Bjarki - 24.12.1897, Blaðsíða 2
2 06
greifi. Hann hefur með kænsku
og lagi safnað um sig öllum
Slavnesku flokkunum, og nokkru
af Þjóðverjum, Sósialistum og
Gyðíngum og haft þv( meira hlut
á þíngi. Fyrst fór hann gætilega að
öllu og klóklega, en hjer var óhægt
að lifa svo öllum líkaði. I Apríl
í fyrra vetur varð hann að kaupa
Tsekka til liðs við sig með því að
gera mál þeirra að rjettargángs og
ríkismáli við hlið þýskunnar. Tsekkar
eru næst stærsti flokkurinn og ná-
lægt fjórði hluti landsmanna.
En nú var friðurinn úti.
Þjóðverjar risu upp og heimtuðu
ráðaneytið dregið fyrir lög og dóm
fyrir lagabrot, og reyndu með öllu
móti að steypa því frá völdum.
Ríkja sáttmálinn milli Ungaralands
og Austurríkis átti að endurnýast
nú fyrir Nýárið, ella er því sam-
bandi lokið. Þjóðverjar efldu nú
allar þær róstur á þinginu sem
áður er getið í þessu blaði, til
þess að ráðaneytið gæti ekki kom-
ið sáttmálanum gegnum þíngið, og
yrði að fara frá völdum. Þessu
gekk allan Októb. og Nóvember,
og einn maður talaði stundum
hcilan sólarhríng. Badenis menn
sáu loks sitt óvænna og að ekkert
myndi komast áfram, og báru því
upp þá breytíngu á þíngsköpum
að alla þíngmenn sem óra gerðu
éða truflun í þíngsalnum gæti for-
seti lokað úti frá fundum í þrjá
Baga og ef hann ljeti ekki af gæti
þíngdeildin meinað honum þíng-
setu í mánuð og hvort sem gert
var misti þíngmaðurinn dagpen-
ínga sína.
Um þetta reiíst nú allur þíng-
heimur dag eftir dag og heyrðist
aldrei mansmál fyrir óhljóðum.
Loks var það einn daginn að for-
maður stóð upp Og hjelt tölu.
Það sáu allir, en einginn heyrði
hvað rnaðurinn sagði fremur en
vant var. Alt í einu segir hann:
Þeir sem samþykkja frumvarpið
geri svo vel að standa tipp.
Stjórnar sinnar vissu hvað fram fór
og stóðu upp allir en hinir vissu
óglögt hvað um var að vera og
stóðu upp til að hrópa, gá og
spyrja. Þá segjr formaður: >þing-
skapabreytíngin er nú samþykt í
einu hljóði« og þetta barði hann
og hans flokkur fram, með Badcni
í fararbroddi.
Eftir þetta urðu á hverjum fundi
i salnum áflog, riskíngar, barsmíð-
ar og menn tóku jafnvel til vasa-
hnífa sinna til að yerja síg. For-
seta var hrundið úr sæti Og hann
varð að flýja salinn. Þá tekur
stjórnin það ráð að setja bjálka-
virki kríng um forsetastólinn og
sterkt lögreglulið um húsið og í
alla gánga í húsinu.
Nú sáu flestir Þjóðverjar að þeir
myndu verða að gefast upp og
ráðgerðu að leggja niður þíng-
menskuna. En nú var mæli synd-
anna fullur. Allir hinir frjálslynd-
ari menn stjórnarflokksins sáu að
hjer var beitt lögbrotum einum og
ofbeldi og rfkið og lögin í voða
en vald og virðfng þíngsins fótum
troðin. Auk þess hafði Badeni
upp á síðkastið stígið ýms spor í
afturhaldsstefnu til að þóknast að-
alsmönnum bræðrum sfnum.
Sosfalistar urðu fyrstir til, og fóru
til Badenis og sögðust ekki fyjgja
honum nje neinum öðrum til að
brjóta lögin og kyrkja þíngið. En
þeir voru fáir, aðeins 14 af 500
þíngmönnum, svo þeim var Iftt
sint. Næsta dag 26. Nóvember
hafði stjórnin svo búið alt undir.
Hennar menn komu allir á þfng
og margir hinna líka en voru nú
ýmsir gugnaðir að mestu. Lög-
regluliðinu var skijiað á vörð og
formaðurinn steig í virki sitt.
Hróp og óhljóð hófust á ný, en
allir mótmælendur vægðarlaust
dregnir út. Stjórnin treysti meira-
hluta sínum og ætlaði nú að kúga
fram alt sem hún vildi.
Þegar aungum fortölum var sint
ruddu þessir 14 sósíalistar sjer
braut að forsetabyrginu. Þeir voru
barðir og sparkaðir á leiðinni en
komust þó alla leið, og einn þeirra
vatt sjer inn yfir bjálkana til að
reka burt formanninn. Hann beið
þá ekki boðanna og flýði út úr
salnum, en lófaklapp og fagnaðar
óp giumdi við af áheyrendasvölun-
um endilaungum.
