Alþýðublaðið - 06.05.1935, Side 4
Það kostar fé að auglýsa, pó er pað beinn Það kostar melr að auglýsa ekki, þvi að
AibÝnnRiAHiri
gröðavegur, pví að MLMBr IUIJ11 liMXf 11 <® pað er
Það kemur aftur Aðifldl ■ Ar V ■ar’ AflflhA V að borga fyrir aðra,
í auknum viðskiftum. ■ - - ■ t MÁNUDAGINN 6. MAÍ 1935. sem auglýsa og draga að sér viðskiftin.
HÁTIÐAHÖLDIN í LONDON.
(Frh. af 1. síðu.)
orgs V. Bretakonungs er í dag og
hefir að undanförnu farið fram
feikna mikill viðbúnaður til þess
að minnast pessa aldarfjórðungs-
afmælis á sem allra virðulegast-
an hátt.
Aðalhátíðahöldin fara fram í
Löndón og hinum stærstu borgum
Bretlands og sjálfstjómarnýlend-
anna, en annars verður afmælis-
ins minst með hátíðahöldum um
gervalt Bretaveldi og hvarvetna
[iar sem brezkir menn eru sam-
an komnir.
Undanfarna daga hefir hvert'
stórskipið á fætur öðru komið
til hafna Bretlandseyja með af-
mælisgesti svo að segja frá öll-
um löndum heims, og er í hópi
þeirra margt stórmenna, forsæt-
isráðherrar sjálfstjórnarnýlendn-
anna, skyldmenni konungs og
drottningar, fulltrúar erlendra
ríkja, indverskir prinzar ogfjölda
margir aðrir.
Allir meðlimir konungsfjöl-
skyldunnar og ríkisstjórnin, piing-
menn, forsætisráðherrar nýlendn-
anna og hátt settir embættismenn
o. fl. o. fl. taka þátt í Ihinni
miklu skrúðgöngu, sem fram fer
í dag í London um aðaljgötur
borgarinnar að aflokinni þakk-
arguðsþjónustu í St. Pauls dóm-
kirkju.
Hvarvetna í Londön og öðrum
borgum Bretlands er alt blóm-
um og flöggum skreytt, en allar
opinberar byggingar í London
verða skrýddar rafmagnsljósum í
kvöld. Hátíðahöldunum verður út-
varpað, þ. á. m. ræðu Ramsay
MacDonalds, ræðu konungs og
þakkarguðsþjónustunni í St.
Pauls dómkirkju.
(United Press.)
„Vort daglega brauð“
heitir nýútkomin ljóðabók eft-
ir Vilhjálm frá Skáholti. I bók-
inni eru 34 kvæði i bundnu og
óbundnu máli. Er bókin prentuð
í prentsmiðjunni Dögun og er
hin prýðilegasta að öllum frá-
gangí. Vilhjálmur hefir áður gef-
ið út Ijóðabók og er um sýniLega
framför að ræða hjá þessum höf-
undi.
I. O. G. T
ST. VERÐANDI nr. 9. Skemtifund
(sumarfagnað) heldur stúkan
annað kvöld kl. 8. Margt til
skemtunar, m, a.: Einsöngur (E.
Markan), gamanvísur (R. Rich-
ter) og danz — Bernburgs-
hljómsveitin spilar, Félagar
fjölmennið. Nefndin.
Útborpn 2 500 br.
getið þér fengið hús,
sem er út úr bænum.
10 herbergi og útihús
20 mínútna gangur nið-
ur i borgina. Aðgengi
legir skilmálar. Sími
4762 í dag og á morg-
un.
Mannapar.
Mönnum hefir lönguin þótt
þeim lítil virðing sýnd með því
að ættfæra þá við apa og froska,
og er það von, því froskar til
dæmis eru ljót og leiðinleg dýr.
Og svo suða þeir slík dæmalaus
ósköp, og það er manninum ekki
líkt, þessari hóglátu og orðvöru
skepu. Pað er þó skárra með
apann, því hann getur gert sig
merkilegan ogo-gengið á tveimur
fótum, ef hann vill það við hafa.
