Alþýðublaðið - 30.06.1935, Blaðsíða 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
kemur ekki út
á mánudag.
XVI. ÁRGANGUR
SUNNUDAGINN 30. JONI 1935.
170. TÖLUBLAÐ.
RlfSTJORI: F. R. VALDEMARSSON
ÍJTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURÍNN
Fangelsið á Litla-Hrauni
og vaxandi framlelðsla hdfuðborgarinnar
á glæpamonnum.
Eftir Sigurð Heiðdal fangavörð á Litla-Hraunu
VINNUHÆLIÐ á Litla-
Hrauni hefir starfað í rúm
6 ár. Á þessum tíma hafa kom-
ið á hælið 398 fangar.
Fyrsta árið komu á hælið 20
fangar, 2. árið 18, 3. árið 53, 4.
árið 72, 5. árið 78, 6. árið 91, og
frá nýári s.l. til 15. júní 66 fang-
ar.
Þessir fangar hafa verið
dæmdir í allar þær tegundir
refsinga, sem hegningarlögin á-
kveða, nema vatns og brauðs
refsingar, en á vinnuhælinu
felst vinnuskyldan í úttekt refs-
ingarinnar. Þeir hafa verið sam-
safn allra tegunda afbrota-
mknna og lögbrjóta, sem refsi-
lög þjóðarinnar hafa bitnað á.
Hafa þeir verið mjög ólíkir hver
öðrum eins og vænta má, þar
eð þeir hafa verið á ýmsum
aldri, mismunandi gefnir, sum-
ir allvel mentir menn, aðrir
mjög fávísir, sumir á ytra borði
vanir fáguðum siðum, sumir ó-
siðaðir. Þeir hafa komið frá
ýmsum starfsgreinum þjóðfé-
iagsins o g frá mismunandi
heimilisástæðum og lífsvenjum.
Skapgerð þeirra hefir einnig
verið æði margbreytt og tilfinn-
ing þeirra eða skoðun á verð-
leika þeirrar refsingar, sem sér-
hver er dæmdur í, æði misjöfn.
Sumir hafa komið á hælið, með
heift í huga til réttvísinnar og
þjóðfélagsins fyrir meðferð á
sér.
Heilsufarið hefir einnig verið
misjafnt mjög, bæði líkamlegt
og andlegt. Sumir fangar hafa
komið hingað veikir af illkynj-
uðum sjúkdómum. Ekki allfáir
hafa verið sídrykkjumenn
(kroniskir alkoholistar). Sumir
hafa verið andlega volaðir aum-
ingjar, — geðveikir menn, —
sumir óstýrilátir strákar, sem
aldrei höfðu vanist á að hlýða
öðru en eigin dutlungum. Þeir
hafa einnig verið mjög mismun-
andi hæfir til vinnu, sumir að-
eins stundað skrifstofustörf eða
eina handiðn og bæði af óvana
og heilsunnar vegna verið af
lækni taldir ófærir til útivinnu.
Sumir hafa verið erkislæpingj-
ar, sem aldrei hafa vanist að
vinna ærlegt handtak, sem
frjálsir menn.
Dvalartími fanganna hefir
verið mjög mislangur, alt frá
nokkrum dögum upp í mörg ár.
Verður lítið gagn að vinnu
þeirra manna, sem koma til
stuttrar dvalar, ef þeir, eins og
oft vill brenna við, eru slæptir
og úttaugaðir eftir ofdrykkju
þegar þeir koma á hælið, og
verða að byrja hælisvistina með
nokkurra daga rúmlegu.
Það skal þó tekið fram, að
margir fanganna eru vel vinn-
andi menn og sumir afbragðs-
menn, sem vinna eins vel og
samvizkusamlega í fangavist-
inni og þeir mundu gera frjáls-
ir.
Þessum mislita hóp á hælið
nú að beita til allskonar vinnu,
eftir því sem það getur tekið
fyrir á þeim og þeim tíma árs-
ins.
Þegar athuguð er aðstaða
SIGURÐUR HEIÐDAL.
þeirrar stofnunar, sem á að
framkvæma afplánun refsinga
þá ber að líta á, á hvern hátt
stofnuninni er falið að leysa
þetta hlutverk áf hendi.
Það er afar einföld aðferð, að
taka menn með valdi og láta þá
dúsa í læstum klefum, en þegar
þess er krafist af stofnuninni,
að hún láti fangana vinna
nauðungarvinnu við allskonar
störf, sem helzt eiga að vera við
hvers eins hæfi eftir getu hans
og kunnáttu, án þess að hafa
önnur tæki til að knýja-menn til
vinnunnar, en skipunarvaldið,
— þá fer að vandast málið.