Nú lenti í áflogum um allan sal-
inn og mátti segja að allur þíng-
heimur berðist. Loks ruddi lög-
rcgluliðið salinn og setti ýmsa
þíngmenn í varðhald. En óeirð-
irnar breiddust út um borgina,
þaðan út um landið, og minni
borgirnar. I borginni Graz varð
hreinn bardagi, ög bæði þar og
annarsstaðár urðu stúdentar úr
báðum flokkum fyrstir til. BadenÍ
reyndi hvað eftir annað að koma
sínu fram á þínginu, en þar lenti
alt í barsmíðum. Loks var ekki
annað fyrir að sjá en að uppreist
yrði um alt landið, og að þeim
veika fæti yrði velt sem keisara-
dæmi Austurríkis stendur á, og
þegar borgmeistari Vínarborgar
loks sagði Badeni að hann gæti
ekki fylgt honum leingur og sagði
honnm að ábyrgjast að ekki yrði
uppreist f borginni, þá lagði Ba-
deni loks niður völdin. Þetta var
30. dag fyrra mánaðar. Þá voru
æst fundarhöld um alt land og
uppreist viðbúin, cn nú breyttist
æsíngin í fagnaðar óp, því allir
væntu nú friðar á þíngi og öll laga-
brot bætt aftur.
Tsekkar, scm flestir eru í Bæ-
heimi, undu auðvitað stórilla sín-
um hlut og scgja síðustu fregnir
þaðan uppþot og barsmíðar, mest
milli stúdenta. Þeir hafa barist
þar með blóðugum hnefum. Það
var þó bælt um stund, cn vafa-
laust má vænta þaðan nýrra vand-
ræða.
En allur þessi ófriður hefur þó
nú nokkuð skift ham. Þar hafa
þjúðahatur og túngnarígur barist
híngað til en nú hefur orustan
meir snúist milli framfara og aftur-
haldsmanna þvf Þjóðverjar hafa nú
mjög snúist í frelsis og framfara
áttina eftir styrjoldina við slav-
neska aðalinn og nú fylgja þeim
því bæði Sósíalistar og aðrir fram-
faramenn scm liðsmenn eiga í öll-
um þjóðflokkunum.
Síðar vonar Bjarki að geta fært
lesendum sínum framhaldið.
Neyðarópíð á Spitsbergen.
Less var getið hjer f blaðinu áður, að
tvaer skipshafnir þóttust hafa heyrt
neyðar óp við Spítsbergen og að Norð-
menn sendu þángað skip til að vita
hvort André eða aðrir menn væru þar
staddir í neyð. Fetta skip er komið
aftur fyrir mánuði síðan (21. Nóvem-
ber) og gátu sendimenn ekki orðið
neins vísari og geingu þó á land á 10
stöðum þar um kríng sem hinir höfðu
þókst heyta hrópin.
Kosníngarnar í Noregi hafa far-
ið svo að vinstri menn hafa unnið á-
gætasta sigur, og í hraðskeytum frá
Kristjaníu til Hafnar segir, að vinstri
menn fái fjóra menn á þíng fram yfir
þá tvo þriðju hluta sem þeir þurfa til
grundvallarlagabreytíngar. Almennur
kosníngarrjettur er þá vís, og önnur
stórmál vinstri manna á góðum vegi
til sigurs.
Þíngvallafjelagið danska, sem flyt-
ur fólk af Norðurlöndum til Vestur-
heims, verður ekki gjaldþrota eins og
staðið hefur í ísl. blöðum. Lað hefur
feingið nýa stjórn og nýa styrktar-
menn og heldur áfram sem áður, með
nokkrum umbótum.
Voðatjón heíur orðið nýlega í
Ástralíu (Eyálfunni). Á einum staðn-
um gekk sjór á land i stormi og drap
fjölda manna. Og í einni stórborginni
kom upp eldur sem brendi heilan
borgarhluta. Sá skaði einn er metinn
18 millj. kr.
André. Nafnkunnur veðurfræðíng-
ur sænskur, dr. Ekholm, hcfur reikn-
að út eftir vindstöðu að loftfar Andrés
hafi fyrst rekið til norðvesturs og síðan
til norðaustur, og hafi komist mjög ná-
nægt norðurskauti, og lent loks að
líkindum niður á Franz Jóseps landi.
í>eir André eiga þá eftir þessum reikn-
íngi að vera þar nú í vetursetu.