Það er furðulegt, hve mikið vís-
indamaðurinn hefir leitað að
mannapanum, en það er líka
margt furðulegt í heimi vorum.
Skrifstofumaðurinn getur leitað
lengi að ritblýinu, sem hann er
[með í munninum eða á bak við
eyrað. Hvernig átti djúpvitur vís-
indamaður að geta áttað sig á
því, að mannapinn væri eins al-
gengur og eins nærri honum og
hann í raun og veru er? Hefði
kvenfrelsishetjurnar upprunalega
dreymt um það, að kvenfrelsi
myndi koma af sjálfu sér fyrir-
hafnarlaust, þá hefðu þær tekið
lífinu með meiri rg. — En svona
gengur það til í heimi vorum.
pað, sem vitringum er hulið, sjá
smælingjarnir, og þeir hafa kom-
ið 9,uga á mannapann. Hann var
svo sem auðfundinn. Menn þurftu
aðeins að líta nær sér. Ekki svo
sem að menn fæðist með gljá-
fægðar klær á fingrunum, vind-
ling í munninum, húfupottlok á
öðru eyranu og, flösku af „svaita
dauða“ í bakvasanum eða sex
þumlunga háa hæla. Alt ber þetta
vott um frámunalega apahæfi-
leika nútímamannsins, en hann
er, eins og allir skilja nú, milli-
liðurinn milli apans og ofurmenn-
isins, og er á góðum framfara-
vegi.
„Je líka og mi eins,“ sagði
barnið. Pað er venja barna að
herma eftir og reyna að líkjast
öðrum, án þess þó að geta greint.
á milli hins eftirbreytnisverða og,
óhæfa. Þetta er alt af þroskaleys-
is einkenni. — Hinn gamli heim-
ur er ekki dauður enn. Flestar
siðvenjur tízkumannsins bera
þess vott, að ofurmennið er enn
jekld í heiminn borið. Það er því
enn mikið til af börnum, sefn
segja: „je líka og mi eins“. Pað
er svo sem ekki furða þótt menn
geri hávaða um sjálfstæði og
frelsi. Frjálsir og sjálfstæðir vilja
menn vera. Það vantaði bara, að
vera tjóðraður af einhverjum
bannlögum, og svo áköf er þessi
leit manna eftir frelsi og sjálf-,
stæði, að þeeir hlaupa fyrir björg-
in, éins og illur andi væri kom-
inn í svínin, og steypa sér í
hinn argasta þrældóm eftirhermu-
og apa-lífs.
Einu sinni var maður. Hann
var sjálfur sinn húsbóndi, frjáls
og laus við öll bönn. Hann helti
í sig fullri flösku af áfengi, og
nú kom snilligáfa hans í ljós. Nú
sást það glögt að hann var fjöl-
hæfur maður. Alt f einu varð
hann framúrskarandi mælskur,
Og þekkingin var ekki af skorn-
um skamti. Nú flæddi vizkan og
fróðleikurinn upp úr honum við-
stöðulaust. Hann var meira að
segja ágætis söngmaður, söng
svo að menn ætluðu að springa
af hlátri, og skáldsakargáfan
vaknaði um leið. Hann skáldaði,
söng og talaði. Allur var hann
Foreldrablaðið
kemur út í dag.
Ráðleggingarstöð fyrir barnshaf-
andi konur,
Bárugötu 2, opin fyrsta þriðju-
dag í hverjum mánuði frá kl. 3
—4.
Gamla Bió
sýnir myndina „Miðdegisverð-
ur kl. 8“. Er það talmynd um
samkvæmislíf. Aðalhlutverkin
leika: Jean Hartow,' Barrymore-
bræðurnir, Wallaoe Beery og Ma-
rie Dressler.
3. bekkur kennaraskólans
fór ásamt kennurum sínurn í
ferðalag á fimtudaginn var aust-
úr í'Vík. Voru með í förinni þeir
Pórbergur Pórðarson rithöfundur
og Indverjinn Sinha.
