Alþýðublaðið - 28.05.1935, Page 1
XVI. ÁRGANGUR
ÞRIÐJUDAGINN 28. maí. 1935.
142. TÖLUBLAÐ
RITSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
OTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
Fimm hundruð ára afmæli
sænska ríkisþingsins er í dag.
Fnlltrúar Alþingis flytja þinglmi hátiðlegt ávarp
og málverk að gjöf.
TV| IKIL hátíðahöld fara fram í Svíþjóð þessa dag-
ana í tilefni af 500 ára afmæii sænska ríkis-
þingsins.
Hátíðahöldin byrjuðu í gær, en aðal minningar-
hátíðin fer fram í dag.
Fjórir íuiltrúar frá Alþingi sækja þessa hátíð að
boði sænska þingsins.
Hefir Alþingi sent sænska þinginu ávarp, sem
Stefán Jóhairn Stefánsson mun flytja þinginu í dag
fyrir hönd íslenzku fulltrúanna.
Hátíðahöldin byrjuðu í gær í Jónas Jónsson fyrir Framsókn-
smábænum Arboga í Vesterás- arflokkinn, Gísli Sveinsson fyr-
héraði, en þar var fyrsta þing ir Sjálfstæðisflokkinn og Hann-
Svía haldið árið 1435 í kirkju,
sem stendur þar enn. Þar var í
gær afhjúpað minnismerki hins
glæsilega uppreisnarforingja
sænskrar alþýðu Engilbrekts
Engilbrektssonar, sem hóf upp-
reisn gegn Dönum 1434.
I dag fór fram hátíðleg athöfn
í Stórkirkjunni í Stokkhólmi, en
á morgun verða haldnir stuttir
fundir í þinginu, en á uppstign-
ingardag verða almenn hátíða-
höld í Stokkhólmi, og á laugar-
dag verður opnuð sérstök sýn-
ing í þjóðminjasafninu sænska,
þar sem sýnt verður alt, er við
kemur 500 ára sögu þingsins.
Verður sú sýning opin til 15.
september í haust.
Fulltrúar Alþingis við hátíða-
höldin eru: Stefán Jóhann Stef-
ánsson fyrir Alþýðuflokkinn,
es Jónsson fyrir Bændaflokk-
inn.
Ávarp Alþingis
til sænska ríkisþingsins.
Þeir hafa meðferðis gjöf frá
íhaldlð í Bandatikinnnm
beltir dðmsvaldina á mðti
vltrelsnarstarti Roose-
velts.
SKRAUTMYND I ÁVARPINU
TITILBLAÐ ÁVARPSINS
Alþingi til sænska þingsins. Er
það stórt málverk af Þingvöll-
um eftir Ásgrím Jónsson. Enn-
fremur flytja þeir þinginu ávarp
frá Alþingi, undirritað of for-
setum þingsins og skrautritað
af Tryggva . Magnússyni og
skrautbundið af Ársæli Árna-
syni.
Ávarpið er svohljóðandi:
„Alt frá dögum Yngvifreys
og hinna goðbornu Ynglinga,
í árdaga norrænna sagna, hafa
afrek Svía varpað ljóma á sögu
allra Norðurlanda.
Frá ómuna tíð hafa bændur
og búalið með Svíum og Gaut-
Onnur landaflaskan, sem lög-
reglan fær síðan 1. febrúar
veidur henni mikilli fyrirhöfn.
2 menn teknir f astir og 6 menn yf irhey rðir
ASUNNUDAGINN var ungur
maður tekinn fastur fyrir
ölæði, og hafði hann meðferðis
eina áfengisflösku. Þegar lögregl-
an fór að aðgæta, þá reyndist
það vera „landi“ — og er þetta
önnur landaflaskan, sem lögregl-
an nær í síðan 1. febrúar.
