Alþýðublaðið - 23.05.1935, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 23.05.1935, Blaðsíða 4
FIMTUDAGINN 23. MAl 1935. ÖAMLA BIO M Hnefaieikur Afar spennandi hnefa- leikamynd leikinaf þremur heimsmeisturum í hnefa- leik: MAX BAER, PEIMO CARNERA og JACK DEMPSEY. Niðurjðfnunar- skrá. Skrá yfir aðalniðurjöfnun út- svara í Reykjavík fyrir árið 1935 liggur frammi almenningi til sýnis í skrifstofu borgar- stjóra, Austurstræti 16, frá 24. þ. m. til 7. júní næstkomandi, að báðum dögum meðtöldum, kl. 10—12 og 13—17 (á laugar- dögum aðeins kl. 10—12). Kærur yfir útsvörunum skulu komnar til niðurjöfnunamefnd- ar, þ. e. í bréfakassa Skattstof- unnar í Hafnarstræti 10, áður en liðinn er sá tími, er niður- jöfnunarskráin liggur frammi, eða fyrir kl. 24 þann 7. júní. Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. maí 1935. Guðm. Ásbjörnsson settur. Skófatnaðnr. Brúnir leðurskór með hrá- gúmmísólum og hælum. Stærðir: 36 til 41 kr. 5,75 do. 42 — 45 — 6,50 Strigaskór með gúmmíbotnum. Stærðir: 22—28 Verð 1,90 do. 29—35 — 2,50 do. 36—42 — 3,00 Karlmannaskór úr leðri 9,00 Skóv.B.Síefðnssonar Laugavegi 22 A. — Sími 3628. Málshðfðnn gegn presti. OSLO, 22. maí. (FB.) I vikunni sem ieið urðu nokkr- ar óeirðir við Fana í Bergen, er nauðungaruppboð fóru fram vegna vangreidds mjólkurskatts. Meðan óeirðirnar stóðu yfr, flutti Bauge klerkur ræðu, sem æsti menn mjög upp, og fékk klerkur ávítur fyrir frá biskupinum, yf- irboðara sínum. Nú hefir mál- flytjandi ríkisins í Bergen fyrir- skipað málshöfðun gegn séra Bauge fyrir að æsa menn upp gegn stjórnarvöldunum. Kvennadeild Slysavarnafélags Islauds fékk nýlega 500 kr. að gjöf frá Kvennfélagi Lága- fellssóknar. í félaginu eru 30 konur. Bílhurð hefir tapast í bæn- um. Skilist á Vörubílastöðina gegn fundarlaunum. rrnrt'^arEi jlÞfBDBLABIB Isia vestur um þriðjudag 28. þ. m. kl. 9 s.d. Tekið verður á móti vörum til hádegis (kl. 12) á laug- dag og mánudag. Daglega nýtt kjötfars o g fiskfars. Kjðt & Avextir, Laugavegi 58, simi 3464. TrésmiMélagRejfkjaviltnr. Að gefnu tilefni tilkynnist, að þeir húsasmiðir, sem taka vilja nemendur í húsasmíðaiðn, verða að fá leyfi til þess hjá stjórn Trésmiðafélags Reykjavíkur, samkvæmt fundarsamþykt 3. nóv- ember 1934. Stjórnin. Trésmiðafélag Rejrkjavíkur heldur fund í Baðstofu iðnaðarmanna, föstudaginn 24. maí kl. 8y2 s. d. Dagskrá: 1. Rætt um kosningu gerðardómsformanns. 2. Bréf frá Iðnsambandsstjórn um skrifstofumálið. 3. Bréf frá Landssambandi Iðnaðarmanna. 4. Annað mál. Stjórnin. Utsvarsskráii kemur út í fyrramálið. Sölnbörn komi í skrifstofu ísa- foldarprentsmiðju kl. 9 árdegis. Legubekkj af ætur úr birki, stóla- og borðstofuborðafætur úr eik, einnig kústasköft, lengri en venjulega. Til í smærri og stærri kaupum. Guðlaugur Hinriksson, Vatnsstíg 3. Sími 1736. Hnefaleikur um konu. Um þessar mundir sýnir Gamla Bíó kvikmynd er nefnist „Hnefaleikur um konu“. Mynd þessi hefir vakið athygli víða, sérstaklega af því, að hún er leikin af núverandi heimsmeist- ara í þyngsta flokki, Max Baer, og leysir hann það verk vel af hendi. Mynd þessir er vel úr garði gerð, enda er hún tekin af einum frægasta myndatöku- manni hiemsins, W. S. van Dyke, sá sami er