Vorskólar
taka til starfa í báðum barna-
skólunum 15. þ. m,
Togararnir.
1 morgun komu af veiðum:
Hannes ráðherra með 110 tunnur,
Arinbjörn hersir með 105 tunnur
og Baldur með 87 tunnur.
orðinn lifandi andi, hendur og
fætur gengu í allar áttir, og hann
var jafn fleygur og frár, hvort
sem snéri niður höfuð eða fætur.
Hann æddi og orgaði, baðaði út
höndum og hamaðist. Hann var
reglulegt fyrirbrigði í mann-
heimi. En einn fékk hann ekki
að leika lengi á sjónarsviðinu.
Það varð heilmikið uppnám í
heimi mannapanna, og fjöldinn
allur gat leikið listina eftir hon-
um. — Telji sá, sem treystir' sér.
— Einn góðan veðurdag kviknáði
í höfði á manni, reykurinn gekk
út um munn og nasir, og viti
menn, það leið ekki á löngu unz
rjúka tók á hverju koti. —
Drykkjusiðir og villimenska
myndi ekki þrífast lengi á með-
al manna, ef menn væru sjálf-
stæðir. Petta eru lærðir, en ekki
meðfæddir ósiðir. Peir lifa á eft-
irhermuhæfileikum manna.
Eins og mér sé ekki sama,
hvort maðurinn gengur í svört-
um, gráum eða bláum fötum:
hvort hann setur húfuna á eyr-
að eða mjöðmina, gengur á 6—7
þumlunga háum hælum, með
gljáfægðar og litaðar neglur, er
minna á klær. gæti haft á-
hyggjur út af hinu síðastnefnda,
hefði ég átt eftir að velja mér
konu og átt það á hættu a’ð hún
yrði skapvond, en nú er ég ekki
í neinni slíkri hecjjttu, og þess
vegna er ég rólegur, — en það
er maðurinn á bak við fötin, sem
misjafnlega er fróðlegt að kynn-
ast.
Einhver stakk upp á því í
vondu tíðarfari að beðið væri til
Guðs, og þá sagði einhver: „Ég
held að það þýði ekkert á með-
an hann er á þessari átt.“
Eins er ég hræddur um, að
illa gangi að losna við villi-
mannslega siði á rneðan mann-
heimurinn er á þróunarstigi
mannapans, en sjálfsagt á hann
það fyrir höndum að verða mað-
ur. „Mannapinn horfði til himins
mót sólu,“ segir Einar Benedikts-
son, „unz hárin losnuðu af enni
hans.“ — Ef hann horfir nógu
lengi til himins í sólarátt, þá
getur verið að hann losni við
öll sín apaeinkenni.
Pétur Sigurðsson.
I DAG
Næturlæknir er í nótt Þórður
Þórðarsön, Eiríksgötu 11. Sími
4655.
Næturvörður er í nótt í Reykja-
víkur- og Iðunnar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Tónleikar: Einsöngslög eft-
ir Schubert (plötur).
20,00 Fréttir.
20,30 Erindi: Kirkjugarðar og
greftranir (Felix Guð-
mundsson kirkjugarðsvörð-
ur).
21,00 Tónleikar: a) Alþýðulög
(tJtvarpshljómsveitin); b)
Einsöngur (Elísabet Einars-
dóttir); c) Brahms; Kvartet
í g-moíl (Pro Arte Quar-
tet) (plötur).
Togarinn Cotsmuir
frá Fleetwood kom í fyrra dag.
með látinn eldamann sinn til
Norðfjarðar. Hafði maðurinn orð-
ið bráðkvaddur milli Færeyja og
íslands. Lík hans verður jarðsett
á Norðfirði.
Felix Guðmundsson
kirkjugarðsvörður flytur erindi
í útvarpiði í kvöld, er hann nefn-
ir: Kirkjugarðar og greftranir.
Vorpróf utanskólabarna.
