun - Nónnuqala 16 -Sírai 4o6$ f
525252525252525252525252
OTTO B. ARNAR,
löggilturútvarpsvirki,
Uppsetning og viðgerðir á út-
varpstækjum.
Hafnarstræti 9. Sími 2799.
Málaflutningur. Samningagerðir
Stefán Jóh. Stefánsson,
hæstaréttar málaflm.
Ásgeir Guðmundss on,
eand. jur.
Austurstræti 1.
Innheimta. Fasteignasaia.
ER&-
BOX
6x9 cm.
18 kr.
Sportvðrohús Reyhjavfhnr.
W. Somerset Maugham.
Litaða blæjan.
33 ' i, i f !;||í f
Undir dúk, sem var á borðinu, sáust einkennilegar hreyfingar.
Systirin tók dúkinn ofan af og í ljós komu fjögur nakin smá-
börn. Þau voru mjög rauð og sprikluðu hvíldarlaust með höndum
og fótum; litlu og skringilegu Kínverja-andlitin voru öll skæld
og grett. Þau líktust eiginlega ekki mannlegum verum, heldur
einhverri óþektri dýrategund, og þó var þessi sjón svo einkenni-
lega átakanlegá
Priorinnan horföi á þau með hlýju og glaðlegu brosi.
„Þau virðast vera mjög fjörleg. Stundum er komið með þau
aðeins til að deyja. Við skírum þau auðvitað undir eins og þau
koma.“
„Maður frúarinnar mun hafa gaman af þessum," sagði systir
Jósefína. „Ég held, að hann gæti leikið sér við börnin stímunum
saman. Þegar þau gráta, þarf hann ekki annað en að taka
þau upp, og hann gerir þau svo ánægð með því að halda þeim
í handarkrikanum, að þau fara að skellihlæja."
Því næst gengu þau Kitty og Waddington fram íil dyranna.
Kitty þakkaði priorinnunni með mikilli alvöru fyrir alla vejvild
hennar og það ónæði, sem hún hefði af þessu haft. •
Nunnan hneigði sig með litillæti, sem var í senn virðulegt og
astúðlegt.
„Þetta hefir verið mér sönn ánægja. Þér vitið ekki hvað maður
yðar hefir verið okkur hjálpfús og góður. Guð hefir sent^hann
hingað til okkar, og ég er svo glöð yfir því, að þér skylduð
koma með honum. Þegar hann kemur heim, hlýtur það að vera
hmuin ótæmandi uppspxetta ánægju og huggunar, að hafa yður
hjá sér með ást yðar og yðar — yndislega andlit. Þér megið til
með að annast vel um hann og sjá um, að hann vinni ekki of
mikið. Þér þurfið að gæta hans vandlega, allra okkar vegna."
Kitty roðnaði. Hún vissi ekki hvað segja skyldi.
Privunnan rétti fram hönd sína, og Kitty, fann augu hennar
hvíla á sér, stillileg, alvöruþrungin og full skilnings.
Systir Jósefína lokaði dyrunum á eftir þeim, og Kitty steig upp
í stólinn.
Þaxx fóru aftur gegn um hin þröngu og bugðóttu't stræti.
Waddington lét nokkur orð falla, en Kitty svaraði ekki.
Hann leit upp, en tjöldin voru dregin fyrir, svo að hann sá han^
ekki.
Hann gekk áfram þegjandi. En þegar þau komu til árinnar
og hún steig út, undraðist hann, þvi að augu hennar voru vot af
tárum.
„Hvað er nú að?“ spurði hann og hræðslusvipur kom á hann.
„Ekkert." Hún reyndi að brosa. „A.Ö eins heimska í mér.“
Þegar Kitty var orðin ein í hinni óhreinu dagstofu kristniboðans
og sat þar á stól út við gluggann og horfði á musterið hinum
megin árinnar, reyndi hún að átta sig og sefa tilfinningar sínar.
Hún myndi aldrei hafa getað trúað því, að áhrif þessarar heim-
sóknar yrðu svo djúptæk.
Af forvitni hafði hún farið. Hún hafði ekkert að starfa, og eftir,
að hafa horft svo lengi á borgarveggina var löngunin að sjá göt-
urnar, þótt eigi væri nema rétft í svip, orðin ómótstæðilega sterk.