Við yfirheyrslu bar pilturinn -
það, að hann hefði keypt 'landa-
flöskuna af öðrum tilnefndum
pilti á „billiard“-stofu, og náði
lögreglan 'þegar í þann pilt. Sá
meðgekk það, að hafa hnuplað
flöskunni frá föður sínum, sem
hafði sofnað út frá henni. Var þá
náð í. föðurinn, sem heitir
Ólafur Jóhannsson, og kvaðst
hann hafa keypt flösk-
una af Hjálmaii á Hofi. Var
Hjálmar þá sóttur og settur í
steininn, og dvelur hann þar enn,
en hann þvertekur fyrir pað, að
hafa selt Ólafi flöskuna, og er
Ólafur frétti það, tók hann aftur
framburð sinn og kveðst nú hafa
fengið flöskuna hjá öðrurn manni,
en lögreglan neitar algerlega að
gefa upp nafn þess manns.
Hins vegar setti lögreglan Ólaf
í steininn, og dvelja þeir þar nú
báðir, Ólafur og Hjálmar, en í
dag er unnið að því öllum árum,
að kömast fyrir upptök þessarar
dularfullu landaflösku, sem eng-
inn vill meðganga.
LONDON í morgun.
VIÐREISNARSTEFNA
Roosevelts forseta hefir
enn orðið fyrir hnekki. I
dag var dómur feldur í máli,
sem höfðað hafði verið gegn
stjórninni út af þriðja kafla við-
reisnarlaganna, og var dóms-
niðurstaðan sú, að lögin voru
dæmd ógild, samkvæmt stjórn-
arskránni.
; Vv'j■ Vv' V':'':;':
NIÐURLAG ÁVARPSINS
um varið réttindi almúgans á
þingum sínum, bygt land sitt
með lögum og mælt máluin
sátta og friðar.
Mikil hafa orðið örlög Sví-
þjóðar á þeim fimm öldum, sem
liðnar eru síðan öll lönd og all-
ar stéttir ríkisins tóku höndum
saman á hinu fyrsta Ríkisþingi.
Þjóðin hefir sótt fram til frels- j
is og frægðar. Svíþjóð var um
heillar aldar skeið eitt af stór-
veldum Norðurálfu. En aldrei
hefir Svíum úr minni fallið, að
sátt og friður eru sæmst í lög-
uin. Og Svíum hefir hlotnazt sú
gæfa, sem öllu veldi er meiri, að
verða ein af sannmentuðustu
þjóðum veraldar.
Vér Islendingar gleymum því
eigi, að sænskur maður, Garðar
Svavarsson, steig fyrstur Norð-
urlandabúa fótum á íslenzka
jörð. Skipti vor við Svía hafa
að vísu verið færri en*vér mund-
mn hafa kosið. Þar hefir verið
fjörður miili frænda og vík á
Frh. á 4. síðu.
ROOSEVELT.
Þá hafa einnig lögin um fimm
ára skuldagreiðslufrest fyrir
bændur, af skuldum til lánsfé-
laga verið úrskurðuð ógild.
Rooaevelt hefir í dag kallað á
fund sinn nokkra af ráðunautum
sínum, og er mælt, að þeir ræði
um hið breytta viðhorf vegna
þessara dómsúrskurða. (FO.)
Fiotafandar B.eta 00
ÞjóOverja byrjar 4. júni.
LONDON í gærkveldi.
Umræður Breta og Þjóðverja
um flotamál eiga að hefjast í
næstu viku, sennilega 4. júní.
Búist er við því, að von Ribben-
trop verði formaður þýzku nefnd-
arinnar. Rætt verður um stærðar-
hlutföll þýzku og ensku flotanna.
(FÚ.)
Vatnsieif sla að Olfnsðrbrú
ofan frá Ingólfsfjalli.
N
't VATNSLEIÐSEA er um
þessar mundir lögð frá Ing-
ólfsfjalli í ölfusi suður í þorpið
við Ölfusárbrú. Hefir hingað til
verið þar tilfhmanlegur skortur
á góðu neyzluvatni, en sunnan
undir Ingólfsfjalli er gnægð af
heilnæmu uppsprettuvatni.