Börn, sem eru fædd á árun-
um 1921—1926, og sem eru til
heimilis í umdæmi Austurbæjar-
barnaskólans, en ekki hafa sótt
ékólann í vétur, mæti til prófs í
skólann á morgún, 7. maí, kl. 5
e. h. Börn fædd árið 1927 mæti
fimtudaginn 9. maí kl. 9 f. h. eða
kl. 1 e. h. Séu börnin forfölluð,
óskast það tilkynt á sama tíma
og þau eiga að mæta.
Kvenfélag Fríkirkjunnar
í Hafnarfirði heldur fund á
morgun kl. 8V2 e. h. á Hótel
Björninn.
Leikfélag Reykjavíkur
hafði í gærkveldi frumsýningu
á leikritinu „Alt er þá þrent er“,
eftir Arnold Ridley. Er það fjör-
ugur gamanleikur í þrem þáttum.
K.R.-húsið og Félag íslenzkra
hlj ó ðf æraleikara.
Eftir því, sem stjórn Félags
íslenzkra hljóðfæraleikara hefir
skýrt Alþýðublaðinu frá, hefir
deila sú, sem félagið hefir átt í
við K.-R.-húsið undanfarið, nú
verið leyst.
Fiskimjölsvinsla á skipsfjöl.
Síðastliðið haúst voru nýtízku
vélar settar í togarann Gylfa á
Patreksfirði. Vélarnar hafa reynst
ágætlega, og er þegar unnið úr
140 smál. fiskúrgangs um borð í
Gylfa. Hefir hann lagt á land
35 smál. fiskimjöls. Patreksfjarð-
artogararnir hafa tekið afla sinn
í Jökuldjúpinu.
Éverida,
flutningaskipið, kom í gær.
Dronning Alexandrine
konr til Siglufjarðar í morgun.
■ Ný|s Bfö ■
Alt af I hnga mér.
Ever in my Heart.
Amerísk tal- og tón-kvik-
mynd. - - Aðalhlutverkin
leika:
Barbara Stanwyck,
Otto Krilger og
Ralp Bellamy.
Aukamynd:
Gleðskapur i gamla daga.
1 I .. L1 i I í r I.Ja&i
Aust nr b æ Jars kólino.
Vorpróf itanskólabðriiit.
Börn fædd á árunum 1921—1926, til heimilis í umdœrni Austur-
bœjarskólans, sem ekki hafa sótt skölann í vetur, mœti til prófs hér
í skólanum þriðjudaginn 7. maí kl. 5 e. hád. (stundvíslega).
Börn fœdd árið 1927 mœti fimtudagihn 9. maí kl. 9 f. hád. eða
kl. 1 e. hád.
Séu börnin forfölluð óskast það tilkynt á sama tíma og þau
eiga að mœta.
Ath. Vorskólar taka t I starfa í báðum barnaskólunum 15. maí
n. k. (Sjá auglýsingu í foreldrablaðinu, sem er að koma út).
Sigurðtir Thorlacius skjiastjóri.
Miuuiiigaisjððnr Sigriðar Thoroddsen.
Styrkur verður veittur eftir reglugjörð sjóðsins, fátækum, veik-
um stúlkubörnum í Reykjavík, Umsóknir sendast á Thorvald-
sensbazar fyrir fimtudagskvöld 9. þ. m.
STJÓRNIN.
Jðrð til sðln
Hálf jörðin Kotströnd í Ölvusi með kúgildum
og öl’um húsum fæst til kaups og ábúðar.
Upplýsingar gefur.
Landsbanki islands,
Útibditt Selfossi.
Til fermingargjafa:
Burstasett — Manucure — Saumasett — Hanzka-
kassar — Sauinakassar — Dömutöskur — Herraveski
Sjálfblekungar - Skrautskrýn — Klukkur — Hálsfest-
ar — o. fl.
K. Einarssois & Bprassoi),
Bankastræti 11.
Happdrættl
Háskóla íslands.
Endurnýjunarfrestur til 3. flokks er liðinn, og nú eiga menn á
hættu, að númer þeirra verði seld.
Komið m strax til að endnrnýja. Að eins 4 dagar eftir.
Glæný fslenzk egg á 10 aura stk. Drífandi, Laugavegi 63, sfmi 2393.