gerði „Cape Horn“ og „Tarzan-myndina. — I Baer er eftirlætisgoð Ameríku- manna sem hnefaleikari. Munu víst fáir standa honum framar í þessari íþrótt. Þó hún falli ekki ölum vel í geð ættu þeir, sem hafa gaman af hnefaleik að láta hana ekki óséða. G. M. Skipafréttir. Gullfoss er væntanlegur til Viestmannaeyja síðdegis á morg- un. Hann kemur hingað á laug- ardagsmorgun. Brúarfoss er á leið til Leith. Goðafoss er í Ham- borg, en fer þaðan á laugardng. Dettifoss er á Patœksfirði á Ieið vestur um og norður. Lagarfoss fór frá Kaupmannahöfn í morg- un áleiðis til Leith. Selfoss er á leið til Leith frá Vestmanna- eyjum. Island fór frá Isafirði kl. B í morgun áleiðis hingað. Alex- andrína drottning er í Kaup- mannahöfn, en fer þaðan á sunnu- dag. Súðin var á Siglufirð'i í gær- kveldi. Esja er hér, en fer vestur og norður 28. þ. m. Togararnir. Gullfoss kom í nótt af ísfisk- veiðum með um 200 körfur. Tryggvi gamli er nú laus úr Slippnum. Ólafur liggur við hafn- argarðinn og á víst ekki að fara út aftur fyr en hann fer á síld- veiðar. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ. Afhent af frú Lilju Kristjáns- dóttur. Áheit frá G. M. kr. 5,00. Beztu þakkir. Ásm. Gestsson. Farþegar með „Dettifossi" vestur og norður: Olga Jóakimsson, Sigur- lína Sigtryggsdóttir, Dagbjört Jónsdóttir, Þuríður Finnsdóttir, Þorsteinn Símonarson, Herr Knoch, Þuríður Þorvaldsdóttir, Jóhanna Christiansen, Valgerður Guðmundsdóttir, María Christian- sen, Pétur Sigurðsson, Guðmund- ur Guðmunclsson, Þorleifur Guð- mundsson, Oskar Totland, Jónas Kristjánsson, Ferdinand Jóhanns- son, Ingibjörg Björnsson, Kristín Jónasdóttir, Ragnar Ásgeirsson. Alt er þá þrent er. Leikfélagið hefir ákveðið að sýna þennan leik einu sinni enn, og verður hann sýndur á sunnu- daginn kemur með alþýðusýn- ingaverði. Sigurður Eyjólfsson frá Þorlákshöfn í Kjós, nú til heimilis á Grettisgötu 22 er sjö- tíu ára á morgun. Steindórsprent prentar fyrir ydur Adalstrœti 4 • Sími 1175 I DAG Næturlæknir er í nótt Daníel Fjeldsted, Aðalstræti 9, sími 3272. Næturvörður er í Reykjavíkur- apóteki og Iðunni. OTVARPIÐ: 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Lesin dagskrá næstu viku. 19.30 Erindi: Fiskverkun og fisk- markaður, II. (Sveinn Árna- son fiskimatsstjóri). 20,00 Fréttir. 20.30 Erindi: Frá útlöndum (séra Sigurður Einarsson). 21,00 Tónleikar: a) Otvarpshljóm- sveitin. b) Píanóleikur (Hjörtur Halldórsson). c) Danzlög. Ritstjórn Alþýðublaðsins er í Aðalstræti 8. Blaðamannamótið í Danmörku. Fjórða blaðamannamóti Norður- landa lauk í gæ!r í Aalborg. Um leið og mótinu var slitið fluttu fulltrúar allra Norðurlandaþjóð- anna ræður, og var þeim útvarp- að. Fyrstur talaði fulltrúi Dana, síðan talaði fulltrúi íslands, Svav- ar Hjaltested, og svo fulltrúi Finna, Norðmanna og Svía. Full- trúi Islands þakkaði fyrir mót- tökurnar í Danmörku, lýsti ferða- iagi blaðamannanna um Jótland o. s. frv. Var ræða hans stutt, en vel flutt. Ræða Finnans var kröftug og snérist að mestu um lýðræði og Norðurlönd sem út- verði þess. Var auðheyrt að ræð- an vakti mikinn fögnuð á mótinu. Knattspyrnan. I kvöld keppa í þriðja flokki Fram og Víkingur, en siðan verð- ur úrslitakappleikur um sigurinn á