Þorpsbúar við Ölfusárbrú
eiga þessa vatnsveitu. Stofnuðu
þeir félag um vatnsveituna síð-
astliðinn vetur, og gerðu ný-
lega bindandi samþykt og gjald-
skrá samkvæmt ákvæðum gild-
andi vatnalaga. Félagið heitir
Vatnsveitufélag Selfoss. Fram-
kvæmd verksins annast Hösk-
uldur Baldvinsson verkfræðing-
ur. Verkið er nú svo langt kom-
ið að lokið er að grafa fyrir öll-
um aðalleiðslum og pípur eru
komnar austur. ÖJl leiðslan er
um 3700 metra. Pípuvídd er um
12ýrj cm. frá Ingólfsf jalli og nið-
ur að Ölfusá, en 8—10 cm. það-
an og austur í Mjólkurbú. —
Verkinu á að vera að fullu lok-
ið fyrir 1. júlí næstkomandi.
Kostnaður er áætlaður 32,000,-
00 krónur.
Fjár til greiðslu stofnkostn-
aðar verður aðallega reynt að
afla með útgáfu skuldabréfa, er
verða síðan seld. Ætlast er til
að bréfin verði dregin út og inn-
leyst með líkum hætti og veð-
deildarbréf eða önnur slík verð-
bréf. Ætlast er til að bréfin
verði seld nafnverði, vext-
ir 6 af hundraði og trygging
eignir og tekjur vatnsveitufé-
lagsins. — Aðaltekjur þess
verða beinn vatnsskattur á
neytendur á vatnsveitusvæðinu,
sem er reiknaður 5 af þúsundi
af fasteignamati allra húseigna
á félagssvæðinu og hefir það
lögveðsrétt.
Fasteignamat allra húsa á
svæðinu er um 600,000,00 krón-
ur, og er húseign Mjólkurbús
Flóamanna sem næst helming-
ur þess. En vegna mjólkurbús-
ins er fyrst og fremst ráðist í
íyrirtæki þetta.
Vatnið, sem er tekið úr upp-
sprettulind við rætur Ingólfs-
fjalls, í landi jarðarinnar Hell-
is, er samkvæmt rannsóknum
Efnarannsóknarstofu ríkisins
alveg óvenjulega tært og gott
neyzluvatn.
Hátfðasýntng f konnnglega
leikhásinn fi Kaupm.hðfn.
Áhorfendasalurinn varð sjálfur að leiksviði.
ElNKASKEYTl
TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS
KAUPMANNAHÖFN í morgun.
GLÆSILEGA8TI viðburður-
inn í hátíðahöldunnm í
Kaupmannahöfn í gær var há-
tíðasýning konunglega leikhúss-
ins.
Það var dýrðleg sjón, sem á
sér engin dæmi hér áður. Leik-
húsið var alt skreytt blómsveig-
um og beykilaufi.
Balkoninn var í miðju útbúinn
eins og stúka fyrir konunginn,
drottninguna og konungsfjöl-
skylduna. 1 konungsstúkunni voru
aftur á móti engir aðrir en krón-
prinzinn og krónprinzessan.
Rétt við leiksviðið og næst kon-
ungsfjölskyldunni sátu í eftirfar-
andi röð, Stauning, Hermann
Jónasson, frú Elna Munch, kona
Dr. Munchs, utanrjkisráðherra
Dana, frú Vigdís Steingrimsdóttir,
kona Hermanns Jónassonar for-
sætisráðherra, á íslenzkum skaut-
búningi. Næst henni sátu sendi-
herrar hinna erlendu ríkja í dýr-
mætum einkennisbúningum, með
glitrandi stjörnum og orðuborðum
í öllum litum — í fyrstu röð
Sveinn Bjömsson og kona hans,
einnig á íslenzkum skautbúningi.