Og þegar inn í klaustrið kom, hafði henni fundist hún vera
flutt inn í annan heim, sem tilheyrði henni óþektum tíma og
rúmi.
Herbergin, búin fátæklegum húsgögnum, hvítir, kuldalegir gang-
arnir, alt virtist þetta hafa á sér blæ einhvers fjarlægs og leyndar-
dómsfulls.
Kapellan litla, þótt Jjót væri og fábreytileg, vakti í einfaldJeika
sínum angurblíðar viðkvæmnistilfinningar. Hún hafði eitthvað það
til að bera, sem vantar í risavaxnar dómkirkjur með lituðu gleri og
fögrum myndum. Hún lét lítið yfir sér, var auðmjúk, og trúin,
selm hafði skreytt hana og ástúðin, sem hélt henni við og annaðist
hana, hafði íklætt hana og lánað henni fegurð sálar sinnar.
Reglan, sem var á öllu þvi starfi, er fram fór í klaustrinu,
sýndi stillingu og hugprýði á hættu- og erfiðleika-tímum og um
leið eftirtektarverða hagsýni.
í eyrum Kitty hljómuðu enn hinir hræðilegu kveinstafir, sem
hún hafði heyrt, þegar systir Jósefína opnaði dyr sjúkrastofunnar.
Ummæli þeirra um Walter komu henni mjög á óvart.
Fyrst systirin og síðan priorinnan sjálf, og málrómur hennar
hafði orðið svo undur blíðlegur, þegar hún hrósaði honum.
Þótt einkennilegt megi virðast, var ekki laust við, að hún væri
dálítið hreykin af að þeim skyldi falla svona vel við hann.
Waddii'_ on hafði einnig verið að tala um starf Walters.
En það voru ekki eingöngu hæfileikar hans, sem nunnurna'r
vegsömuðu, (í Tching Yen hafði hún orðið þess vör, að hann var
talinn gáfaður). Þær töluðu ekki síður um hugsuharsemi hans
og blíðu.
Víst gat hann verið það, og aldrei var hann betri en þegar ein-
hver var lasinn; hann var of skynsamur til þess að gera sjúk-
linginn hræddan og ummönnun hans var svo þægileg, stilli'ieg
og róandi.
Fyrir einhvern undraverðan mátt virtist jiávist hans lina þján-
ingarnar.
Hún vissi, að nú myndi hún aldrei fram|ar sjá í aúgum hans þá
ástúð, sem hún einu sinni var svo vön við og pá gerði henní
hálf gramt í geði.
Hún vissi hversu hæfileiki hans til þess að elska var víðfeðma
og djúpur, og nú beindist hann að þessum vesalings sjúklingum
og smælingjum, sem engan áttu að.
Hún fann ekki til afbrýði, en tómleikatilfinning gagntók hana.
Það var eins og hjálp eða aðstoð, sem hún var orðin svo vön
við, að hún ekki Iengur veitti henni eftirtekt, væri skyndileiga
hrifin frá henni, svo að hún reikaði til beggja hliða og átti’ erfitt
með að halda jafnvægi.
Það vaknaði hjá henni fyrirlitning á sjálfri sér, þegar hún
mintist þess, að hún hafði eitt sinn fyrirlitið Walter.
Honum hlaut að vera fullkomlega ljós afstaða hennar ti,l hans,
en án beiskju hafði hann beygt sig og með þögn umhorið hennar
kuldalega mat á sjálfum honum.
Hún var heimskingi og það vissi hann, en það skifti engu máli,
því að hann elskaði hana.
Hún hataði hann ekki lengur og bar ekki reiði til hans, en
hún kendi innri ótta og fann glögt vanda þann, sem samband þeirra
lagði henni á herðar.
Hún hlaut að viðurkenna, að hann var mikiil hæfileikamaður;
stundum hafði hún það á meðvitundinni, að hann jafnvel nálg-
aðist það að vera mikilmenni.
Undarlegt mátti það heita, að hún skyldi ekki geta elskað hann,
en elskaði aftur á móti ennþá mann, sem hún vissi mjög vel
að var fyrirlitlegur og einskis virði.
Eftir vandlega íhugun hafði hún nú nákvæmlega metið gildi