mótinu milli K. R. og Vals. II. flokks mótið hefst annað kvöld og keppa þá Fram og Valur og K. R. og Víkingur. Sveinn Árnason fiskimatsstjóri flytur í kvöld í útvarpið annað erindi sitt um fiskverkun og fiskmarkaði. Lítill drengur slasast. Fyrir síðustu helgi varð lítill drengur, fjögra ára gamall, und- ir vagni á Nýlendugötunni, og var vagninn aftan í vöruflutningabif- reið. Drengurinn lærbrotnaði og viðbeinsbrotnaði og marðist víða og skaddaðist svo mikið á höfði, að blætt hefir að heilanum. Drengurinn mun hafa hlaupið út úr porti og ekki hafa varað sig á því, að bíllinn væri með vagn feftan í sér. Drengnum hefir liðið mjög illa. Hefir hann verið með 40 stiga hita og óráði. Vinnumiðlunarskrifstofan er í Mjóikurfélagsbúsinu, Hafn- arstræti 5, herbergi nr. 1—-4. Sími 2941. Opin kl. 10—12 f. h. og 2—4 e. h. Kvennadeild skrif- síofunnar er í Þingholtsstræti 18, sími 4349. Opin kl. 3—6. / Fríkirkjan í Reykjavík. Móttekið frá „Umrenningi“ kr. 3,00, frá M. G. kr. 5,00. Beztu þakkir. Ásm. Gestsson. Silungsveiðin við Kaldárhöfða, eign db. Magnúsar Jónssonar er til leigu n. k. veiðitímabil. Veiðiréttindin eru og til sölu. Upplýsingar veita undirritaðir. Eiríkur Einarsson. Ásgeir Guðmundsson málfl. Landsbankanum. Austurstræti 1. Ferð á Vatnajökul. I fyrrakvöld komu til Víkur í Mýrdal þeir Jóhannes Áskells- son og Trausti Einarsson. Eru þeir á leið til Vatnajökuls og fóru í gær að Kálfafelli í Fljóts- hverfi, en þaðan fara þeir í dag upp að jöklinum. Auk þeirra eru einnig á ferð 3 útlendingar sem. ætla í hálfsmánaðar ferða- lag um Vatnajökul. Altarisgánga er í þjóðkirkjunni í Hafnar- firði í kvöld kl. 8V2. NÝJA BÍÓ Woider Bar. Stórfengleg amerísk tal- og söngvakvikmynd. Aðalhlutverkin leika: AL JOLSON, DOLORES DEL RIO o. fl. Böm fá ekki aðgang. , 'X. \ w / Jarðarför konu minnar Kristínar Ölaísdóttur, sem andaðist 18. þ. m., fer fram föstudaginn 24. s, m„ og hefst kl. 2 e. h. með bæn á heimili okkar Laugaveg 50 B. Kransar afbeðnir. Sigurjón Jónsson. Maðurinn minn, faðir okkar og sonur, Guðmundur Ólafsson hæstaréttarmálaflutningsmaður, andaðist að heimili sínu, Smára- götu 10, í nótt. Reykjavík, 22. maí 1935. Sigríður Grímsdóttir og synir. Ólafur Ólafsson. . Guðríður Guðmundsdóttir. Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að okkar hjart- kæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, Valgerður Bæringsdóttir, andaðist að heimili sínu að kvöldi 22. þ. m. Sveinn Hjaltason. Ingibjörg Sveinsdóttir. Þorgerður Sveinsdóttir. Sæmundur Kristjánsson. Sigurdís Sæmundsdóttir. Þökkum innilega sýnda samúð og hluttekningu, við fráfall og jarðarför elsku sonar okkar, bróðurs og mágs Jörundar Svavars Gíslasonar. Júlíana Gottskálksdóttir, Gísli Sæmundsson, systkini og mágur. TeiknSstofa min verður vegna burtfarar lokuð um mánaðartíma. I fjarveru minni eru menn beðnir að snúa sér til hr. frkv.stj. cand. polyt. Benedikts Gröndal um þau efni, er lúta að hita- og véla-kerfum. Gísli Halidórsson, verkfræðingur. I land alla mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga. Ágætir bifreiðastjórar og bifreiðar. Sími 1580. Bifreiðasfðð Steindórs. Steindórsprent li.f.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.