Bjarki


Bjarki - 06.05.1897, Blaðsíða 4

Bjarki - 06.05.1897, Blaðsíða 4
72 við Larissuborg, sem er litlu sunnar. Hún er höfuðborg í Þessalíufylki og þrisvar til fjórum sinnum stærri en Reykja- vík. Þar lögðu báðir meginherunum til orustu og höfðu barist þar í 4 daga er síðast frjettist, og eru ekki enn komnar óyggjandi fregnir um úrslit, en lausafregn segir að Grikkir muni heldur hafa borið efra hlut í þeirri or- ustu, og sama lausafregn segir líka að þeim hafi söuiu dagana lent sama í sjóorustu og hafi Grikkir unnið þar algerðan sigur og nær eyðilagt flota Tyrkja. En öllum ber saman um að barist hafi verið með hinni mestu hreysti af hvorumtveggja hernum bæði á sjó og landi. I Epírus, á vesturströndinni, höfðu og orðið smáorustur sömu dag- ana og veitti Grikkjum þar betur. Það er nú ljóst að Grikkir ætla sjer meira en Krít eina saman, hvernig sem það nú fer. Stórveldin sitja hjá og ógna á báða bóga, en öll þeirra svikapólitík gerir þau svo sundurlynd að þau eru sem aflvana, og því hirða nú fáir hvað þau segja. Hjalparvon sýnast Grikkir eiga mjög litla nokkursstað- ar að, nema þetta hrafl af sjálfboðaliði og peníngastyrkur frá einstökum mönnum, sem þegar er kominn. Aftur á móti sýnast sum stórvcldin ekki ófús á að gánga í lið með Tyrkjum eí þau þyrðu. Svo hefur enskur maður einn boðist til að fara með 30 manna til liðs við Tyrki og kosta alt sjálfur. En líklegt er að Salisbury og ensku stjórninni þyki það nokkuð lítið lið og að hún hugsi sjer að verða stórtækari efþað skyldi verða af ráðið að skjóta niður Grikki til að bjarga Tyrkjanum. Svona leið þar eystra þegar síðast fjettist. Frá ein- stökum atburðum verður sagt betur næst. Sá náúngi sem tók gaungustafinn úr gánginum á veiti'ngahúsinu á Öldunni á Þriðjudagskvöldið, verður að skila honum sem fyrst á sama stað, ef hann vill ekki að hans verði leitað á annan hátt. ÍSLENDÍNCASÖGUR nýkomnar fást nú hjá R. Bjarnasyni á Hafrafelli. Nýkomið i bókverslan L. S. Tómassonar. Bókasafn alþýðu I. b., I. og 2. hefti: 1. Þyrnar, kvæði Þorst. Erl. ób. 1,50, b. 2,50 og 3,00 2. SÖgur frá Síberíu ób. 0,50, bund. 1,00 og 1,50 Eimreiðin 3. árgángur, 1. hcfti...........1,00 íslandskort nýtt, með sýslulitum, ........1,00 Björn Og Guðrún, saga e. Bjarna Jónsson . . . 0,50 Islendingasögur. 16. bindi, Reykdæla .....0,45 17. — Þorskfirðínga saga . 0,30 Á skraddaraverkstofu Eyjólfs Jónssonar, fæst saumaður alskonar karlmansfatnaður, fyrir mjög lágt verð. Snið og frágángur eftir nýustu tisku. Fljót afgreiðsla. Menn ættu að koma sem allra fyrst, áður mestu sum- arannir byrja. Ókeypis. Eins og að undanförnu verður einnig þetta ár (i897( útbýtt frá apótekaranum á Seyðisfirði 1000 pökkum af garð- og blómfræi. Þeir sem óska að fá eitthvað af fræ- inu eru beðnir að panta það munnlega eða skriflega fyr- ir 15. Mai næstkomandi. Veggjapappir. Margar þúsundir af nýum og fögrum sýnishornum komu nú með Vestu til apótekarans á Seyð- isfirði. Allar pantaðar vörur verða eins og að undanfórnu seldar með verksmiðju verði. Jens Hansen, Vestergade 15. Kjóbenhavn K. Stærstu og ódýrustu bírgðir i Kaupmannahöfn af járnsteypum, sem eru hentugar 4 islandi. Sjerstaklega má mæla með hitunarofnum með »magazin«-gerð með eldunarhólfi og hristirist, eða án þess, á 14 kr. og þar yfir, sem fást í hundrað stærðum ýmislegum. Eldstór með steikarofni og vatnspotti, með 3 — 5 eldunarholum, á 18 kr. og þar yfir, fást fríttstandandi til þess að múra þær, og fríttstandandi án þess þær sjeu múraðar. Skipaeldstór handa fiskiskipum, hitunarofnar í skip og »kabyssur«, múrlausar með eld- unarholi og magazin-gerð. Steinolíuofnar úr járni, kopar og messíng, af nýustu og bestu gerð. Ofnpípur úr smíðajárni og steypijárni af ýmsum stærðum. Glugga- grindur úr járni í þakglugga og til húsa af öllum stærðum. Galvaniseraðar skjólur, balar. Emailleraðar (gleraðar) og ógleraðar stcikarpönnur og pottar. Gleraðar járnkaffikönnur, tepott- ar, diskar, bollar o. fl. Verðlistar með myndum eru til yfir alt þetta, sem þeir geta feingið ókeypis, er láta mig vita nafn sitt og heimili. m 5' qq. 5' 3 p o E LÍFSÁBYRGÐ ARFJELAGIÐ » STAR«. »STAR» gefur ábyrgðareigendum sínum kost á að hætta við ábyrgðirnar þeim að skaðlausu. »STAR« borgar ábyrgðareigendum 90 prósent af ágóðanum. »STAR« borgar ábyrgðina þó ábyrgðareig- andi fyrirfari sjer. »STAR« tekur ekki hærra iðgjald þó menn ferðist eða flytji búferlum í aðrar heimsálfur. »STAR« hefur hagkvæmari lífsábyrgðir fyrir börn, en nokkurt annað( lífsábyrgð- arfjelag. »STAR« er útbreiddasta lífsábyrgðarfjelag á Norðurlöndum. Umboðsmaður á Seyðisfirði er verslunar- maður Rolf Johansen. >< CfQ es. p p o 57 H- SB Z p. ö p p o cn p- c << -5 BQ O cn c- 3 c p œ o cn c p p. o ’ (fi' p 05 CD 3 O c Brunaábyrgðarfjelagið »Nye danske B r a n d fo r s ikr i n g Selskab« Stormgade 2 Kjöbenhavn. Stofnað 1864 '(Aktiekajiital 4,000,000 og Reservefond 800,000). Tekur að sjer brunaábyrgð á húsum, bæjum, gripum verslunarvörum, innanhúsmunum o. fi. fyrir fastákveðna litla borgun (premie) án þess að reikna nokkra borgun fyrir brunaábyrgðarskjöl (|,oIice) eða stimpilgjald. Menn snúi sjer til umboðsmanns fjelagsins á Seyðisfirði: St. Th. Jónssonar. Eigandi: Prentfjelag Austfirðinga. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: horsteinn Erlíngsson. Prentsmiðja Bjarka.

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.