Skoðanir manna á refsimál-
um yfirieitt eru nú æði sundur-
leitar. Börnunum er refsað fyrir
yfirsjónir og á refsingin að vera
þeim til viðvörunar. Glæpa-
mönnum og lögbrjótum er einn-
ig refsað til viðvörunar þeim og
öðrum. En alveg eins og skoð-
anir manna á uppeldismálum
hafa breyst mjög á seinni tím-
um svo hafa og breyst skoðan-
ir manna á refsimálum. Áður
var refsingin hefnd þjóðfélags-
ins á sökudólginn, nú leggja
menn meiri og meiri áherslu á
að breyta lífsviðhorfi fanganna
og hjálpa þe'im til viðreisnar.
En áður töldu menn pynding-
ar og grimman aga, bezta með-
alið við þetta starf. Nú er slíkt
fordæmt, enda mun sú meðferð
á föngum hafa gert margan
manninn að heiftúðugum glæpa-
manni.
Margir hinna yngri afbrota-
manna hafa lent undir manna
höndur vegna þess að uppeldi
þeirra hefur mislukkast. Eftir
að þeir eru orðnir glæpamenn,
verður það hlutverk þjóðfélags-
ins að ráða bót á þessu, ef unt
er.
Glæpamönnum má skifta í
flokka eftii' því á hvaða stigi
þeir eru á glæpabrautinni. Á 1.
stigi eru þeir menn, sem aðeins
einu sinni hefir orðið eitthvað
lítilsháttar á, en geta verið
beztu menn, sem ekki mega
vamm sitt vita. Á 2. stigi eru
þeir, sem að vísu hafa misséð
sig einu sinni, en brot þeirra
svo stór að þeir verða að af-
plána þau í fangelsi. Á 3. stig-
inu eru menn, sem hafa nokkr-
um sinnum eða alloft framið
glæpi en hafa þó öðru hvoru
löngun til að bæta ráð sitt, en
skortir viljafestu þegar á reyn-
ir og áfengisáhrif og æfintýra-
þrá æsa skapið og fjötra vilj-
ann.
Á 4. stiginu eru þeir, sem eru
orðnir reglulegir glæpamenn, —
menn, sem fremja glæpina að ■
yfirlögðu ráði og fullri meðvit- |
und um ábyrgð og afleiðingar.
Þeir hafa ánægju af að hugsa
og tala um glæpi og glæpaá-
form, — eru í raun og veru
gjörspiltir menn, sem hafa sagt
lögum og réttvísi stríð á hend-
ur.
Af glæpamönnum sem á
vinnuhælið hafa komið eru
flestallir á 2. og 3. stigi.
Auk glæpamannanna hefir
fullur helmingur fanganna á
vinnuhælinu verið aðeins lög-
brjótar, en lögbrot þeirra ekki
taldir glæpir. Það eru aðallega
áfengislagabrjótar, — menn,
sem margir hverjir eru ekki
miklu sekari við lögin en mikill
hluti þjóðarinnar er, en hafa
lent í höndum lögreglunnar og
fá á sig sektir og dóma. Slíkir
menn telja sig ekki svo seka,
að þeir verðskuldi glæpamanna-
•meðferð, þótt þeir oft og tíðum
séu síst betri viðfangs en glæpa-
mennirnir.
Auk þessara manna hefir ver-
ið á hælinu allstór hópur manna,
sem þangað hafa verið settir
fyrir leti og slæpingsskap. Þeir
eru eins og vænta má oft erfið-
ir viðfangs, þegar á að láta þá
vinna.
Á Litla-Hrauni eru ekki tök á
að flokka fangana eftir tegund-
um afbrota, eins og venja er
í stórum fangelsum. Vopnaður
harðneskjuagi kemur ekki held-
ur til greina, enda efast ég um
að hann kæmi að haldi við ís-
lenska fanga, vegna skapgerðar
íslendinga yfirleitt. Ef árangri
á að ná í þeirri viðleitni að
Frh. á 4. síðu.
35 þúsund mál af
sild komin til Siglu~
fjarðar.
SIGLUFIRÐI í gærkveldi.
Síðan í gærkveldi hafa kom-
ið hingað til Siglufjarðar 15
síldveiðiskip og öll fullfermd.
Nýja Ríkisverksmiðjan er
tekin til starfa, en ýmsir gall-
ar koma í ljós öðru hvoru, en
þeir eru allir smávægilegir og er
gert við þá undir eins og vinn-
ur verksmiðjan af íullum krafti.