Kvennasalan. Á sumri komandi
kváðu menn úr ýmsum ríkjum Norð-
urálfu ætla að eiga fund með sjer tii
að ræða um hversu hefta megi sölu
úngra kvenna til saurlíflshúsa í Norð-
urálfu og útflutníng þeirra í aðrar
heimsálfur tii sömu hörmúnga. Til
hvorstveggja kvað nú gánga hinn mesti
grúi og fara jafnan í vöxt.
Spönskum liðsmönnum er nú
sagt að verði að þraungva með högg-
um og pintíngum til að fara til Cúbu
og sumir neiti algjörlega að fara, hvað
sem við þá sje gert. Fað er farið að
harðna á dalnum þar,
Eftir dauða Henrys Georges sigraði
loks dómarinn Van Wyck í New-York.
Fað er sigur hinna samviskulausustu
penínga púka í borginni.
Cúba hafði fyrir ófriðinn 1 roiHj- og
600,000 íbúa. Nú hefur hún einar 800
þús. Það er rjettur helmíngur. Mest-
ur hluti hins kvað vera dáinn úr drep-
sóttum og húngri og nokkuð fallið í
orustum.
Vesuvius (eldfjallið mikla á íta-
líu) er að gjósa. Hitnn hefur brotist
á ný út um stromp sem hann bjó sjer
til .1895.
Gamle Carlsberg, ölgerðarhúsið
mikla við Kaupmannahöfn, hielt 50
ára afmæli sitt 10. Nóvemb. Flestir
íslendíngar munu þekkja GI. Carlsberg
að nafninu og margir bragðið að ölinu.
Stofnandi þess og eigandi er nú dá-
inn og hjet Jakobssen, og var stór-
ríkur maður. Fegar hann dó fyrir
nokkrum árum, hafði hann ráðstafað
svo eignum sínum að ölgerðarhúsið
skyldi verða sjerstök stofnun, en mik-lu
af ágóðanum varið til að styrkja iðn-
að og vísindi í Danmörku. Eignir
stofnunarinnar eru nú 11 milljónir og
fjöldi vísindamanna og fyrirtækja hafa
feingið styrk þaðan árlega, þar á með-
al margir Íslendíngar. Jakobsen gamli
bruggaði fyrstur manna á Norðurlöndum
öl alveg á vísindalegan hátt.
Seinni hlut ævi sinnar styrkti hann
mjög vísindaleg og verkieg fyrirtæki
og varð landi sínu á þann hátt að
stórgagni, ekki síst með því að hann
kom á útflutníngi öls og efldi hann
stórkostlega. En — sje alt það tjón
reikrað sein þær tvöhundruð og þrjú
þúsund tunnur gera sem nú eru brugg-
aðar þar áriega, ja, þá er eftir að vita
hvort mikið er afgángs af ábátanum.
Fað er maklegt að minnast gamla
Jakobsens og stofnunar hans að góðu,
því hann hefur margt vel gert, og ver-
ið verkafólki sínu mörg'um öðrum betri.
En flestir bindindismenn, sem eru það
meira en á vörunum, munu geta þess
um leið, að þessi mikla stofnun gæti
unnið með milljónum sínum eitthvað
þarfara en að brugga Rjór — og gert
gott af auði sínum samt.
Ekki nóg Forstöðumaðurinn á
skrifstofu Kaupmannahafnardeildar hins
amerikanska Iífsábyrgðarfjelags >The
Mutual Life« hafði 12 þúsund krónur í
laun um árið. Hann gat ómögulega
dregið fram lífið við þetta og bætti
því við sig 500 krónum á viku úr
skúffunni. Legar hann var búiun að
næia í 72 þúsund krónur komst alt
upp og hann fjekk tveggja ára betr-
unarhúsvinnu fyrir vikið.
Kaffi fellur i verði. Kaffi fellur
óðum í verði. Á hcimsmarkaðinum
eru tvær aðal tegundir af kaffi. Onnur
er kend við Java, því hún vex þar og
á öðrum Austuiindía-eyjum. Pundið at
þeirri tegund hefur síðustu ár kost að
1 kr.—1,23 kr. fyrir utan : ila tolla. Fessi
sort er mest keyft af þeim mönnum
og þjóðum sem hafa lært að spara
fje sitt á því að kaupa góða vöru og
dýra. Hin tegundin kemur mestmegn-
is frá Brasilíu og kölluð Brasilíukaffi.
Pundið af henni hefur síðustu árin
kostað frá 37 tíl 39 aura. Sú tegund
flyst til íslands og annara landa sem
vilja vonda vöru og ódýra. Brasilíu-
kaffi fjell í fyrra mikið í verði svo að
pundið af lökustu tegundinni varð 27
aura. Javakaffið hjelt sjer betur, eu
nú á dögunum gátu Ilollendíngar ekki
leingur ráðið við og urðu að láta pund-
ið falla 15 aura í verði. Og menn
búast við að báðar tegundir muni enn