Þegar konungurinn, drotningin,
krónpxinzinn og krónprinzessan
köma inn í stúkur sínar, leikur
hljómsveitin þjóðsöng Dana „Der
er et yndigt Land“, og þjóðsöng
Isiendinga, „Ó guð vors lands",
hvern á eftir öðrum. Allir stóðu
á fætur, og eftir að hljómsveitin
hefir lokið við að leika þjóð-
söngvana, hrópar Kaper borgar-
stjóri í Kaupmannahöfn húrra
fyiir krónprinzinum og krónprinz-
essunni, og tóku menn undir það.
Fyrst eftir að allar þessar „sere-
moníur eru á enda, opnast leik-
sviðið, en enginn fylgist með því,
sem þar fer fram. Áhorfendurnir
eru alt of uppteknir hver af öðr-
um, eins og venjulegt er, þegar
efnt er tíl slíkra hátíðasýninga..
Það má segja svo, að við slík
tækifæii verði áhorfendasalurinn
sjálfur að leiksviði.
í kvöld verður hirðdanzleikur
í Kiistjánsborg.
Með honum em hátíðahöldin á
enda. STAMPEN.
Flandin heimtar einræði
fjármál j £ Frakklands.
um
PARlS, 28. maí. FB.
Aráðuneytisfundi í
dag verður lagt fram frum-
varp, sem veitir stjórninni
nærri algert einræði til að gera
þær ráðstafanir, sem nauð-
synlegar þykja, frankanum til
verndar. Fjárhagsnefndir þjóð-
þingsins fá frumvarpið til með-
ferðar í dag og er búist við, að
umræður fari fram um það í
fulltrúadeildinm á föstudag. —
Flandin mætir á þingi í dag.
PARIS, 27. maí. FB.
Hátt settir stjómarembættis-
menn hafa í dag lýst yfir því,
að þeir séu vel ánægðir með
gang kauphallarviðskiftanna í
morgun, sem beri því vitni, að
Yfirstéttarldg aÞ
nnmin í Noregi.
OSLO, 27. maí. FB.
Óðalsþingið í Noregi samþykti
með 65 gegn 35 atkvæðum að
nema úr gildi lagaákvæði það,
sem bannar þeim, er njóta fá-
tækrastyrks að sitja í bæjar- eða
héraðsstjórn.
Ákvæði þetta var sett í lög
1932.
Hægrimenn og bændaflokks-
menn voru í minnihluta.
Tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir sfóð-
Þnrð i NoregL
OSLO, 27. maí. FB.
Hussum fyrrverandi banka-
gjaldkeri sem hafði af sjálfs-
dáðum játað á sig 107 000 kr.
sjóðþurð, hefir verið dæmdur í
2Vs árs fangelsi í Tönsberg. Játn-
ing hans hafði engin áhrif á
dómsniðurstöðuna, þar eð réttur-
inn leit svo á, að sjóðþurðin hefði
hlotið. að komia í ljós þá og þegar.
FLANDIN
fjármálahorfurnar hafi mjög batn-
að.
Flandin forsætísráðherra gat
ekki komið á fund í fulltrúadeild
þingsins i dag vegna lasleika, en
hann handleggsbrotnaði sem
kunnugt er fyrir nokkru og hefir
ekki náð sér til fulls enn. Hins
vegar er búist við, að hann geti
sótt þingfund á morgun.
Tilkynt hefir verið opinberlega
að enginn fótur sé fyrir fregnum
þeim, sem sum blaðanna hafi birt,
að Flandin ætli að biðjast lausnar.
Á ráðuneytisfundi í dag, sem
stóð yfir í hálfa f jórðu klukku-
stund var samþykt að krefjast
þess af fulltrúadeildinni, að
stjórnin fengi fult athafnafrelsi
í fjármálum. (United Press).
Örói út af fjármála- og
skaðabótapólitík Flandin-
stjórnarinnar.
LONDON í gærkveldi.
í dag streymdi fólk í Frakk-
landsbanka til þess að kaupa gull,
og var engin rönd vað reist. •
Verzlunarsamtök eru búin að
ákveða, að búðum skuli lokað. 4.
(úní í mótmælaskyni gegn skatía-
hækkunum stjórnarinnar. (FO.)