Alls eru nú komin til Siglu-
f jarðar 35 þúsund mál af síld,
þar af 5 þúsund mál til Stein-
dórs Hjaltalín.
Fréttaritari
Síldarskip til Sigluf jarðar.
Síðan í gær hafa þessi skip
komið til Siglufjarðar með síld:
Vébjörn, Nanna, Fróði, Sæ-
borg, Stella, Valbjörn, Már, Ár-
mann frá Bíldudal, Örn frá
Hafnarfirði, Minnie, Báran, Súl-
an og Fylkir, — öll til Ríkis-
verksmiðjanna, — en Höskuld-
ur, Haraldur og Huginn til
Huginn til Snorra og Hjaltalíns.
(F.B.).
Herlög
gllda áfrana fi
mk. *&***»
Barcelona.
ElNKASKEYTl TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gær.
Frá Madrid er símað, að herlðg
þau, sem sett voru á í Barcelona
í gær gildi áfram og vegna
undangenginna óeirða hafa herlög
verið fyrirskipuð einnig í öllu
umhverfi borgarinnar.
STAMPEN.
Sprengjum kastað
í Barcelóna.
LONDON, 29. júní.
Gil Robbles hermálaráðherra
á Spáni og innanríkismálaráðherr-
ann eru nú á leið til Baroelona frá
Madrid, og hraða för sinni, sem
roest. Svo mikið hefir kveðið að
óeirðum í borginni, að hún hefir
verið lýst í umsáturástand. Ó-
eirðirnar náðu hámarki sínu í
gærkvöldi. Mjög óeirðasamt hefir
einnig verið i héraðinu kringum
borgina, og kvað svo mikið að
þeim í gærkvöldi, að víða var
kastað sprengjum. Enn fremur
kveikti múgurinn í sporvagni og
tveirn strætisvögnum.
FÚ.
Útlendir læknar fá
ekki að stunda
lækningar á Frakk-
landi.
ElNKASKEYTl TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gærkveldi.
Frá París er símað, að franska
þingið hafi í dag samþykt iög,
sem banna erlendum læknum að
stunda lækningar framvegis í
Frakklandi.
Samþykt þessara laga mun
hafa þau áhrif, að fjöldi eriendra
lækna, sem búsettir eru i Frakkr
landi og hafa haft atvinnu þar,
verða að fara þaðan.
STAMPEN.
Ofsaveður
í Portugal.
LONDON, 29. júní.
Geysilegt ofveður gerði í Portú-
gal síðast liðna nótt. Kvað mest
að því í Oporto og í nágrenni
við borgina. Rafmagnsleiðslur bil
uðu svo að segja þegar í stað,
er ofviðrið skall á, og var klukku-
stundum saman kolniðamyrkur í
borginni. Björgunarbátar voru
sendir til aðstoðar skipum úti
fyrir, sem mörg voru hætt kom-
in, og er fengin vissa fyrir því,
að al!-margir menn hafi farist.
Mikið tjón hefir orðið bæði á
ökrum og í víngörðum. FÚ.
OKvIdri og vatns~
flóð í Jspan.
LONDON, 29. júní.
Frá Japan hafa einnig fréttir
I komið um ofviðri og vatnsflóð,
af völdum óvenjulegra rigninga.
Mest kveður að þessú í Kioto og
Osaka. 22 menn hafa farist. All
mörg hús hafa fallið, en önnur
farið í kaf iog brýr hefir tekið af
ám.
FÚ.
Fullkomnasta hemaðarflugvélin
var reynd i Englandi á föstudaginn.
ElNKASKEYTl
TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS
KAUPMANNAHÖFN í gærkveldi.
pNGLENDINGAK
JL4 leggja nú ákaflega
mikla áherslu á aukinn
vígbúnað í lofti og er
einna mest áhersla lögð
á það, að byggja nýjar
orustuflugvélar, sem eru
af fullkomnari gerð, en
allar slíkar flugvélar hafa
verið áður.
með fjórum vélbyssum, tveirii
þeirra er komið fyrir á neðra
burðarþili, en hinar tvær eru ofan
á flugvélinoi.
Ýmsu um gerð flugvélarinnar
er enn sem komið er haldið
leyndu.
Fimta „vopn flugvélarinnar er
hraðskiotafaHbyssa, sem skýtur
sprengjum. Kúlugeymirinn tekur í
einu 60 spnengjur.
Hraði flugvélarinnar er yfir 400
km. á klukkustund og á 6 mín-
útum get'ur hún komist uppfí 4000
metra hæð.
