Bjarki


Bjarki - 06.05.1897, Blaðsíða 1

Bjarki - 06.05.1897, Blaðsíða 1
Eitt blað á viku minst. Árg. 3 kr. borgist fyir i. Júlí, (erlendis 4 kr. borgist fyrirfram). Auglýsíngar io aur. línan; mikill afsláttur ef oft er auglýst. Upp- sögn skrifleg fyrir i. Okt. II. ár. 18 Seyðisfirði, Fimtudaginn 6. Mai 1897. Nýttl Nýtt! Anton Sigurðsson, sem hefur feingið alt sem lýtur að skósmíði, nú með »Vestu<, opnar skósmíða- verkstofu Laugardaginn þ. io. Maí, þar sem hann smíðar og gerir við skó bæði fljótt og vel, og gefur io°/0 af- slátt gegn borgun út í hönd; lánar aðeins til þriggja mánaða áreiðanlegum mönnum og tekur bæði innskrift og pen- fnga við allar verslanir á Seyðisfirði. Alt verk af hendi leyst fljótt og vel og eftir nýustu tisku. Ódýrasti skósmiður landsins. Komið og pantið ef þið viljið fá gottogfallegtog um leið Ódýrt s k ó t a u. Vinnustofa mín er f húsi f*. Guðmundssonar faktors á Fjarðaröldu. Áskorun um húsbygging á þingvöilum. Vjer undirskrifaðir, sem höfum geingið í fjelagsskap um, að koma upp húsbyggíngu á Þíngvelli, er bæði gæti verið fyrir samkomur innlendra manna, og til afnota fyrir er- lenda ferðamenn, sem eins og kunnugt er, sækja fjöl- margir á hverju ári til kíngvalla og Geysis, leyfum oss hjer með, að bjóða almenníngi á Islandi, að taka þátt í þessu fyrirtæki, með þvf, að kaupa einn eða fleiri saman tutt- UgU Og fimm króna hluti í hinni fyrirhuguðu hús- byggíngu. Aætlað er, að húsið muni kosta alt að 5000 kr., eða um 200 hluti alls, og er gert ráð fyrir, að það geti verið fullgert, áður en ferðamanna er að vænta næsta sumar. I’að er ákvcðið, að hlutir þeir, sem koma inn, skuli geym- ast í sparisjóði Reykjavíkur, en eigi verður byrjað á byggíngunni, fyr en sjeð verður, að nóg fje muni fást; að öðrum kosti verður peníngunum skilað aftur til eigend- anna. Komist byggíngin upp, eins og að framan er sagt, skulu hlutaeigendur njóta tiltölulega ágóða af húsinu, þeim er verður umfram viðhalds og umsjónarkostnað eftir árlegri skilagrein. I hússtjórnar-nefnd skal kjósa 3 menn þannig, að for- maður Þjóðvinafjelagsins nefnir einn, sýslumaðurinn í Árnes- sýslu annan, og ferðamannafjelagið í Reykjavík hinn þriðja. Nefndin skal kosin tll 2 ára í senn, í fyrsta sinn jafn- sjótt sem húsið cr fullgert. Alt það, sem að framkvæmdum byggíngarinnnar lýtur ör.numst vjer undirskrifaðir. Hlutaupphæðir skulu sendar til gjaldkera fjelagsins Sig- fúsar Eymundssonar með glöggri skýrslu um nöín og heim- ili hlutaeigenda, og sendir hann þeim þá hlutabrjef með fyrsta pósti, eða afhendir þau þeim, sem borga utanpósts. Til þess að hægt sje að byggja húsið næstkomandi sum- ar, verða fjelagshlutir að vera borgaðir innan loka þessa árs. Vjer treystum því, að góðir menn veiti þessu máli greiðar undirtektir, bæði vegna landsmanna sjálfra og vegna þess, að slík byggíng mundi, einkum ef henni fylgdi skemtibátur til veiða og siglínga á Þíngvallavatná, stuðla mjög að því, að auka heimsóknir erlendra ferða- manna til Islands, sem híngað til hafa ekki getað, vegna skýlisleysis, haft neina dvöl á hinum forna, víðfræga þíng- stað Islendínga. Reykjavlk 24. Apríl 1897. B. Sveinsson. Tr. Gunnarsson. Sigf. Eymundsson, formaður. gjaldkeri. Helgi Helgason. sigurður Kristjánsson. D. Thomsen. Hannes Þorsteinsson. * * * Benedikt sýslumaður Sveinsson hefur beðið þess getið, að þeir hjer eystra, sem vildu taka hlutabrjef í þessu fyrirtæki, en þætti ervitt að ná til hans sjálfs, gætu snúið sjer til Runólfs búfræð- íngs Bjarnasonar á Hafrafelli, sem gefur allar upplýsíngar og greiðir fyrir sölu hlutabrjefanna og sendíngu andvirðisins suður. Jæja, kannske tuttugasta öldin ætli að hafa það af að koma upp skýli á Língvelli. f>að er þó altaf gott að þessir menn hafa geingist fyrir þessu áður en einhver Einglendíngurinn fann upp á að græða stórfje á því á undan okkur. Ramislagur, Rokur dynja, loka leið Lagar drynja vargar, Kríng um hrynja hola skeið Iirannir kynja margar. Byljir kátir kveðast á, Ilvín í sátri’ og hjöllum, Báruhlátrar hlakka frá Hamralátrum öllum. Stormar þróast, regir rá, Rán um flóann eltir, Kvikum sjóarkletta á Köldum lófa veltir. Möstrin sýngja’ í sævargný, Sýður hríngur fanna, Hnífi stýngur stafninn í Straumabríngur hranna. Stefán Th. Jónsson er kominn með miklar vörur og góðar. Nákvæmur verðlisti fylgir næsta blaði,

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.