Á föstudaginn var reynd ein
slík ný hernaðarflugvél í Hendon
á Englandi. Hún er af hernaðar-
sérfræðingum talin vera bezt bú-
in að vopnum allra hernaðarflug-
véla, sem þekst hafi til þessa
tíma.
Þetta fljúgandi vígi er útbúið
----------------------------y
Arsafmæli
bléObaðsios 30. jdoi i
fjrrra haidið hðtfðiegt
i Berlio.
LONDON, 29. júní.
I dag fara fram hátíðahöld í
Berlin, í tilefni þeirra atburða,
sem gerðust í Þýzkalandi fyrir 1
ári, og venjulega eru nefndir
„flokkshreinsunin 30. júní“. Þá
voru þeir af lífi teknir Röhm
stormsveitarforingi, Karl Ernst,
Heines, Schleicher hershöfðingi
og kona hans ásamt mörgum öðr-
um. Þúsundir fána blakta á stöng-
um í Berlin í dag, samkvæmt
skipan yfirvaldanna. Á strætum
er mikil mannferð og víðs vegar
á torgum skemmta hljómsveitir
mannfjöldanum. Göbbels hélt
ræðu í Berlin í morgun fyrir
18 þúsund Nazistum, og talaði
um framfarir þær, sem orðið
hefðu á öllum sviðum í Þýzka-
landi síðast liðin tvö ár.
FÚ.
Tveir morðingj*
ar feknir af ififi
i rafmstgns-
sfélnum.
EINKASKEYTI TIL ALÞÝÐUBL
KAUPMANNAHÖFN í gærkveldi.
Frá London er símað frá Banda
ríkjunum, að í gær bafi hin 45
ára gamla Eva Goo verið tekin
af lífi í rafmagnsstólnumi í Sing
Sing-fangelsinu.
Eva Goo var dæmd til dauða
fyrir morð á manni, sem hún bjó
með og hafði gert það í þeim til-
gangi að fá útborgað líftrygg-
I ingarfé mannsins.
1 f'orstofu aftökuherbergisins
mætti Eva Goo öðrura dauða-
dæmdum manni, morðingjanum
Scarnic, sem var tekinn af lífi
10 mínútum eftir aftöku bennar.
Hin dauðadæmdu námu staðar
er þau mættust, tókust í hendur
og Eva Coo sagði brosandi:
„Keep smiling, Old Boy!“
(Brostu, gamli kunningi).
Eva Goo lét lífið með vindling
í munnvikinu, en Scarnic jóðlaði
togleðurstuggu, þegar banastraum
inum var hleypt á.
STAMPEN.
STAMPEN.
Nefnd skipui í Sor-
eoi til að gera til-
iðgnr nm nýjar at-
vliinnframkvæmdir.
OSLO 29. júní F.B.
Ríkisstjórnin hefir skipað
nefnd til þess að athuga skil-
yrðin til þess að hefja nýjar
verklegar framkvæmdir, koma
fram með nýjar tillögur til
bætts skipulags o. s. frv. —
Halvorsen professor er formað-
ur nefndarinnar, en í henni eiga
einnig sæti Christensen for-
stjóri, Colbjörnsen blaðamaður,
Melbye, Mjelde stórþingmaður,
Nordahl kaupsýslumaður, Ny-
sveen smábóndi, Halvard Olsen
forstjóri, Owe verkfræðingur.
Norskii stjðrnin
og mennmgarmálin.
OSLO 29. júní F.B.
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
verja hálfri miljón króna af
tekjum happdrættisins til menn-
ingarmála, þar af 50,000 kr. til
Þjóðleikhússins í Oslo, 25,000
kr. til Den Nasjonale Scene í
Bergen og 25,000 kr. til Den
Norske Teater.
Ottft erkihertofli tek-
nr doktorspróf i
Belflin.
EINKASKEYTI YIL
ALÞÝÐU BLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gærkvieldi.
Frá Vínarborg er símað, að kaþ
ólsku blöðin þar í borginni geri
það mjög að umtalsefni, að Ottó
erkihertogi af Habsburg hefir hlot
ið doktorsnaínbót við háskóla í
Belgíu.
Mörg Vínarblöðin spyrja kald-
hæðnislega, hvort Otto erkiher-
togi ætli, ef hann verður gerður
að keisara, að kalla sig Dr. Otto
keisari í Austurríki, eða Ottó dr.
keisari í Austurríki.
STAMPEN.
Henry Bay,
aðalræðismaður Norðmanna
hér hefir fengið tveggja mán-
aða sumarleyfi og fór hann í
fyrradag með Lyru áleiðis til
Noregs, Vargræðismaðurinn
Wilhelm Feght mun gegna
störfum aðalræðismannsins.